Skorað á stjórnvöld í Brúnei að afturkalla breytingar á refsilöggjöf
„Það er dapurlegt að enn þann dag í dag skuli hinsegin fólk sæta slíkum ofsóknum af hálfu stjórnvalda að lífi þess sé ógnað. Réttindi hinsegin fólks eru grundvallarþáttur í mannréttindastefnu Íslands og við leggjum mikla áherslu á þau í störfum okkar í mannréttindaráðinu. Þessi réttindi eru aldrei afstæð heldur gilda þau alltaf, alls staðar. Þess vegna hvorki getum við né megum láta þessar ákvörðun stjórnvalda í Brúnei átölulausa,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.
Ákvörðun stjórnvalda í Brúnei að hrinda í framkvæmd afar strangri útgáfu af svonefndum sjaría-lögum hefur verið fordæmd víða um heim frá því að tilkynnt var um hana um síðustu mánaðamót.
Ísland gerðist aðili að Equal Rights Coalition á síðasta ári en bandalag þetta var sett á laggirnar árið 2014 og eiga aðildarríkin það sameiginlegt að vilja standa vörð um og tryggja aukin réttindi LGBT+ einstaklinga í heiminum. Meira en fjörutíu ríki í Evrópu, Suður- og Norður-Ameríku og í Afríku hafa gerst aðilar að bandalaginu.
Í texta yfirlýsingar Equal Rights Coalition segir m.a. að allt fólk eigi rétt á að njóta mannréttinda, óháð þáttum eins og kynhneigð.