Nr. 16/2021 Úrskurður
KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA
Þann 21. janúar 2021 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 16/2021
í stjórnsýslumáli nr. KNU20110055
Kæra [...]
á ákvörðun
Útlendingastofnunar
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Þann 24. nóvember 2020 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Palestínu (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 9. nóvember 2020, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.
Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar hér á landi, í fyrsta lagi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og í öðru lagi á grundvelli 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. laga um útlendinga. Verði ekki fallist á það er þess krafist í þriðja lagi að umsóknin verði tekin til efnismeðferðar með vísan til 11. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, 65. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944 og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
II. Málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 22. júní 2020. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann 8. júlí 2020, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi. Við umsókn framvísaði kærandi dvalarleyfisskírteini frá Grikklandi með gildistíma frá 17. október 2019 til 16. október 2022 og flóttamannavegabréfi gefnu út af grískum stjórnvöldum með gildistíma til 23. desember 2024. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun m.a. þann 24. september 2020, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 9. nóvember 2020 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 10. nóvember 2020 og kærði kærandi ákvörðunina þann 24. nóvember 2020 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 2. desember 2020.
III. Ákvörðun Útlendingastofnunar
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Grikklands.
IV. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð kæranda vísar hann til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar um málavexti. Þar kemur m.a. fram að í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi kærandi greint frá erfiðleikum við að fá nauðsynlega heilbrigðisaðstoð í Grikklandi en hann glími við meðfæddan galla sem valdi erfiðleikum við þvaglát og sálrænum vandamálum. Þá hafi kærandi einnig glímt við þrálátan húðsjúkdóm. Kærandi hafi greint frá áföllum sem hann hafi orðið fyrir vegna pyndinga sem hann varð sjálfur fyrir og átaka í heimaríki. Kærandi hafi fengið fjárhagsaðstoð frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna en eftir að honum hafi verið veitt vernd, hafi þeim stuðningi verið hætt. Kærandi hafi ekki getað greitt fyrir húsnæði og þurft að hafast við í yfirgefnum byggingum ásamt öðru fólki. Kærandi hafi greint frá miklum fordómum í Grikklandi gagnvart flóttafólki og kvaðst hafa orðið fyrir aðkasti og tilefnislausum barsmíðum af hálfu lögreglu þegar hann hafi beðið í röð til að fá afhent skilríki. Jafnframt hafi kærandi greint frá því að dæmi séu um að fólk í Grikklandi hafi ekið bílum sínum á flóttafólk og kastað steinum í það. Þá hleypi lögreglan ekki flóttafólki inn á lögreglustöðina og það sé lögreglan sjálf sem beiti ofbeldi. Um aðstæður í Grikklandi vísar kærandi til skjals sem hann kallar fylgiskjal með greinargerð til Útlendingastofnunar. Vísar kærandi til fylgiskjalsins varðandi nánari umfjöllun um réttindi og aðstæður flóttafólks í Grikklandi.
Í greinargerð til kærunefndar vísar kærandi til greinargerðar hans til Útlendingastofnunar þar sem vísað hafi verið til úrskurðar kærunefndar í máli nr. KNU19110026 frá 20. maí 2020, þar sem nefndin lagði mat á aðstæður í Grikklandi og leit þá sérstaklega til þess fordæmalausa ástands sem þá ríkti vegna Covid-19 faraldursins. Í ákvörðun Útlendingastofnunar komi fram að nú hafi myndast þekking eftir fyrstu bylgju faraldursins og það sé mat Útlendingastofnunar að ríki heims séu nú mun betur í stakk búin til að takast á við áskoranir honum tengdum. Kærandi mótmælir þessari afstöðu Útlendingastofnunar og vísar til þess að niðurstaða kærunefndar í ofangreindum úrskurði hafi byggst á samverkandi áhrifum á stöðu kæranda í Grikklandi, áhrifa Covid-19 faraldursins á innviði Grikklands og þeirrar óvissu sem ríkti vegna faraldursins að öðru leyti. Kærandi vísar til þess að aðstæður í Grikklandi hafi ekki breyst til batnaðar, hvorki varðandi stöðu flóttafólks né varðandi áhrif Covid-19. Þá gerir kærandi athugasemd við þá staðhæfingu Útlendingastofnunar að ekkert bendi til þess að það ástand sem nú ríki komi til með að hafa teljandi áhrif á stöðu handhafa alþjóðlegrar verndar þegar takmörkunum verði aflétt. Kærandi telji að um sé að ræða víðtækar og íþyngjandi takmarkanir sem séu í gildi. Útlendingastofnun hafi borið að meta hvaða afleiðingar umræddar takmarkanir ásamt því neyðarástandi sem nú sé uppi í Grikklandi vegna Covid-19 og eldsvoðans í Moria flóttamannabúðunum muni hafa á lífsskilyrði kæranda komi til endursendingar. Kærandi vísar til þess að Útlendingastofnun geti ekki metið aðstæður með tilliti til getgáta um framtíðarhorfur, enda hafi stofnunin engar forsendur til þess að meta hvernig Covid-19 faraldurinn muni þróast þegar fram líði stundir eða hvaða langtíma áhrif hann muni hafa á lífsviðurværi flóttafólks í Grikklandi. Þá gerir kærandi athugasemd við þann rökstuðning Útlendingastofnunar um að vitneskja um Covid-19 faraldurinn í Grikklandi hafi aukist og vísar til þess að hann fái ekki séð að hvaða leyti það hafi bætt úr aðstæðum flóttafólks þar í landi eða styrkt stoðir heilbrigðiskerfisins sem nú sé að þolmörkum komið.
Kærandi gerir nokkrar athugasemdir við trúverðugleikamat Útlendingastofnunar á frásögn kæranda af aðstæðum í Grikklandi. Í ákvörðun Útlendingastofnunar hafi verið lagt til grundvallar að kæranda standi til boða fullnægjandi heilbrigðis- og félagsþjónusta í Grikklandi. Kærandi gagnrýnir þá fullyrðingu og vísar til heimilda sem reifaðar eru í fylgiskjali með greinargerð til Útlendingastofnunar og séu til vitnis um að aðgangur flóttafólks að heilbrigðis- og félagsþjónustu í Grikklandi sé ófullnægjandi og í mörgum tilvikum ekki til staðar. Þá telji kærandi að mótsagna gæti í ákvörðun Útlendingastofnunar þar sem stofnunin fallist á að aðgengi að húsnæði fyrir flóttafólk sé ábótavant. Jafnframt segi í ákvörðuninni að með lögum frá því í mars 2020 hafi grísk stjórnvöld stigið skref til að útiloka þá sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í landinu frá hvers konar stuðningi, s.s. fjár- og húsnæðisstuðningi. Þá fjallar kærandi um tilvísun Útlendingastofnunar til HELIOS verkefnisins og bendir á að hann muni ekki eiga rétt til aðstoðar á grundvelli þess auk þess sem verkefnið sé aðeins tímabundið úrræði sem hugsað sé til aðlögunar í örfáa mánuði. Kærandi telji að hann muni að öllum líkindum þurfa að hafast við á götunni í Grikklandi verði hann sendur þangað og möguleikar hans til félagslegrar aðstoðar séu nær engir. Kærandi bendi á að samkvæmt grískum lögum ættu þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi að njóta sama réttar og grískir ríkisborgarar til framfærslu og félagslegrar aðstoðar. Hins vegar sé langt því frá að allir þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi fái slíka aðstoð. Kröfur grískra stjórnvalda um skattnúmer, kennitölu og bankareikning fyrir alla fjölskyldumeðlimi, ítarlegar sannanir um búsetu o.s.frv. geri flestu flóttafólki ómögulegt að sækja um þessa aðstoð. Í hinni kærðu ákvörðun komi fram að kærandi hafi ekki vísað til neinna atvika sem bendi til þess að hann sé útilokaður frá þeim réttindum sem felist í dvalarleyfi hans eða þeirri félagslegu aðstoð sem hann eigi samkvæmt lögum tilkall til. Kærandi vísar til fylgiskjals með greinargerð hans þar sem fjallað er um ýmsar heimildir sem beri með sér að hann sé útilokaður frá löglegri atvinnu í Grikklandi. Þá komi hið mikla atvinnuleysi í Grikklandi verst niður á flóttafólki sem þegar glími við ýmis kerfisbundin vandamál og mismunun. Í hinni kærðu ákvörðun komi fram að kæranda standi til boða fullnægjandi heilbrigðisþjónusta í Grikklandi þó að aðgangshindranir séu til staðar þar sem skortur sé á úrræðum og plássum í heilbrigðiskerfinu en það eigi jafnt við um gríska ríkisborgara sem og aðra. Kærandi telur að þrátt fyrir að grísk lög mæli fyrir um óhindraðan aðgang flóttafólks að heilbrigðiskerfinu í Grikklandi sé raunverulegt aðgengi þessa hóps verulega takmarkað, m.a. vegna gríðarlegs niðurskurðar síðustu ár. Þá telur kærandi að komið sé í veg fyrir aðgengi flóttafólks að heilbrigðiskerfinu með stjórnsýslulegum aðgerðum þar sem gerðar séu kröfur um að flóttafólk framvísi gögnum sem ómögulegt sé að afla. Til þess að fá aðgang að heilbrigðiskerfinu þurfi flóttafólk að hafa kennitölu (AMKA) sem sé, að mati kæranda, nánast ómögulegt fyrir flóttafólk að fá útgefna. Kærandi telji frásögn sína í fullkomnu samræmi við opinberar og áreiðanlegar heimildir um stöðu flóttafólks í Grikklandi.
Þá fjallar kærandi um mat Útlendingastofnunar á viðkvæmri stöðu og einstaklingsbundnum aðstæðum hans. Kærandi hafi greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann ætti við heilsufarsvandamál að stríða sem valdi honum mikilli vanlíðan. Þá hafi kærandi jafnframt lagt fram fram heilsufarsgögn sem staðfesti frásögn hans. Kærandi hafi einnig greint frá atburðum í heimaríki sem hafi haft mikil áhrif á hann andlega. Þrátt fyrir það sé komist að þeirri niðurstöðu að kærandi sé ekki í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Útlendingastofnun hafi ekki minnst á framburð kæranda um að hann hafi sætt pyndingum í heimaríki sem hafi áhrif á andlega heilsu hans. Kærandi telji að rökstuðningi Útlendingastofnunar hafi því verið áfátt hvað mat á einstaklingsbundinni stöðu varðar og óljóst hvort heildarmat á aðstæðum kæranda hafi farið fram. Kærandi vísar til 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga auk 1. mgr. 25. gr. sömu laga. Kærandi bendir á að eðlilega þurfi slíkt mat að fara fram áður en Útlendingastofnun taki ákvörðun í málinu. Kærandi telji að um verulegan annmarka sé að ræða á málsmeðferð Útlendingastofnunar og fer fram á að úr honum verði bætt á kærustigi málsins, enda ljóst að andlegt og líkamlegt ástand hans geti ráðið úrslitum um það hvort íslensk stjórnvöld telji forsvaranlegt að senda hann aftur í þær ómannúðlegu aðstæður sem bíði hans í Grikklandi. Þá vísar kærandi til þess að hann hafi greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann hafi upplifað fordóma í Grikklandi. Í hinni kærðu ákvörðun sé þó talið að kæranda standi ekki ógn af kynþáttafordómum og mismunun þrátt fyrir frásögn hans um slíka lífsreynslu í Grikklandi. Kærandi vísar til alþjóðlegra skýrslna þar sem m.a. komi fram að dæmi séu um að lögreglan beiti flóttafólk og aðra viðkvæma hópa ofbeldi auk þess sem gríski umboðsmaðurinn hafi fellt sumt af þessu ofbeldi lögreglunnar undir pyndingar. Jafnframt hafi ofbeldi tengt kynþætti aukist árið 2019, sérstaklega árásir á flótta- og farandfólk sem sé tengt við uppgang öfgahægristefnu í landinu. Þá vísar kærandi til þess að Grikkland hafi undirritað en ekki fullgilt viðauka númer 12 við mannréttindasáttmála Evrópu um almennt bann við mismunun.
Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar hér á landi í fyrsta lagi með vísan til 2. mgr. 36. gr. um útlendinga og í öðru lagi með vísan til 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 42. gr. sömu laga. Kærandi vísar til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar varðandi ítarlegri umfjöllun um kröfur hans. Kærandi telur að ástæður flótta hans frá Grikklandi og tilvísaðar heimildir sem reifaðar hafi verið í greinargerð til kærunefndar og greinargerð til Útlendingastofnunar styðji kröfu hans um að mál hans skuli tekið til efnislegrar meðferðar. Kærandi krefst þess í þriðja lagi að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka mál kæranda til efnismeðferðar með vísan til þess að annað væri brot á jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga og 65. gr. stjórnarskrár. Kærandi vísar til aðferðarfræði Mannréttindadómstóls Evrópu við mat á ólögmætri mismunun. Kærandi telur í ljósi umfjöllunar um aðstæður flóttafólks í Grikklandi, frásagnar hans og sjónarmiða um jafnræði, að stjórnvöldum sé skylt að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar líkt og gert sé við umsóknir einstaklinga sem heyri undir Dyflinnarreglugerðina og komi hingað til lands frá Grikklandi. Kærandi telur, með tilliti til umfjöllunar í fyrrnefndu fylgiskjali með greinargerð til Útlendingastofnunar, að þær aðstæður sem bíði hans við endursendingu til Grikklands séu mjög sambærilegar aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Grikklandi.
V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.
Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins er kærandi handhafi alþjóðlegrar verndar í Grikklandi og hefur framvísað dvalarleyfisskírteini með gildistíma til 16. október 2022. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Aðstæður í Grikklandi
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:
- Annual report 2019 – Executive Summary (The Greek Ombudsman Independent Authority, 31. desember 2019);
- 2019 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 11. mars 2020);
· Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
· Asylum Information Database, Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, júní 2020);
· Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
· EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
- Freedom in the World 2020 – Greece (Freedom House, 5. júní 2020);
· Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
· Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
· Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
· Report on the Living Conditions of Beneficiaries of International Protection in Greece (Passerell, nóvember 2020);
· Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);
- State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
- Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the world (https://mdmgreece.gr/);
· Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;
· World Report 2021 – European Union (Human Rights Watch, 13. janúar 2021);
· Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 21. janúar 2021) og
· Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 21. janúar 2021).
Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.
Samkvæmt skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá því í júní 2020 eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu undir sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt fyrrnefndri skýrslu hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig getur verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta á jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu. Auk þess hefur útgáfa kennitalna (AMKA) falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd í Grikklandi fengu allir umsækjendur um alþjóðlega vernd svokallað AMKA eða kennitölu (g. Αριθμός Μητρώου Κοινωνικής Ασφάλισης) sem veitti þeim m.a. aðgang að heilbrigðiskerfinu. Í janúar 2020 breyttust skilyrði fyrir útgáfu kennitölu (AMKA) og fá umsækjendur um alþjóðlega vernd nú útgefin ákveðin heilbrigðisþjónustunúmer (g. Προσωρινός Αριθμός Ασφάλισης και Υγειονομικής Περίθαλψης Αλλοδαπού) sem er tímabundið úrræði, meðan þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd fá útgefna kennitölu (AMKA) sem telst varanlegt úrræði. Þegar umsækjandi hlýtur alþjóðlega vernd í Grikklandi verður heilbrigðisþjónustunúmerið óvirkt mánuði eftir að viðkomandi hlýtur dvalarleyfi. Einstaklingar geta þá í kjölfarið sótt um kennitölu (AMKA) í næstu þjónustumiðstöð. Til að sækja um kennitölu (AMKA) þurfa einstaklingar að framvísa dvalarleyfi eða ferðaskilríkjum og staðfestingu á heimilisfangi.
Í skýrslu ECRE kemur fram að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum og yfirfullum íbúðum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Þá hafi í mars 2020 verið kynntar lagabreytingar á útlendingalöggjöfinni í Grikklandi sem kveða á um að þegar ákvörðun um að veita alþjóðlega vernd liggi fyrir skuli draga úr fjár- og húsnæðisstuðningi. Handhafar alþjóðlegrar verndar sem dvelja í svokölluðu ESTIA kerfi eða öðrum úrræðum, þar með talið hótelum og íbúðum, er skylt til að yfirgefa þau innan 30 daga. Þó eru undantekningar frá þessari reglu, sérstaklega þegar um er að ræða fólk sem glímir við alvarlegan heilsubrest. Í skýrslu Passerell frá því í nóvember 2020 kemur fram að félagasamtök bjóði upp á gistiúrræði fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi en langur biðlisti sé eftir plássi þar og barnafjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu gangi fyrir.
Þá kemur fram í skýrslu ECRE að einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Þær félagslegu bætur sem í boði eru í Grikklandi eru t.d. bætur fyrir fjölskyldur (e. Family allowance) en skilyrði fyrir slíkum bótum er að sýnt sé fram á tíu ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi. Þá veita grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar, sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk (g. Κοινωνικό Επίδομα Αλληλεγγύης, KEA). Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði; þeir þurfa m.a. að hafa kennitölu, skattnúmer (AFM), gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir að leggja fram ýmis gögn, m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Samkvæmt framangreindri skýrslu er erfitt að uppfylla skilyrðin. Þá eru engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði í reynd. Jafnframt séu engin sérúrræði til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga. Samkvæmt skýrslu ECRE hafa einstaklingar með alþjóðlega vernd aðgang að atvinnumarkaðnum undir sömu skilyrðum og ríkisborgarar Grikklands. Ekki er þörf á sérstöku atvinnuleyfi. Atvinnuleysi er hins vegar mikið í landinu og samkeppni við grískumælandi einstaklinga ásamt erfiðleikum við að fá skattnúmerið útgefið dregur úr atvinnumöguleikum handhafa alþjóðlegrar verndar. Samkvæmt rannsókn frá 2018 hafi þeir flóttamenn sem hafi verið með atvinnu þar í landi venjulega verið í óskráðu starfi sem leiðir m.a. til þess að þeir hafi ekki aðgang að almannatryggingakerfinu. Mikill meirihluti einstaklinga með alþjóðlega vernd og umsækjendur reiða sig á dreifingu matvæla, muna og fjárhagsaðstoð við grunnþörfum sínum. Þetta leiðir oft til þess að einstaklingar fari út í ólöglega tekjuöflun sem hindrar þar með aðlögun þeirra að samfélaginu. Í skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafi mætt erfiðleikum við að fá útgefið skattnúmer (g. Αριθμός Φορολογικού Μητρώου, AFM), hjá grískum stjórnvöldum. Útgáfa skattnúmers er grundvöllur þess að geta lifað og starfað löglega á Grikklandi og þess að einstaklingar geti sótt aðstoð og réttindi hjá grískum stjórnvöldum. Skattnúmerið er forsenda þess að geta sótt um félagslega aðstoð, til að vinna hvort sem er sem starfsmaður hjá öðrum eða að hefja eigin rekstur og til þess að gera samninga um leigu á húsnæði. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd þurfa einstaklingar sem hyggjast sækja um skattnúmer að framvísa ferðaskilríki eða dvalarleyfi og staðfestingu á heimilisfangi eða heimilisleysi. Þar sem umsóknarferlið fer einungis fram á grísku geta umsækjendur leitað eftir aðstoð hjá endurskoðendum eða frjálsum félagasamtökum.
Vegna heimilda um þessa erfiðleika varðandi útgáfu skattnúmera sendi kærunefnd útlendingamála á síðasta ári fyrirspurn til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og óskaði eftir upplýsingum um hvort stofnuninni væri kunnugt um hindranir sem einstaklingar með alþjóðlega vernd í Grikklandi kunni að mæta við að verða sér úti um slíkt skattnúmer. Í svari Flóttamannastofnunnar, dags. 10. mars 2020, kemur m.a. fram að almennt þurfi að sækja um skattnúmerið í eigin persónu hjá viðeigandi stjórnvaldi, umsóknina þurfi að fylla út á grísku og sýna þurfi skilríki s.s. dvalarskírteini. Þá sé engin túlkaþjónusta í boði en öll málsmeðferðin, bæði skriflega umsóknin og samskipti við stjórnvöld, þarf að fara fram á grísku. Starfsmenn grískra yfirvalda séu ekki skyldugir skv. lögum til þess að tala ensku í störfum sínum eða vinna með gögn sem ekki séu skrifuð eða þýdd yfir á grísku. Niðurstaða umsóknar um skattnúmer sé því undir því komin að starfsmaðurinn sé viljugur til samvinnu og að umsækjandi um skattnúmer hafi grunn í ensku eða grísku tungumáli. Þá kom fram í svari Flóttamannastofnunar að það væri mismunandi og oft misvísandi framkvæmd milli þeirra stjórnvalda sem sjá um útgáfu númeranna. Framkvæmdin færi í raun eftir því hversu vant starfsfólkið væri að þjónusta þennan hóp. Þá geti viðmót og vilji starfsmanna stjórnvaldsins haft áhrif á niðurstöðu varðandi útgáfu skattnúmers og þeir umsækjendur sem njóti aðstoðar frjálsra félagasamtaka eða lögmanna í umsóknarferlinu séu líklegri til þess að fá jákvætt svar við umsókn sinni. Þá hafi komið upp vandamál hjá þessum hópi varðandi það að tengja skattnúmer hjóna saman. Grísk skattayfirvöld hafi árið 2018, gefið út fyrirmæli um ítarlegri skoðun á skilríkjum erlendra umsækjenda um skattnúmer, sem hafi í kjölfarið leitt til þess að biðtími eftir niðurstöðu lengdist töluvert hjá þeim hópi. Flóttamannastofnun, gríski umboðsmaðurinn og frjáls félagasamtök hafi í kjölfarið ítrekað lýst yfir áhyggjum vegna þessa og því hafi grísk stjórnvöld brugðist við með breytingu á framkvæmd, en þó þurfi enn frekari aðgerðir. Þá sé óvíst hver staðan sé varðandi þann málafjölda sem enn bíði afgreiðslu af þessum sökum.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2019 kemur fram að dæmi eru um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggja bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur eru ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsakar meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar eru á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla er tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem eru þolendur glæpa og tala hvorki né skilja grísku eiga rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilja.
Í skýrslu ECRE kemur fram að handhöfum alþjóðlegrar verndar á Grikklandi sé veitt dvalarleyfi til þriggja ára. Þá fá einstaklingar sem hafa hlotið viðbótarvernd, dvalarleyfi til eins árs sem sé hægt að framlengja að þeim tíma loknum til tveggja ára og sama gildir um þá sem hafa fengið dvalarleyfi á grundvelli mannúðarástæðna. Þá kemur fram að umsókn um framlengingu dvalarleyfis skuli fara fram ekki seinna en 30 dögum áður en leyfið rennur út. Þrátt fyrir að umsókn um endurnýjun dvalarleyfis berist of seint kemur fram að það eitt og sér hafi ekki í för með sér að umsókninni verði synjað. Frá árinu 2017 hefur umsókn um endurnýjun farið fram í gegnum tölvupóst. Þeir einstaklingar sem ekki hafa aðgang að tölvu eða eru ólæsir hafa því mætt hindrunum við að fá endurnýjun á dvalarleyfum sínum. Þá kemur fram í skýrslunni að yfirleitt taki um einn og hálfan mánuð að fá dvalarleyfi endurnýjað þó dæmi séu um að endurnýjun hafi tekið um sex mánuði. Við endurnýjun fer fram skoðun á sakaskrá einstaklingsins. Ef dvalarleyfi rennur út á meðan einstaklingur bíður eftir endurnýjun á hann rétt á að fá útgefið vottorð sem gefur til kynna að hann hafi sótt um endurnýjun og er gilt í fjóra mánuði. Dæmi eru þó um að handhafar slíks vottorðs hafi átt í erfiðleikum með að nálgast tiltekin félagsleg réttindi eins og fjárhagsaðstoð frá hinu opinbera. Þá sé vinnumálastofnun Grikklands (e. Manpower Employment Organization (OAED)) gjarnan treg til að taka á móti slíkum vottorðum þar sem vottorðin eru m.a. án myndar af einstaklingnum og ekki vatnsmerkt.
Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda
Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...] ára einstæður karlmaður. Í samskiptaseðli frá heilsugæslu Keflavíkur, dags. 7. ágúst 2020, kemur fram að kærandi sé með útbrot á líkama. Kæranda hafi áður verið ávísað lyfjum vegna þessa en þau ekki borið árangur. Kæranda hafi því verið vísað til húðlæknis. Samkvæmt nótu frá Húðlæknastöðinni Smáratorgi, dags. 2. október 2020 hafi kærandi verið skoðaður af lækni vegna húðsjúkdómana folliculitis og hyperpigmentation. Í samskiptaseðli frá heilsugæslu Keflavíkur, dags. 9. október 2020, kemur fram að kærandi sé með meðfæddan galla í þvagfærum sem lýsi sér í auka opi á þvagrás (e. hypospadia) og skurðaðgerð myndi bæta líf hans. Kærandi hafi því fengið tilvísun til þvagfæraskurðlæknis. Þá greindi kærandi m.a. frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann ætti í erfiðleikum með svefn vegna húðvandamála sinna auk þess sem ofangreind heilsufarsvandamál og atburðir í heimaríki hefðu áhrif á andlega heilsu hans.
Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 24. september 2020 um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda, sem nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns á vegum Rauða kross Íslands, jafnframt leiðbeint með tölvupósti kærunefndar, dags. 4. janúar 2021, um framlagningu frekari gagna í málinu. Engin frekari gögn bárust og ekki var óskað eftir frekari fresti til að leggja fram gögn. Með vísan til framangreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar hans geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.
Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra, trúverðugra, nægilega nákvæmra og uppfærðra upplýsinga, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.
Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Þar kemur fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja á til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður eru ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.
Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og kærandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst kærandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að kærandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og kærandi, verði fyrir slíkri meðferð.
Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Þá skuli líta til þess, í tilviki þungunar, hvort umsækjanda standi til boða fullnægjandi fæðingaraðstoð í viðtökuríki. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til gagna frá heilbrigðisstarfsfólki sem sýna fram á slíkt og, telji kærunefnd að umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, hlutlægra og trúverðugra gagna sem sýna fram á að sú heilbrigðisþjónusta sem umsækjandi þarfnast sé ekki í boði í viðtökuríki.
Af 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar má jafnframt ráða að heilsufar umsækjanda hafi takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun að neðan.
Einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst, og m.a. sú aðstoð rakin sem hann hefur fengið hér á landi. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærandi hafi aðgang að grunnheilbrigðisþjónustu þar í landi. Í ljósi framangreindra upplýsinga um aðstæður í Grikklandi áréttar kærunefnd að ekki séu forsendur til annars en að leggja til grundvallar að kærandi geti leitað sér þjónustu þar í landi, en eins og áður hefur verið rakið eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi að lögum sambærilegan rétt á heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum, og ríkisborgarar Grikklands þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að nýta rétt sinn. Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Í því sambandi er sérstaklega vísað til þess að meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Að mati kærunefndar er heilsufar kæranda ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a. reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar.
Þá hefur kærandi greint frá því að aðstæður hans í Grikklandi hafi verið erfiðar, m.a. í ljósi skorts á félagslegri framfærslu, erfiðleika við að finna atvinnu og fordóma. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður í Grikklandi kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar í landi hafi heimild til að stunda atvinnu, hafi aðgang að húsnæðismarkaðnum og eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að sækja þá þjónustu, eins og áður sagði. Þótt skýrslur um aðstæður í Grikklandi bendi til þess að aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar þar séu um margt lakari en aðstæður þeirra hér á landi, m.a. m.t.t. inntaks félagslegrar aðstoðar og aðgangs að félagslegum húsnæðisúrræðum, er það mat nefndarinnar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að hann geti ekki borið sig eftir þjónustu og aðstoð sem hann á að lögum rétt á og þarf á að halda í Grikklandi.
Kærunefnd vill þá árétta að líkt og að framan greinir, og fram kom m.a. í úrskurðum kærunefndar frá 25. mars 2020 í málum nr. KNU19090042 og KNU20020034, KNU19110022 og KNU19110023 og KNU19110050 og KNU19110051, virðast vera ýmsar hindranir á möguleikum flóttamanna til þess að fá útgefið skattnúmer í Grikklandi, en númerið er, líkt og áður hefur komið fram, nauðsynlegt til þess að starfa löglega í landinu, sækja um félagslegar bætur og gera leigusamning um húsnæði. Það sé því grunnforsenda þess að geta framfleytt sér löglega í Grikklandi. Það er þó mat kærunefndar, m.a. með vísan til gagna sem kærunefnd aflaði sérstaklega frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, að þrátt fyrir að einstaklingar með alþjóðlega vernd geti mætt ýmsum hindrunum við umsókn og útgáfu skattnúmers þá bendi gögn og skýrslur um Grikkland ekki til þess að það sé þeim ómögulegt. Þá telur kærunefnd það sama eiga við um útgáfu kennitalna (AMKA) til flóttamanna, sem veitir þeim m.a. aðgang að heilbrigðisþjónustu í landinu. Í fyrrgreindum málum var það m.a. mat nefndarinnar að í ljósi aðgangshindrana að grunnþjónustu og lagalegum réttindum í Grikklandi, og þeirrar stöðu sem uppi var á þeim tíma vegna átaka við landamærin og fordæmalausrar stöðu vegna Covid-19 faraldursins, að ástæða hafi verið til að ætla að foreldrar með börn á framfæri sínu væru í verri aðstöðu en áður til að sækja sér réttindi sín, framfleyta fjölskyldu sinni og verða sér úti um húsnæði, og þar með tryggja grunnþarfir barnanna. Í því máli sem hér er til meðferðar, er kærandi einstæður, að mestu heilbrigður og vinnufær karlmaður sem kærunefnd telur ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að sé fær um að sækja sér þá þjónustu sem hann þarf á að halda í viðtökuríki, þ. á m. afla sér skattnúmers og kennitölu, þrátt fyrir þær aðgangshindranir sem geti verið til staðar.
Kærandi hefur borið fyrir sig að hann óttist um öryggi sitt í Grikklandi og að hann hafi orðið fyrir ofbeldi. Af framangreindum gögnum má ráða að flóttafólk hafi orðið fyrir ofbeldi í Grikklandi. Kærunefnd telur ljóst af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað ásjár grískra yfirvalda verði hann fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærandi um öryggi sitt geti hann leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða að hann geti vænst þess að staða hans, í ljósi sömu ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að aðstæður hans í viðtökuríki séu slíkar að önnur viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi.
Við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda hljóti efnismeðferð hér á landi hefur kærunefnd litið til þeirra aðstæðna sem hafa verið og eru uppi vegna Covid-19 faraldursins. Fjölmörg ríki hafa gripið til umfangsmikilla aðgerða til þess að sporna gegn útbreiðslu veirunnar. Hafa aðgerðirnar m.a falist í ferðatakmörkunum og ferðabönnum. Í því sambandi hafa mörg ríki sett á ferðatakmarkanir og mörg hver á einhverjum tímapunkti lokað fyrir endursendingar, bæði einstaklinga með alþjóðlega vernd og á grundvelli Dyflinnarsamstarfsins. Var það m.a. gert hér á landi yfir ákveðið tímabil en óvissa ríkir um það hvenær framkvæmd endursendinga verði komin í sama horf og áður en Covid-19 faraldurinn skall á. Samkvæmt upplýsingasíðu Johns Hopkins háskólans í Bandaríkjunum og vefsíðu Sóttvarnarstofnunar Evrópu hefur nýgengi Covid-19 smita í Grikklandi minnkað verulega undanfarnar vikur eftir nokkuð öran vöxt fram yfir miðjan nóvember en samkvæmt síðarnefndu vefsíðunni er nýgengi smita í Grikklandi síðustu 2 vikur með því lægsta í Evrópu. Yfirvöld í Grikklandi hafa gripið til umfangsmikilla aðgerða til að sporna við útbreiðslu veirunnar, m.a. með lokun landamæra, útgöngubanni á ákveðnum tíma dags, grímuskyldu á almenningsstöðum, vinnustöðum og almenningssamgöngum, banni við að ferðast innanlands nema vegna sérstakra ástæðna, landamæraskimun og sóttkví. Til að greiða fyrir áframhaldandi málsmeðferð og þjónustu til umsækjenda um alþjóðlega vernd hafa yfirvöld útlendingamála í Grikklandi (e. Asylum Services Offices) opnað rafrænan vettvang þar sem einstaklingar eiga þess kost að sækja um vernd. Hyggist einstaklingar sækja um vernd þurfa þeir að bóka viðtal í gegnum samskiptaforritið Skype. Skipulögð viðtöl við umsækjendur um alþjóðlega vernd fara þó fram með venjubundnum hætti og hafa aðrar ráðstafanir verið gerðar í tengslum við málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, þ. á m. viðkvæmra einstaklinga og umsókna um fjölskyldusameiningu. Jafnframt hafa stjórnvöld framlengt gildistíma á útrunnum dvalarleyfisskírteinum sjálfkrafa en ný dvalarleyfisskírteini er hægt að sækja með því að panta tíma fyrirfram hjá yfirvöldum útlendingamála. Þá hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna aðstoðað grísk stjórnvöld í baráttunni við veiruna, m.a. með því að veita aðstoð til flóttamanna og umsækjenda um alþjóðlega vernd í landinu. Hefur stofnunin m.a. veitt viðeigandi stuðning svo flóttafólk og umsækjendur um alþjóðlega vernd í Grikklandi hafi fullnægjandi aðgang að heilbrigðisstofnunum og annarri þjónustu. Eins og áður sagði hefur nýgengi smita fækkað verulega á síðustu vikum eftir fjölgun í haust. Kærunefnd hefur ekki forsendur til annars en að líta svo á að þær takmarkanir sem við líði eru vegna Covid-19 faraldursins séu tímabundnar. Í því sambandi lítur kærunefnd einnig til þess að Lyfjastofnun Evrópu hefur samþykkt notkun á tveimur tegundum bóluefna gegn veirunni sem veldur Covid-19 og að vænta megi að notkun fleiri bóluefna verði samþykkt á næstunni. Þá hefur bólusetning hafist í flestum aðildarríkjum Evrópusambandsins, þ.m.t. viðtökuríkinu.
Að mati kærunefndar bendir ekkert til þess að það ástand sem nú ríki, sem kærunefnd hefur ekki forsendur til að telja annað en tímabundið, komi til með hafa teljandi áhrif á stöðu kæranda þar í landi þegar takmörkunum verður aflétt.
Þá lítur kærunefnd einnig til þess að skv. 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga er Útlendingastofnun heimilt að fresta flutningi á umsækjanda ef það telst nauðsynlegt vegna sérstakra aðstæðna hans eða ómögulegt er að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.
Er það mat kærunefndar að tímabundnar takmarkanir á endursendingum til Grikklands geti ekki, eins og hér stendur á, leitt til þess að sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Vegna tilvísunar í greinargerð kæranda til úrskurðar kærunefndar í máli nr. KNU19110026 frá 20. maí sl., telur kærunefnd að þrátt fyrir að um sama viðtökuríki sé að ræða sé ekki unnt að jafna aðstæðum kæranda í þessu máli við stöðu kæranda í framangreindu máli. Í niðurstöðu úrskurðar kærunefndar í framangreindum úrskurði kemur m.a. fram að nefndin telji að neikvæðar afleiðingar Covid-19 faraldursins geti leitt til aðgangshindrana að þjónustu fyrir flóttamenn og umsækjendur um alþjóðlega vernd í Grikklandi. Var umsókn kæranda m.a. af þeirri ástæðu tekin til efnismeðferðar hér á landi. Á þeim tímapunkti sem framangreindur úrskurður var kveðinn upp ríkti mikil óvissa í heiminum um hver áhrif Covid-19 faraldursins yrðu á innviði ríkja og réttindi og aðstæður flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd. Sú óvissa var grundvallarforsenda þeirrar niðurstöðu kærunefndar að leggja fyrir Útlendingastofnun að taka mál hans til efnismeðferðar. Þá leit kærunefnd einnig til þeirrar framkvæmdar stofnunarinnar að taka sambærileg mál til efnismeðferðar á þessum tíma af þessum sömu ástæðum.
Kærunefnd telur að verulega hafi dregið úr óvissu sem til staðar var í maí sl. m.a. um áhrif faraldursins á innviði viðtökuríkisins og hefur kærunefnd hér að framan lagt einstaklingsbundið mat á væntanlegar aðstæður kæranda í viðtökuríkinu í samræmi við stöðu mála þar í landi eins og þær horfa við nú um stundir. Þó að faraldurinn hafi verið í uppsveiflu í Grikklandi fyrr í haust, eins og í flestum öðrum Evrópuríkjum, þá benda gögn ekki til þess að faraldurinn hafi haft þau áhrif þar í landi sem áður var talin hætta á. Kærunefnd telur með vísan til þeirra skýrslna og gagna sem nefndin hefur kynnt sér að ekkert bendi til þess að þjónusta til handhafa alþjóðlegrar verndar í Grikklandi hafi skerst á síðustu mánuðum vegna Covid-19 faraldursins þannig að það geti leitt til þess að taka eigi mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi. Þá lítur kærunefnd jafnframt til þess að með tilkomu bóluefnis sjái nú fyrir endann á þeim aðstæðum sem ríkt hafa undanfarna mánuði vegna Covid-19 faraldursins, hér á landi sem og annars staðar, þ. á m. í Grikklandi. Það er því mat kærunefndar að sú óvissa sem ríkti í vor og leiddi til þess að umsóknir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi voru teknar til efnismeðferðar sé ekki lengur til staðar og því sé ekki um sérstakar ástæður að ræða í málinu í skilningi. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og á grundvelli heildarmats á áhrifum Covid-19 faraldursins á aðstæður hans er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 24. september 2020 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 22. júní 2020.
Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.
Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið rétt að hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim, en með þeim skýra fyrirvara að dómar Evrópudómstólsins eru ekki bindandi fyrir íslenska ríkið.
Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar þeirra hafa ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og máli Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða er til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná háu alvarleikastigi til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er af yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort raunverulegum líkamlegum skaða eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr. og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallinn að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr. og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.
Í ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. 70. mgr. ákvörðunarinnar. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu, sbr. 71. mgr. ákvörðunarinnar. Málið varðaði flutning einstæðrar móður með tvö ung börn sem voru með viðbótarvernd til Ítalíu og komst dómstóllinn einróma að þeirri niðurstöðu að málsástæður hennar um að flutningur til Ítalíu væri brot á 3., 8. og 13. gr. mannréttindasáttmálans væri bersýnilega tilhæfulausar og að mál hennar væri af þeim sökum ekki tækt til meðferðar. Um inntak „sérstaklega sannfærandi mannúðarástæðna“ vísast til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N. gegn Bretlandi (nr. 26565/05), frá 27. maí 2008, og Sufi and Elmi gegn Bretlandi (nr. 8319/07 og 11449/07) frá 28 nóvember 2011 en dómarnir setja mjög háan þröskuld fyrir því að meðferð eða aðstæður teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans.
Í dómaframkvæmd Evrópudómstólsins er vísað til þess að lög Evrópusambandsins séu byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki deila með öðrum aðildarríkum þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að því gagnkvæma trausti á að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra grundvallarréttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. t.d. til hliðsjónar dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr., og Ibrahim o.fl. gegn Þýskalandi, C‑297/17, C‑318/17, C‑319/17 og C‑438/17, frá 30. apríl 2019, 83.-85. mgr.
Það er hins vegar ekki óhugsandi að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika tengdum aðbúnaði flóttamanna sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi, verði hann fluttur til þess ríkis, sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmálanum, sbr. t.d. til hliðsjónar dóm Evrópudómstólsins í máli N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/1021, frá 21. desember 2011, 81. mgr. Í ljósi þess, ef byggt yrði á því að sú forsenda að reglum sáttmálans sé fylgt af aðildarríkum sáttmálans sé óhrekjanleg yrði það ekki samrýmanlegt þeirri skyldu að túlka og beita íslenskum lögum til samræmis við grundvallarmannréttindi svo sem 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála ESB um grundvallarréttindi, og skiptir þar ekki máli hvort sú meðferð tengist flutningi umsækjanda til viðtökuríkis, aðbúnaði meðan á umsóknarferli stendur eða eftir að hann hefur fengið niðurstöðu í því ferli, sbr. til hliðsjónar N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr. og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Af þeim sökum hefur Evrópudómstóllinn talið að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök sýna fram á að raunveruleg hætta sé á að hann verði fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála ESB um grundvallarréttindi, verði hann fluttur til viðtökuríkis. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þessu alvarleikastigi er náð þegar opinbert afskiptaleysi stjórnvalda viðtökuríkis hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna þeirrar sérstaklega viðkvæmu aðstöðu sem hann kann að vera í, lendir, án tillits til óska hans eða persónulegra ákvarðana, í slíkri stöðu efnislegrar sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, svo sem fæði, hreinlæti, þaki yfir höfuðið, sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og einnig til hliðsjónar Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.
Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra, trúverðugra, nægilega nákvæmra og uppfærðra gagna, að kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. þau viðmið sem rakin voru hér að framan. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. til hliðsjónar Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 11. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr. og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.
Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki og til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og flutningur hans til viðtökuríkis leiði því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki telur kærunefnd jafnframt að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.
Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar
Svo sem fram hefur komið gerir kærandi ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, þ. á m. við umfjöllun stofnunarinnar um aðstæður þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi, við mat stofnunarinnar á stöðu kæranda og við umfjöllun stofnunarinnar um Covid-19 faraldurinn.
Kærandi gerir athugasemd við mat á sérstaklega viðkvæmri stöðu hans, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Af þessu tilefni vill kærunefnd árétta að ákvörðun um hvort umsækjandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga snýst um það hvort þörf sé á sérstökum stuðningi við umsækjanda í gegnum umsóknarferlið og á meðan á dvöl hans stendur hér á landi. Í 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur m.a. fram að við meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd skuli Útlendingastofnun tryggja, eins fljótt og kostur er, að fram fari, með aðstoð viðeigandi sérfræðinga, einstaklingsbundin greining á því hvort umsækjandi teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Sé hann í slíkri stöðu skal stofnunin meta hvort hann hafi einhverjar sérþarfir, t.d. þörf á tiltekinni heilbrigðisþjónustu. Þá er tekið fram í 2. mgr. sama ákvæðis að ákvæði IV., V. og VII. kafla stjórnsýslulaga um andmælarétt, um birtingu ákvörðunar, rökstuðning o.fl. og um stjórnsýslukæru og viðeigandi ákvæði I. og IX. kafla laga um útlendinga gilda ekki um ákvörðun um sérstaklega viðkvæma stöðu skv. 1. mgr. Skilgreining á stöðu skv. 1. mgr. hafi ekki önnur réttaráhrif en þau sem sérstaklega er getið í lögum eða reglugerð. Kærunefnd telur því ljóst að mat skv. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga fari fram hjá Útlendingastofnun, sé ekki kæranlegt til kærunefndar og hafi ekki önnur réttaráhrif en sérstaklega er getið um í lögum eða reglugerð. Jafnframt er ljóst að fyrir utan tilvísun til sérstaklegrar viðkvæmrar stöðu fylgdarlausra barna í 6. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga er hvergi vikið að réttaráhrifum þess að einstaklingur teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu á grundvelli 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd leggur þannig áherslu á að ákvörðun um hvort umsækjandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu er annað en mat á einstaklingsbundnum aðstæðum umsækjanda þó svo að þessi hugtök skarist nokkuð. Að því er varðar mat Útlendingastofnunar á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda tekur kærunefnd fram að kæranda var leiðbeint um framlagningu heilsufarsgagna við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun, en í viðtali hans var honum leiðbeint um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hann teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Við meðferð málsins hjá kærunefnd hefur kærandi auk þess fengið tækifæri til framlagningu frekari heilsufarsgagna í málinu og er það mat kærunefndar að mál kæranda hafi verið nægjanlega upplýst er varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við mat Útlendingastofnunar á þeim einstaklingsbundnu aðstæðum kæranda sem áhrif gætu haft á mat á því hvort rétt sé að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar hér á landi.
