Fjölmörg erindi haldin á samgönguþingi 19. maí
Á samgönguþingi sem haldið verður í Reykjavík næstkomandi fimmtudag 19. maí verða til umræðu drög að tillögum samgönguráðs að stefnu í samgöngumálum 2011-2022. Fluttar verða kynningar um hin einstöku svið og í lok dagskrár verða pallborðsumræður.
Samgönguþingið verður haldið á Radisson Hótel Sögu og stendur frá kl. 13-17. Þeir sem hyggjast sitja þingið eru beðnir að skrá sig með tilkynningu á netfangið [email protected] eigi síðar en þriðjudaginn 17. maí.
Meginefni samgönguþings verða kynningar á drögunum og umræður um þær. Einnig verða flutt nokkur erindi um tengd málefni og má sjá nánari dagskrá hér að neðan.
Við undirbúning tólf ára samgönguáætlunar hefur samgönguráð staðið fyrir samráðsfundum meðal annars með fulltrúum sveitarfélaga og atvinnulífs í öllum landshlutum. Meginmarkmið fundanna hefur verið að fá fram hugmyndir, áherslur og markmið sem þessir aðilar vilja að höfð verði til hliðsjónar við mótun langtímaáætlunar í samgöngumálum. Starfshópar, sem samgönguráð skipaði til að vinna afmörkuð verkefni sem snúa að stefnumótun í samgöngum, hafa nú allir lokið störfum.
Dagskrá samgönguþings
Inngangur
13:00 Setning samgönguþings: Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra
13:10 Samgönguáætlun 2011-2022 – inngangur: Dagur B. Eggertsson, formaður samgönguráðs
Samgönguáætlun 2011-2022 – drög að stefnumótun
13:30 Meginmarkmið, stefnumið og áherslur 2011-2022: Friðfinnur Skaftason og Þorsteinn R. Hermannsson, verkfræðingar í innanríkisráðuneyti
14:15 Umhverfismat samgönguáætlunar 2011-2022: Mannvit og VSÓ-Ráðgjöf
14:35 Samfélagsleg áhrif samgangna: Þóroddur Bjarnason, Háskólanum á Akureyri
14:55 Samþætting samgangna, skipulags og heilsu: Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, Háskólanum í Reykjavík
15:15 Kaffihlé
Samþætting áætlana
15:40 Landsskipulagsstefna: Stefán Thors, forstjóri Skipulagsstofnunar
16:00 Einföldun, fækkun og samþætting stefna og áætlana ríkisins: Héðinn Unnsteinsson, forsætisráðuneyti
Umræður og fyrirspurnir
16:20 Samgönguáætlun 2011-2022 – Næstu skref: Dagur B. Eggertsson, formaður samgönguráðs
16:25 Pallborðsumræður samgönguráð
16:55 Fundarslit
17:00 Léttar veitingar
Fundarstjóri verður Halla Gunnarsdóttir, aðstoðarmaður innanríkisráðherra.
Tækifæri verður til spurninga á milli erinda.