Skýrsla um skatttekjur, skattrannsóknir og skatteftirlit
Fjármála- og efnahagsráðherra hefur lagt fyrir Alþingi skýrslu um skatttekjur, skattrannsóknir og skatteftirlit.
Skýrslan var unnin á starfstíma síðasta þings á grundvelli skýrslubeiðni þingmanna. Í henni er fjallað um þau atriði sem þar var óskað eftir að tekin yrðu til umfjöllunar og er framsetning skýrslunnar í samræmi við það.