Kærandi telur að íslenskum stjórnvöldum sé þá skylt, skv. 11. gr. stjórnsýslulaga og 65. gr. stjórnarskrárinnar, að taka umsókn hans til efnismeðferðar.
Sú vernd sem felst í 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu á við alla einstaklinga sem fluttir eru frá aðildarríki sáttmálans til annarra landa, hvort sem grundvöllurinn er brottvísun, frávísun, framsal, eða flutningur á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Hins vegar er ljóst, eins og fjallað hefur verið um að ofan, að aðstæður kæranda, sem er handhafi alþjóðlegrar verndar í Grikklandi, eru ekki af því alvarleikastigi að þær nái þeim háa þröskuldi sem dómar Mannréttindadómstól Evrópu og Evrópudómstólsins hafa sett fyrir broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstólsins í Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og vísað var til hér að framan. Kærunefnd telur að aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd sem sendir eru aftur til Grikklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar og aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa vernd þar í landi séu almennt ekki sambærilegar. Við það mat vísar kærunefnd til fyrri umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi en þar kemur fram að þeir hafi hlotið rétt til dvalar í Grikklandi og njóta því, ólíkt þeim sem eru í umsóknarferli, sambærilegra réttinda og ríkisborgarar Grikklands, einkum hvað varðar aðgengi að atvinnumarkaði, félagsþjónustu og heilbrigðisþjónustu.
Kærunefnd áréttar sérstaklega í þessu samhengi að við meðferð mála hjá kærunefnd er ávallt horft til einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklingsins og aðstæðna í viðtökuríki við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að mál verði tekið til efnismeðferðar á grundvelli 2. eða 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Hvert mál er því skoðað í ljósi þeirra viðmiða sem nefndinni ber að fara eftir, hvort sem þau viðmið eiga stoð í íslenskum lögum eða alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins. Í þessu sambandi bendir kærunefnd á að nefndin hefur aldrei fengið til umfjöllunar ákvörðun Útlendingastofnunar þar sem einstaklingur sem sótt hefur um vernd í Grikklandi er endursendur þangað á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Nefndin hefur því ekki fjallað um hvort slík endursending sé ósamrýmanleg 2. eða 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða alþjóðlegum skuldbindingum ríkisins. Séu aðstæður sambærilegar, eins og talsmaður kæranda heldur fram, kann að vera ástæða fyrir Útlendingastofnun, að undangenginni ítarlegri skoðun á aðstæðum í Grikklandi, að endurmeta þá stefnu að senda ekki umsækjendur þangað á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Nefndin minnir jafnframt á að nokkur önnur aðildarríki Dyflinnarsamstarfsins hafa á síðustu árum endursent umsækjendur þangað á grundvelli nefndrar reglugerðar.
Með greinargerð kæranda til Útlendingastofnunar fylgdi skjal sem í greinargerð er kallað „Umfjöllun Rauða krossins á Íslandi um aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttafólks í Grikklandi“ og er frá september 2020. Skjalið ber með sér að vera útbúið af Rauða krossi Íslands, þeirri stofnun sem hefur með höndum talsmannaþjónustu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Í greinargerð er vísað til skjalsins eins og það sé sjálfstæð og hlutlæg heimild um aðbúnað flóttamanna í Grikklandi og lýsi staðreyndum en ekki röksemdum. Skjalið innheldur m.a. umfjöllun um aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Grikklandi og er að því leyti villandi og óviðkomandi því máli sem hér er til umfjöllunar sem fjallar um umsækjanda sem er með alþjóðlega vernd í Grikklandi. Þá er í upphafi skjalsins vísað á villandi hátt til hollensks dóms sem felldi úr gildi ákvörðun um endursendingu mæðgna til Grikklands. Skjalið er einnig haldið öðrum annmörkum sem rýra gildi þess. Í skjalinu er vísað til nokkurra áreiðanlegra heimilda alþjóðastofnanna og til ECRE, sem kærunefnd hefur einnig vísað til í sínum úrskurðum, en einnig til hagsmunasamtaka sem berjast fyrir auknum réttindum umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna. Þrátt fyrir að skjalið kunni að formi til að stafa frá samtökum sem telja sig hlutlaus og óháð, ber innihald skjalsins ekki með sér að vera hlutlæg umfjöllun um aðstæður í viðtökuríki heldur hluti af röksemdafærslu kæranda fyrir því að mál hans skuli tekið til efnismeðferðar hér á landi. Þýðing skjalsins fyrir málið tekur því mið af því.
Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun að öðru leyti og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Hefur kærunefnd skoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda.
Athugasemdir við greinargerð kæranda
Í greinargerð kæranda vísar talsmaður ítrekað til heimilda til stuðnings staðhæfingum sínum án þess að sú staðhæfing fái í raun stuðning í tilvísaðri heimild. Þetta á jafnt við um tilvísanir til ákvörðunar Útlendingastofnunar sem og til erlendra heimilda og er nokkuð útbreitt á meðal talsmanna umsækjenda. Kærunefnd telur brýnt að talsmaður vandi betur til verka til að draga úr hættu á að réttindi skjólstæðinga þeirra fari forgörðum vegna villandi framsetningar málsástæðna og röksemda fyrir þeim.
Frávísun
Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 22. júní 2020. Hann sótti um alþjóðlega vernd þann sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.
Samantekt
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.
Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd á grundvelli lokamálsliðar 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin, m.a. ef afleiðingar Covid-19 faraldursins muni vara lengur og verða alvarlegri en gera má ráð fyrir nú.
Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.
Úrskurðarorð
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Hjörtur Bragi Sverrisson
Bjarnveig Eiríksdóttir Þorbjörg Inga Jónsdóttir