Skipuð ný stjórn Íbúðalánasjóðs
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur skipað nýja stjórn Íbúðalánasjóðs samkvæmt lögum um húsnæðismál. Nýr formaður stjórnarinnar er Katrín Ólafsdóttir, lektor í Háskólanum í Reykjavík, en hún tekur við formennsku af Hákoni Hákonarsyni.
Stjórn Íbúðalánasjóðs er skipuð eftirtöldum fulltrúum:
- Katrín Ólafsdóttir, lektor, formaður
- Sjöfn Ingólfsdóttir, fyrrverandi formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, varaformaður
- Jóhann Ársælsson, fyrrverandi þingmaður
- Lárus L. Blöndal, hæstaréttarlögmaður
- Elín R. Líndal, framkvæmdastjóri
Til vara:
- Friðjón Einarsson, bæjarfulltrúi
- Henný Hinz, hagfræðingur
- Steinar Harðarson, verkfræðingur
- Sigríður Á. Andersen, héraðsdómslögmaður
- Hákon Hákonarson, vélvirki