Hoppa yfir valmynd
3. september 2018 Utanríkisráðuneytið

Skóli í Aleppó opnaður á ný eftir aðstoð Íslendinga

Endurbyggði skólinn í Aleppó. Ljósmyndir: SOS Barnaþorpin á Íslandi. - mynd

Á vef SOS Barnaþorpanna á Íslandi segir að þær gleðifréttir hafi borist í síðustu viku að búið væri að opna á ný Al Thawra grunnskólann í Aleppó í Sýrlandi sem endurbyggður var fyrir fjármagn frá íslenskum styrktaraðilum. Kostnaður við endurbygginguna var um 12 milljónir króna og var hann fjármagnaður af SOS Barnaþorpunum á Íslandi með dyggum stuðningi einstaklinga hér á landi sem lögðu verkefninu lið með frjálsum framlögum.

Skólinn er í hverfinu Alsukkari en þangað hafa barnafjölskyldur flutt aftur eftir langan tíma á flótta í því hörmungarástandi sem þar hefur verið. Yfir 500 börn eru nú að hefja nám í skólanum sem er öllum börnum opinn, burtséð frá uppruna þeirra, trú eða afstöðu foreldra í stríðinu. Talið er að 50% barna á aldrinum 5-18 ára í austurhluta Aleppó hafi ekki stundað skólagöngu vegna stríðsástandsins.

Al Thawra skólinn er einn af mörgum sem hafa verið notaðir sem fangelsi eða skýli og sumir eru hreinlega orðnir að rústum. Ástandið er orðið stöðugra á sumum svæðum í Sýrlandi og yfirvöld vilja byggja samfélagið upp á ný.

Meðal einstaklinga á Íslandi sem studdu við verkefnið var ónefndur einstaklingur sem gaf eina milljón króna og framlag upp á hálfa milljón króna kom úr minningarsjóði Sigurðar Jónssonar sem lést árið 2015, aðeins 43 ára að aldri. Sigurði þótti afar vænt um börn og sérstaklega þau sem áttu erfitt uppdráttar og því vildu aðstandendur hans leggja þessu verkefni lið.

  • $alt
  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti
4. Menntun fyrir öll

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta