Skipa stýrihóp til að vinna að endurskoðun á örorkulífeyriskerfinu
Ríkisstjórn Íslands hefur skipað stýrihóp fjögurra ráðuneyta; forsætisráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis, undir stjórn félags- og vinnumarkaðsráðuneytis, og er hlutverk hópsins að hafa yfirsýn yfir vinnu félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins er snýr að endurskoðun á örorkulífeyriskerfinu í samræmi við áherslur í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.
Stýrihópnum er ætlað að hafa yfirlit yfir aðgerðir og framgang tímasettrar verkefnaáætlunar ráðuneytanna og skila greinargerð um störf hópsins í lok skipunartíma sem er 1. júní 2024.
Steingrímur J. Sigfússon hefur verið skipaður formaður stýrihópsins. Aðrir meðlimir eru:
- Henný Hinz, tilnefnd af forsætisráðuneyti,
- Óli Björn Kárason, tilnefndur af fjármála og efnahagsráðuneyti,
- Eygló Harðardóttir, tilnefnd af heilbrigðisráðuneyti.
Fyrir stýrihópinn starfar sérfræðingateymi, með fulltrúum félags- og vinnumarkaðsráðuneytis, heilbrigðisráðuneytis og fjármála- og efnahagsráðuneytis, sem vinnur að undirbúningi, útfærslum og innleiðingu breytinga á greiðslu- og þjónustukerfi almannatrygginga fyrir einstaklinga með mismikla starfsgetu eða heilsubrest sem hefur áhrif á starfsgetu viðkomandi með áherslu á starfsendurhæfingu og aukna möguleika til þátttöku á vinnumarkaði.
Klara Briem, verkefnisstjóri í félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, mun leiða vinnu sérfræðingateymisins og vera tengiliður við stýrihóp ráðuneytanna. Áhersla verður á víðtækt samráð við helstu hagsmunaaðila, stofnanir, önnur ráðuneyti og aðra hlutaðeigandi eftir því sem við á.
Sérfræðingateymið er þannig skipað:
Aðalmenn:
Klara Briem, án tilnefningar, verkefnastjóri, frá félags- og vinnumarkaðsráðuneyti,
Ágúst Þór Sigurðsson, án tilnefningar, frá félags- og vinnumarkaðsráðuneyti,
Hilda Hrund Cortez, tilnefnd af fjármála- og efnahagsráðuneyti,
Sara Lovísa Halldórsdóttir, tilnefnd af heilbrigðisráðuneyti.
Varamenn:
Jóhanna Lind Elíasdóttir, án tilnefningar, frá félags- og vinnumarkaðsráðuneyti,
Guðmann Ólafsson, tilnefndur af heilbrigðisráðuneyti,
Steingrímur Ari Arason, tilnefndur af fjármála – og efnahagsráðuneyti.