Niðurstaða úthlutunar á tollkvótum á landbúnaðarafurðum frá Bretlandi fyrir tímabilið janúar til desember 2021
Fimmtudaginn 14. janúar 2021 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á ostum og unnum kjötvörum frá Bretlandi samkvæmt reglugerð nr. 1321/2020 fyrir tímabilið 1. janúar til 31. desember 2021. Samtals bárust sex gild tilboð í tollkvótann.
Ostar og ystingur í vörulið 0406. Fimm tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi á vörulið 0406, samtals 32.000 kg. á meðalverðinu 286 kr./kg. Hæsta boð var 720 kr./kg. en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fimm fyrirtækjum um innflutning á 19.000 kg. á meðalverðinu 443 kr./kg.
Ostur og ystingur úr vörulið ex0406;...(**). Fimm umsóknir bárust um tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi úr vörulið ex 0406...(**) samtals 11.000 kg. Á grundvelli 5. gr. reglugerðar nr. 1321/2020 er tollkvóta úr vörulið ex0406 úthlutað með hlutkesti og er hámark úthlutunar til hvers fyrirtækis 15% af heildarmagni tollkvótans. Samtals var úthlutað 11.000 kg., til fimm fyrirtækja.
(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla.
Annað kjöt...., unnið eða varið skemmdum-... í vörulið 1602. Fjögur tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á öðru kjöti..., á vörulið 1602, samtals 60.000 kg. á meðalverðinu 366 kr./kg. Hæsta boð var 675 kr./kg. en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 18.000 kg. á meðalverðinu 675 kr./kg.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:
Ostur og ystingur 0406
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
10.000 |
KFC ehf |
3.000 |
Krónan ehf |
3.000 |
Mjólkursamsalan ehf |
1.000 |
Natan & Olsen ehf |
2.000 |
Samkaup sf |
Ostur og ystingur ex 0406 (**)
Úthlutað magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
1.000 |
KFC ehf |
3.350 |
Krónan ehf |
3.000 |
Mjólkursamsalan ehf |
1.650 |
Natan & Olsen ehf |
2.000 |
Sælkeradreifing ehf |
Annað kjöt, hlutar úr dýrum-.... 1602
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
18.000 |
Samkaup sf |
Reykjavík, 25. janúar 2021
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu