Yfir tíu milljónir söfnuðust í landssöfnun UN Women
Landssöfnun UN Women á Íslandi í beinni útsendingu á RÚV skilaði yfir tíu milljónum króna og 1330 einstaklingar gerðust „Ljósberar“ UN Women. „Við hjá UN Women á Íslandi erum í skýjunum yfir árangrinum og stolt af þeim stuðningi sem landsmenn sýna þessum útbreidda heimsfaraldri sem fáir beina sjónum sínum að,“ segir Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi.
„Stúlka, ekki brúður“ var yfirskrift þáttarins sem var á dagskrá RÚV síðastliðið föstudagskvöld. Þátturinn var unnin af UN Women á Íslandi í samstarfi við RÚV og sjónum var beint að einni útbreiddri birtingarmynd kynbundins ofbeldis, þvinguðum barnahjónaböndum. Fram kom í þættinum að rúmlega tólf milljónir barnungra stúlkna eru þvingaðar í hjónaband á hverju ári, sem þýðir að 23 barnugnar stúlkur eru þvingaðar í hjónabnd á hverri mínútu.
Fulltrúar UN Women á Íslandi heimsóttu Malaví nýverið ásamt tökuteymi og Þóru Karítas Árnadóttur leikkonu og rithöfundi. Þar kynntu þau sér áhrif þessa skaðlega siðar á stúlkur og malavískt samfélag. Þóra Karítas kynntist og tók viðtöl við stúlkur sem hafa verið þvingaðar í hjónaband á barnsaldri og voru sex stuttar heimildarmyndir frá heimsókn UN Women á Íslandi frumsýndar í þættinum.
Allt söfnunarfé rennur beint til UN Women í Malaví og miðar að því að styrkja stúlkur aftur til náms eftir að hafa verið leystar úr ólöglegum hjónaböndum. Söfnunarfé verður einnig notað til aukinnar fræðslu á öllum stigum samfélagsins um skaðlegar afleiðingar þess að þvinga barnungar stúlkur í hjónabönd.
„Það að fólk styðji við þennan berskjaldaða hóp, stúlkur sem beittar eru kynbundnu ofbeldi og eru þvingaðar í hjónabönd á barnsaldri, sýnir einstakan samtakamátt sem ekki er sjálfsagður. Við viljum því koma á framfæri innilegu þakklæti til allra okkar Ljósbera og styrktaraðila,“ segir Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi.