Afkoma ríkissjóðs á fyrsta ársfjórðungi betri en áætlanir gerðu ráð fyrir
Fjársýsla ríkisins hefur birt uppgjör ríkissjóðs fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2021. Samkvæmt uppgjörinu hækka skatttekjur og tryggingagjöld um ríflega 9% milli ára og gjöld hækka um 20%. Aukning tekna milli ára skýrist að stórum hluta af frestununum skattgreiðslna og er raunveruleg hækkun minni. Aukningu gjalda má einkum rekja til aðgerða sem ráðist hefur verið í til að mæta áhrifum Covid-19.
Helstu niðurstöður uppgjörsins eru (allar tölur eru í milljónum króna):
Raun 2021 |
Raun 2020 |
Breyting milli ára |
|
Tekjur samtals |
200.158 |
182.895 |
17.264 |
Gjöld samtals |
240.264 |
199.999 |
40.265 |
Afkoma fyrir fjármagnsliði |
-40.105 |
-17.104 |
-23.001 |
- Afkoma fyrir fjármagnsliði var neikvæð um 40,1 ma.kr.
- Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 11,1 ma.kr.
- Rekstrarafkoma tímabilsins var neikvæð um 51,3 ma.kr.
- Tekjur ríkissjóðs fyrir fjármagnsliði námu 200,2 ma.kr. samanborið við 182,9 ma.kr. árið áður og aukast um 17,3 ma.kr. eða 9,5% samanborið við sama tímabil fyrra árs.
- Tekjur ríkissjóðs af sköttum og tryggingagjöldum voru 189,6 ma.kr. og hækka um 9.2% frá fyrra ári.
- Tekjuskattar einstaklinga voru 60,2 ma.kr. og hækka um 17,5 ma.kr. milli ára eða 41%
- Virðiskaukaskattur skilaði 59,2 ma.kr. og hækkar um 6,5 ma.kr. eða 12% milli ára.
- Gjöld fyrir fjármagnsliði eru 240,3 ma.kr. sem er aukning um 40 ma.kr. eða 20% frá fyrra ári, að mestu vegna tilfærslugjalda sem leiðir af áhrifum Covid-19, s.s. vegna vinnumarkaðsmála.
- Fjárfestingar tímabilsins námu 6,7 ma.kr. samanborið við 4,2 ma.kr. á fyrra ári.
- Eignir ríkissjóðs námu í lok mars 2.475 ma.kr, skuldir námu 2.305 ma.kr. og eigið fé var 169 ma.kr.
- Handbært fé í lok mars var 497 ma.kr.
- Nettó staða langtímalána nam alls 1.051 ma.kr. og hækkaði um 145 ma.kr. frá árslokum 2020, þar af var útgáfa á skuldabréfum í evrum í janúar fyrir 116 ma.kr.
Sundurliðun á tekjum ríkis og gjöldum niður á málefnasvið, málaflokka og ríkisaðila kemur fram í mánaðaruppgjöri sem Fjársýsla ríkisins birtir. Uppgjörið í heild sinni er aðgengilegt á vefsíðu Fjársýslu ríkisins.