Hoppa yfir valmynd
10. maí 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Eflir félagsstarf fatlaðs fólks í sumar

Hörður Sigurðsson, formaður Styrktarfélags lamaðra og fatlaða, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráherra, við undirritun samningsins.  - mynd

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur undirritað samning við Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra um sérstök sumarverkefni á vegum Styrktarfélagsins. Með samningnum leggur félags- og vinnumarkaðsráðuneytið alls til 56,5 milljónir króna sem nýtast til að styðja við og efla orlofsþjónustu félagsins í sumar. Markmiðið er að auka og styrkja félagslega samveru fullorðinna fatlaðra einstaklinga í kjölfar langvarandi einangrunar vegna Covid-19 en viðkvæmir hópar urðu fyrir meiri einangrun en fólk almennt.

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra mun bjóða fötluðu fólki á aldrinum 21-35 ára upp á sumardvöl þar sem boðið verður upp á ýmsa afþreyingu og samveru. Þá mun þeim einnig vera boðið upp á fjölbreytt félagsstarf á höfuðborgarsvæðinu í sumar þar sem þeim gefst tækifæri á að kynnast öðrum fólki í skemmtilegu umhverfi.

Fjöldi manns mun starfa í sumarverkefnum Styrktarfélagsins í sumar og er mikil ánægja með samstarfið frá báðum aðilum. Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur áður styrkt Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra til að skipuleggja afþreyingu fyrir fötluð börn og ungmenni sem viðbrögð við félagslegum áhrifum Covid-19.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags-og vinnumarkaðsráðherra: „Covid-19 faraldurinn hefur reynt mikið á fatlað fólk og því er sérstaklega ánægjulegt að styrkja skemmtilegt og fjölbreytt félagsstarf fyrir þau í sumar. Það hefur verið frábært að fá að kynnast því góða starfi sem Styrktarfélagið hefur unnið og ég hlakka til að fylgjast með öllu fjörinu í sumar.“

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta