Hoppa yfir valmynd
11. nóvember 2020 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 353/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 11. nóvember 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 353/2020

í stjórnsýslumáli nr. KNU20080002

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 4. ágúst 2020 kærði [...], kt. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. júlí 2020, um að synja honum um ótímabundið dvalarleyfi.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að honum verði veitt ótímabundið dvalarleyfi.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi fékk útgefið dvalarleyfi fyrir flóttamann þann 29. mars 2016 með gildistíma til 29. mars 2020. Kærandi sótti um ótímabundið dvalarleyfi þann 19. desember 2019. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. júlí 2020, var umsókninni synjað. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar útlendingamála þann 4. ágúst sl. Greinargerð kæranda barst þann 25. september sl. Þann 12. október sl. bárust frekari gögn frá kæranda.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar voru skilyrði fyrir útgáfu ótímabundins dvalarleyfis rakin, sbr. 58. gr. laga um útlendinga. Meðal skilyrða væri að útlendingur eigi ekki ólokið mál í refsivörslukerfinu þar sem hann er grunaður eða sakaður um refsiverða háttsemi, sbr. e-lið 1. mgr. 58. gr. laganna. Fram kom að samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, dags. 15. júlí sl., ætti kærandi ólokið mál í refsivörslukerfinu. Þar sem kærandi uppfyllti ekki fyrrnefnt skilyrði e-liðar 1. mgr. 58. gr. laga um útlendinga var umsókn hans um ótímabundið dvalarleyfi synjað.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð vísar kærandi til þess að umrætt mál varði væga líkamsárás en hann hafi neitað sök í málinu. Byggir kærandi á því að Útlendingastofnun þurfi að gæta meðalhófs og horfa til þess hvers konar brota kærandi sé sakaður um. Málið hafi verið í vinnslu í tæp tvö ár hjá lögreglu og þá verði að taka tillit til þess að einstaklingar í íslensku réttarkerfi séu taldir saklausir þar til sekt þeirra sé sönnuð, en um mikilvæg réttindi sé að ræða sem bundin séu í stjórnarskrá og mannréttindasáttmála Evrópu. Kærandi hafi ekki fengið tækifæri til þess að verjast ásökunum fyrir dómi og sé fráleitt að byggja höfnun á ótímabundnu dvalarleyfi á ósönnuðum atvikum. Vísar kærandi til þess að hann hafi rík tengsl við landið en engin tengsl við heimaríki. Í ljósi þess verði að taka tillit til aðstæðna hans og gæta meðalhófs.

Þann 12. október sl. bárust frekari gögn frá kæranda.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í 58. gr. laga um útlendinga er fjallað um ótímabundið dvalarleyfi. Samkvæmt 1. mgr. 58. gr. er heimilt að veita útlendingi ótímabundið dvalarleyfi hafi hann dvalist hér á landi samfellt síðustu fjögur ár samkvæmt dvalarleyfi sem getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis. Eins og að framan greinir hefur kærandi dvalið hér á landi samkvæmt dvalarleyfi sem getur verið grundvöllur ótímabundins leyfis síðan 29. mars 2016.

Frekari skilyrði fyrir veitingu ótímabundins dvalarleyfis eru m.a. tilgreind í stafliðum a-e í 1. mgr. 58 gr. laga um útlendinga. Samkvæmt e-lið er það skilyrði að útlendingur eigi ekki ólokið máli í refsivörslukerfinu þar sem hann er grunaður eða sakaður um refsiverða háttsemi.

Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, dags. 14. október 2020, á kærandi ekki lengur ólokið mál í refsivörslukerfinu. Þá hefur kærandi lagt fram bréf frá Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, dags. 6. október 2020, þar sem fram kemur að lögregla hafi hætt rannsókn í fyrrnefndu máli. Stendur e-liður 1. mgr. 58. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir að kæranda verði veitt ótímabundið dvalarleyfi. Í ákvörðun Útlendingastofnunar var ekki tekin afstaða til þess hvort kærandi uppfylli önnur skilyrði 58. gr. laganna. Verður ákvörðun Útlendingastofnunar því felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate is instructed to re-examine the appellant’s case.

 

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir

Gunnar Páll Baldvinsson                                                                                                         Hilmar Magnússon

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta