Hoppa yfir valmynd
27. febrúar 2023 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 117/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 27. febrúar 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 117/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23020039

 

Beiðni um frestun réttaráhrifa í máli

[…] og barna hennar

 

Málsatvik

Hinn 9. febrúar 2023 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 28. nóvember 2022, um að umsóknir einstaklings er kveðst heita […], vera fædd […] og vera ríkisborgari Írak um alþjóðlega vernd hér á landi og barna hennar […], fd. […] (hér eftir A), […], fd. […] (hér eftir B), […], fd. […] (hér eftir C) og […], fd. […] (hér eftir D), ríkisborgarar Írak, yrðu ekki teknar til efnismeðferðar og að þau yrðu endursend til Grikklands. Úrskurður kærunefndar var birtur fyrir aðila 10. febrúar 2023 og 15. febrúar 2023 barst kærunefnd beiðni aðila um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar. Hinn 22. febrúar 2023 barst kærunefnd greinargerð aðila.

Aðili krefst þess að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála verði frestað á meðan hún fer með mál sitt fyrir dómstóla, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Málsástæður aðila

Í greinargerð aðila kemur fram að aðili og börn hennar hafi glímt við heilsubrest. Geðheilsu barnanna hafi hrakað verulega en illa hafi gengið að fá sálfræðiviðtöl fyrir börnin. A hafi fengið sálfræðiviðtal 7. febrúar sl. og beðið sé eftir upplýsingum úr því viðtali. Með tilliti til þess sé óskað eftir því að brottvísun verði frestað svo A fái þá aðstoð sem hann þurfi og geti nýtt þá meðferð sem búið sé að úthluta honum. Ítrekað hafi verið beðið um sálfræðiaðstoð fyrir börnin en ekki gengið að fá viðtöl fyrir þau hjá Göngudeild sóttvarna. A og B bíði nú viðtala hjá Píeta samtökunum þar sem óttast sé að þeir séu í sjálfsvígshættu. Börnin hræðist mikið að fara til Grikklands enda eigi þau slæmar minningar þaðan. Aðili telur mikilvægt að beðið verði með að vísa henni úr landi þar sem það kunni að hafa óafturkræfar afleiðingar fyrir börnin. Börn aðila hafi átt mjög erfitt andlega eftir dvölina í Grikklandi og séu búin á því líkamlega og andlega eftir flótta síðastliðin sjö ár. Þá vísar aðili til þess að erfitt hafi verið að nálgast læknisfræðileg gögn auk þess sem erfitt hafi verið að fá sálfræðiviðtöl fyrir börnin þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir þar um. Aðili vísar til þess að verði börnin send til Grikklands áður en gögnin berist þá geti það haft í för með sér óafturkræfan skaða fyrir börnin. Með tilliti til stöðu og veikinda aðila og barna hennar sé þess óskað að brottvísun verði frestað svo aðili og börnin fái þá aðstoð sem þau þurfi. Þá vísar aðili til þess að erfitt kunni að vera í sambandi við lögmann sinn vegna fyrirhugaðs dómsmáls þar sem ekki sé vitað hver andleg staða þeirra verði og hvort þau hafi burði til að fylgja máli sínu eftir frá Grikklandi en það sé nauðsynlegt fyrir rekstur málsins hér á landi. Aðili bindi miklar vonir við fyrirhuguð viðtöl hjá Píeta samtökunum fyrir A og B. Aðili óski eftir því að kærunefnd leggi heildstætt mat á umsóknir þeirra og fresti réttaráhrifum í málunum. Nauðsynlegt sé fyrir aðila og börn hennar að læknisfræðileg gögn verði lögð fram svo hægt sé að sækja um endurupptöku vegna breyttra aðstæðna, þ.e. vegna andlegra vandamála A og B. Verði fjölskyldan send til Grikklands áður en A og B komist í fyrirhuguð viðtöl sé íslenska ríkið að bregðast þeim en vakin sé athygli á því að þeir séu í sjálfsvígshættu vegna brottvísunarinnar til Grikklands. Aðili vísar til þess að um sé að ræða börn og því beri að gæta að velferð þeirra og réttindum samkvæmt landslögum og barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sbr. lög nr. 19/2013. Þegar um börn sé að ræða beri að gæta að heildarhagsmunum þeirra en aðili telur að svo hafi ekki verið gert í máli þeirra. Aðili vísar til fyrirliggjandi gagna auk þess sem ný gögn verði lögð fram þegar þau berist.

Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í íslenskum rétti gildir sú meginregla að málskot til dómstóla frestar ekki réttaráhrifum endanlegra ákvarðana stjórnvalda, sjá til hliðsjónar 2. málsl. 60. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Reglan er áréttuð í 1. málsl. 6. mgr. 104. laga um útlendinga en þar segir að málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun á stjórnsýslustigi um að útlendingur skuli yfirgefa landið fresti ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess, sbr. 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestun á réttaráhrifum skal bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að málið hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Niðurstaða um hvort ástæða sé til að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar ræðst af heildstæðu mati á hagsmunum aðila af því að réttaráhrifum úrskurðarins verði frestað og sjónarmiðum sem mæla gegn slíkri frestun. Meðal þeirra sjónarmiða sem líta ber til við þetta mat er hvort framkvæmd úrskurðarins valdi aðila óafturkræfum skaða, hvort framkvæmdin feli í sér verulegar hindranir á aðgengi aðila að dómstólum, hvort aðstæður sem þýðingu geta haft fyrir málið hafi breyst verulega eða hvort þörf sé á sérstakri varúð, m.a. með tilliti til hagsmuna barna. Þá lítur kærunefnd til þess hlutverks stjórnvalda að tryggja skilvirka framkvæmd laga um útlendinga. Kærunefnd hefur jafnframt litið til þess að heimild til frestunar réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar er undantekning frá meginreglu sem aðeins sé ætlað að ná til tilvika þar sem ástæða er til þess að fresta framkvæmd. Réttaráhrifum úrskurðar verði því ekki frestað af þeirri ástæðu einni að úrskurðurinn verði borinn undir dómstóla heldur þurfi að liggja fyrir tilteknar ástæður í fyrirliggjandi máli svo kærunefnd fallist á slíka beiðni.

Ljóst er að vera aðila á landinu er ekki forsenda fyrir því að mál sem hún höfðar til ógildingar á úrskurði kærunefndar sé tækt til meðferðar hjá dómstólum. Þá hefur aðili möguleika á að gefa skýrslu fyrir dómi þótt hún sé ekki hér á landi, sbr. 2. mgr. 49. gr. og 3. og 4. mgr. 51. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Í því ljósi og með vísan til aðstæðna aðila að öðru leyti er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé ástæða til að fresta réttaráhrifum úrskurðar í máli aðila á þeim grundvelli að framkvæmd úrskurðarins valdi tjóni á málatilbúnaði hennar fyrir dómstólum eða skerði réttindi sem henni eru tryggð samkvæmt 70. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. einnig dóma Héraðsdóms Reykjavíkur í málum nr. E-2434/2017 og E-6830/2020.

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála hefur verið tekin afstaða til málsástæðna aðila varðandi umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd hér á landi og komist að niðurstöðu um að synja umsóknum þeirra um efnismeðferð. Kærunefnd ítrekar það sem kemur fram í úrskurði í máli aðila að athugun nefndarinnar hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að ætla að aðstæður í viðtökuríki séu þess eðlis að endursending aðila þangað sé í andstöðu við 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu eða að aðilum sé ekki tryggð raunhæf leið til að ná fram rétti sínum þar í landi, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Í samræmi við framangreint er það jafnframt mat kærunefndar að aðili eigi ekki á hættu að verða fyrir óafturkræfum skaða snúi hún aftur til viðtökuríkis.

Tiltölulega skammur tími er liðinn síðan nefndin úrskurðaði í máli aðila. Við afgreiðslu málsins lá m.a. fyrir sú málsástæða að A ætti við andlega erfiðleika að etja og leit kærunefnd til þess. Þá hafa ekki verið lögð fram ný gögn sem benda til þess að aðstæður aðila eða aðstæður í ríkinu, sem vísa á aðila til, hafi breyst verulega síðan nefndin úrskurðaði í málinu á þann hátt að nefndin telji að það gæti haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Þá er ekkert sem bendir til að niðurstaða kærunefndar í málinu sé haldin annmörkum sem leitt gæti til ógildingar úrskurðarins.

Í úrskurði kærunefndar í máli aðila var gerð grein fyrir mati nefndarinnar á hagsmunum barna  aðila. Í úrskurðinum er m.a. vísað til 32. gr. a reglugerðar um útlendinga þar sem fram koma sérviðmið er varða börn og ungmenni. Var það niðurstaða kærunefndar að flutningur fjölskyldunnar til viðtökuríkis samrýmdist hagsmunum barnanna þegar litið væri m.a. til öryggis þeirra, velferðar og félagslegs þroska, sbr. 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að ekki sé ástæða til að fallast á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa úrskurðar kærunefndar í máli hennar.

Kærunefnd leggur áherslu á að mál þetta snýst um hvort ástæða sé til að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar í því skyni að bera mál undir dómstóla, en ekki hvort skilyrði frestunar framkvæmdar með vísan til lokamálsliðar 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga séu fyrir hendi. Aðila er leiðbeint um að berist þeim boð um flutning til viðtökuríkis er þeim heimilt að vekja athygli kærunefndar á því en kærunefnd getur þá ákveðið að fresta framkvæmd úrskurðar, sbr. framangreint ákvæði, séu skilyrði til þess uppfyllt. Þá áréttar kærunefnd að liggi fyrir ný heilsufarsgögn í málinu sem uppfylla skilyrði 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, geti aðili óskað eftir endurupptöku á grundvelli þeirra.

Athygli aðila er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra ástæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

 

 

ÚRSKURÐARORÐ:

 

Kröfu aðila er hafnað.

The appellants’ request is denied.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

Þorsteinn Gunnarsson, formaður

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta