Hoppa yfir valmynd
13. mars 2025 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Blásið til sóknar: „Jarðhiti jafnar leikinn“

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, kynnir átakið Jarðhiti jafnar leikinn. - mynd
  • Staða heimila og fyrirtækja um allt land jöfnuð með lækkun húshitunarkostnaðar 
  • Stutt við byggðaþróun og verðmætasköpun 
  • Dregið úr olíunotkun til hitunar og losun gróðurhúsalofttegunda 

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, kynnti í dag átakið Jarðhiti jafnar leikinn. Um er að ræða stærsta jarðhitaátak sem farið hefur verið í hér á landi á þessari öld. Alls verður einum milljarði króna varið í átak til leitar og nýtingar jarðhita árunum 2025-2028.

Áhersla verður lögð á stuðning við nýtingu jarðhita til almennrar húshitunar á svæðum þar sem nú er notuð raforka og/eða olía til húshitunar. Verður við styrkveitingar m.a. horft til þess að nokkur þekking sé þegar til staðar á jarðhita viðkomandi svæðis og að vísbendingar séu um að finna megi heitt vatn sem hægt sé að nýta beint inn á hitaveitu, eða volgt vatn í nægilegu magni svo nýta megi á miðlæga varmadælu á svæðum.

Í máli ráðherra kom fram að Ísland sé í einstakri stöðu þegar komi að nýtingu jarðhita. Yfir 90% heimila hafi aðgang að hitaveitu sem nýtir jarðhita til húshitunar, eftir standi hins vegar tæplega 10% heimila landsins sem nota þurfi aðrar leiðir til húshitunar.

„Það er rándýrt, óhagkvæmt og ósanngjarnt og við þurfum að ná þessu hlutfalli hratt niður á næstu árum. Með árangri í leit og nýtingu jarðhita munum við lækka húshitunarkostnað heimila þar sem hann er mestur, en ekki síður létta kostnaði af fyrirtækjunum, af sveitarfélögum og grunnþjónustu, skólum og hjúkrunarheimilum, á köldum og krefjandi svæðum. Þetta er grundvallaratriði fyrir verðmætasköpun og byggðaþróun í landinu,“ sagði Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Mikilvægt sé að jafna leikinn með jarðhita. Það sé stefna núverandi stjórnar og að stiginn verði stærri skref í þessum efnum en áður hafa verið stigin á þessari öld.

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja.

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja.

Rafhitun á Íslandi nemur á bilinu 600–650 GWst og af því eru um 320 GWst niðurgreiddar. Um 300 GWst eru óniðurgreiddar, mest hjá fyrirtækjum og stofnunum. Á þessu ári verður rúmlega 2,5 milljörðum króna varið í niðurgreiðslur húshitunar á rafhituðum svæðum.

Ráðherra fór yfir mögulega sviðsmynd um áhrif átaksins á ríkissjóð:

„Takist að losa um 20% af þeirri raforku sem nú er nýtt til rafhitunar heimila, stofnana og fyrirtækja, þ.e. um 120 GWst af raforku á ári, er losað um framboð á þessari orku án efnahagslegs og umhverfislegs kostnaðar sem fylgir nýrri virkjun.

Ef við hugsum þetta í samhengi við orkuskiptin, þá samsvara 120 GWst raforkunotkun um 50 þúsund rafbíla, og ef þeir koma í staðinn fyrir bensínbíla þá minnkar losun í samgöngum um meira en 100 þúsund tonn af CO2 á ári. Ef helmingurinn af þessum 120 GWst væri niðurgreidd rafhitun sem færðist yfir í jarðvarma myndi niðurgreiðsluþörf ríkisins lækka um 540 milljónir króna á ári og skatttekjur ríkisins af raforkunni aukast um 300 milljónir þar sem hún færist í hærra virðisaukaskattþrep. Á tíu ára tímabili erum við þá að tala um meira en 8 milljarða ávinning fyrir ríkissjóð. Svo þetta er skynsamleg fjárfesting og þjóðhagslega hagkvæmt verkefni.”

Jóhann Páll sagði að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur legði áherslu á byggðajöfnuð, að jafna aðstöðumun fólks og fyrirtækja og treysta stoðir hinna dreifðu byggða.

„Við ætlum að auka framboð af orku. Við leggjum áherslu á orkuöryggi og orkunýtni, og við erum staðráðin í að ná árangri í orkuskiptum og loftslagsmálum. Átakið Jarðhiti jafnar leikinn þjónar öllum þessum markmiðum,“ sagði ráðherra í ávarpi sínu.

 Vilhjálmur Hilmarsson, stjórnarformaður Loftslags- og orkusjóðs.

Vilhjálmur Hilmarsson, stjórnarformaður Loftslags- og orkusjóðs.

Styrkir verða veittir til sveitarfélaga, orkufyrirtækja eða aðila sem vinna í þeirra umboði og getur styrkupphæð fyrir hvert verkefni numið allt að tveimur þriðju af heildarkostnaði þess gegn mótframlagi umsækjanda. Verkefnin geta snúið að því að hefja nýtingu þar sem það á við eða að frekari rannsóknum með vísan í fyrri niðurstöður.

Loftslags- og orkusjóður hefur umsjón með framkvæmd átaksins sem auglýst verður á næstu dögum.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta