Vidushi Rana ný kjörræðiskona í Khatmandu.
Ný kjörræðiskona Íslands í Nepal, Vidushi Rana, tók störfum 3. júní 2024. Guðni Bragason sendiherra í Nýju-Delhí opnaði ræðisskrifstofuna og var viðstaddur viðhafnarmikla athöfn af þessu tilefni á Yak og Yeti-hótelinu. Heiðursgestir voru viðskipta- og iðnaðarráðherra Nepals, Damodar Bhandari, og varaforseti þings landsins, Indira Rana Magar. Vidushi Rana er þekktur iðnrekandi í landi sínu og forystukona í samtökum kvenna í viðskiptum. Hún fór fyrir um 60 manna hópi fólks úr viðskiptum, sem heimsótti Ísland í janúar 2024.