Hoppa yfir valmynd
11. september 2013 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 189/2012.

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 11. september 2013 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 189/2012.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

 

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 4. desember 2012, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum 26. nóvember 2012 fjallað um höfnun hennar á atvinnutilboði. Vegna höfnunarinnar var bótaréttur kæranda felldur niður frá og með 10. desember 2012 í tvo mánuði sem ella hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir. Ákvörðunin var tekin á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með kæru, dags. 18. desember 2012. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun telur að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.

 

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 11. nóvember 2009.

 

Þær upplýsingar bárust frá Reykjavíkurborg að kærandi hafi komið í viðtal hjá skólastjóra B vegna starfs sem skólaliði 17. október 2012. Í samskiptasögu Vinnumálastofnunar frá 24. október 2012 er vísað beint í póst frá atvinnuráðgjafa Reykjavíkur en þar kemur eftirfarandi fram: Hér með tilkynnist að A hafnaði starfi hjá Reykjavíkurborg. Hún kom í viðtal til atvinnuráðgjafa og sagðist vilja vinna í C nálægt heimili sínu. Hún var því boðuð í viðtal í B fyrir starf skólaliða. Skv. skólastjóranum sagði hún í viðtalinu að hún hefði engan áhuga á starfinu og að Vinnumálastofnun vildi bara að hún væri þarna.“ Í kjölfarið var kæranda sent bréf og gefið tækifæri á því að skila inn skýringum á höfnun sinni og vakin athygli á því að ef ástæður hennar teldust ekki gildar gæti höfnunin leitt til viðurlaga skv. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

Skýringar kæranda bárust 2. nóvember 2012 og kom þar meðal annars fram að kærandi taldi sig ekki hafa hafnað atvinnutilboði. Í kjölfarið var mál kæranda tekið fyrir á fundi hjá Vinnumálastofnun og með bréfi, dags. 4. desember 2012, var kæranda tilkynnt ákvörðun stofnunarinnar um að fella niður greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar í tvo mánuði frá og með 10. desember 2012 sem tekin var á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

 

Í kæru, dags. 18. desember 2012, kemur fram að kærandi telur um óréttláta niðurfellingu bótaréttar að ræða. Kærandi kveður enga höfnun af hennar hálfu á atvinnutilboði hafa átt sér stað þar sem ekki hafi verið um atvinnutilboð að ræða. Í atvinnuviðtalinu hafi kæranda verið sagt að hún kæmi ekki til greina.

 

 

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 3. janúar 2013, segir að mál þetta varði 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Málsgreinin eigi við um þann sem hafnar starfi eða sinnir ekki atvinnuviðtali. Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslna atvinnuleysisbóta sé að hann sé í virkri atvinnuleit. Í 14. gr. laganna sé kveðið nánar á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé tekið fram að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Þegar atvinnuleitandi sé boðaður í starfsviðtal í þeim tilgangi að fá hann til starfa en hann reynist ekki reiðubúinn til að taka starfi líti Vinnumálastofnun svo á að hann eigi að sæta viðurlögum á grundvelli 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

Í greinargerð með frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar séu tilgreindar ástæður sem geta komið til greina sem gildar skýringar við höfnun á starfi. Í athugasemdum við 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi meðal annars fram að gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun sé heimilt að líta til aldurs, félagslegra aðstæðna tengdum skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima við ákvörðun um hvort hinn tryggði skuli sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu. Enn fremur sé heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar í boði sé starf fjarri heimili hans sem geri kröfur um að hlutaðeigandi flytji búferlum.

 

Fram kemur í greinargerð Vinnumálastofnunar að samkvæmt fyrirliggjandi gögnum í málinu megi ráða að kærandi hafi ekki haft áhuga á starfi hjá B. Í athugasemdum frá skólastjóra B komi fram að augljóst áhugaleysi kæranda hafi orðið til þess að ekki hafi getað orðið af ráðningu. Í skýringum sínum til Vinnumálastofnunar, dags. 29. október 2012, hafi kærandi tekið fram að henni hafi aldrei verið boðið starf þar sem hún hafi verið spurð að því hvernig vinnu hún væri að leita að og þegar hún hafi svarað að hún væri búin með námskeið í bókhaldi og væri að leita að slíkri vinnu hefði svarið verið að þau hefðu ekkert meira til að ræða um.

 

Vinnumálastofnun leitaði frekari upplýsinga um afstöðu skólastjóra og aðstoðarskólastjóra B til atvinnuviðtalsins og þar hafi verið staðfest að þeirra skilningur á því að kærandi hefði ekki áhuga á að starfa í skóla og við frekari spurningar varðandi hugsanlegt starf hafi sú afstaða kæranda staðfests enn frekar. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að augljóst áhugaleysi kæranda á starfinu megi jafna til höfnunar á atvinnutilboði/atvinnuviðtali, sbr. 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

 

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 9. janúar 2013, gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 23. janúar sama ár. Frekari athugasemdir bárust ekki frá kæranda. Með bréfi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða til kæranda, dags. 12. ágúst 2013, var henni tilkynnt að afgreiðsla málsins myndi tefjast vegna gríðarlegs málafjölda hjá úrskurðarnefndinni.

 

 

2.

Niðurstaða

 

Mál þetta lýtur að túlkun á 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem er fjallað um höfnun á starfi eða atvinnuviðtali. Í 1. mgr. lagagreinarinnar segir að sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama eigi við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali. Í 4. mgr. kemur fram að Vinnumálastofnun skuli meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði vísvitandi leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.

 

Kærandi kveðst ekki hafa hafnað atvinnuviðtali hjá B. Hún heldur því fram að ekkert atvinnutilboð hafi átt sér stað. Í skýringarbréfi kæranda, dags. 29. október 2012, segir hún að sér hafi aldrei verið boðið starf þar sem hún hafi verið spurð að því hvernig vinnu hún væri að leita að og þegar hún hafi svarað að hún væri búin með námskeið í bókhaldi og væri að leita að slíkri vinnu hefði svarið verið að þau hefðu ekkert meira til að ræða um. Jafnframt að sá aðili er tók viðtalið við kæranda hafi sagt að hann vildi ekki fá „svona fólk“.

 

Vinnumálastofnun fékk staðfest af hálfu skólastjórnenda B að þeirra skilningur væri sá að kærandi hefði ekki áhuga á að starfa í skóla og við frekari spurningar varðandi hugsanlegt starf hafi sú afstaða kæranda verið staðfest eins og rakið hefur verið. Mat Vinnumálastofnunar var að jafna augljósu áhugaleysi kæranda á starfi við höfnun á atvinnutilboði, sbr. 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

Að mati úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða verður ekki fallist á að skýringar kæranda réttlæti höfnun hennar á umræddu atvinnutilboði með vísan til 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.

 

 

 


 

 

Úrskurðarorð

Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 26. nóvember 2012 í máli Aa er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir,

formaður

 

 

Hulda Rós Rúriksdóttir                                 Helgi Áss Grétarsson

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta