Bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar stækkar ört
Enn bætast nýjar heilbrigðisstéttir í hóp bakvarðasveitar heilbrigðisþjónustunnar sem fer ört stækkandi. Bakverðir voru orðnir tæplega 680 síðdegis í dag. Nemar í hjúkrunarfræði og læknisfræði hafa nú bæst í hópinn. Opnað hefur verið fyrir skráningu þeirra og hafa þegar 37 læknanemar skráð sig og 6 nemar í hjúkrunarfræði.
Yfirlit um fjölda einstaklinga sem hafa skráð sig í bakvarðasveitina eftir heilbrigðisstéttum:
Geislafræðingur |
18 |
Heilbrigðisgagnafræðingur |
8 |
Hjúkrunarfræðingur |
195 |
Lífeindafræðingur |
17 |
Lyfjafræðingur |
43 |
Lyfjatæknir |
17 |
Læknir |
78 |
Náttúrufræðingur í heilbrigðisþjónustu |
2 |
Sjúkraflutningamaður |
71 |
Sjúkraliði |
168 |
Sjúkraþjálfari |
11 |