Hoppa yfir valmynd
6. nóvember 2018 Utanríkisráðuneytið

Mannréttindaráðið: Ísland gerir kröfu til Sádí-Arabíu að stöðva stríðið í Jemen

Sameinuðu þjóðirnar í Genf - © Genève Tourisme - mynd

Fulltrúi Íslands bar upp sex tilmæli til stjórnvalda í Sádí-Arabíu í fyrirtöku vegna svokallaðrar allsherjarúttektar á stöðu mannréttindamála í landinu sem fram fór í Genf í gær, meðal annars að stöðva stríðið í Jemen og að fram fari rannsókn á morðinu á blaðamanninum Jamhal Khashoggi. Allsherjarúttekt á stöðu mannréttindamála, eða jafningjarýni eins og hún er einnig kölluð, er meðal grundvallarstoða starfsemi mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna og þurfa öll aðildarríki Sameinuðu þjóðanna að undirgangast hana með reglubundnum hætti.

Alls fjórtán ríki eru til umfjöllunar í yfirstandandi lotu allsherjarúttektarinnar. Sádí-Arabía var fyrst á dagskrá en önnur ríki sem koma til skoðunar að þessu sinni eru Kína, Mexíkó, Nígería, Malta, Senegal, Máritíus, Jórdanía, Malasía, Mið-Afríkulýðveldið, Mónakó, Belize, Tsjad og Lýðræðislega Lýðveldið Kongó.

Jafningjarýni Mannréttindaráðsins (Universal Periodic Review – UPR) felur í sér gerð allsherjarúttektar á stöðu mannréttindamála í sérhverju aðildarríki Sameinuðu þjóðanna. Slíkar úttektir eru gerðar á fimm ára fresti og af þeim loknum fer fram umræða í mannréttindaráðinu þar sem tækifæri gefst til að bera upp tilmæli til þeirra ríkja sem til skoðunar eru hverju sinni.

Auk kröfunnar um stöðvun stríðsins í Jemen og rannsóknina á morðinu á Khashoggi bar fulltrúi Íslands upp þau tilmæli í gær til stjórnvalda í Sádí-Arabíu að sleppa úr haldi þeim sem hafa verið handteknir fyrir að nýta tjáningarrétt sinn, þá voru stjórnvöld voru hvött til að tryggja kynjajafnrétti á öllum sviðum og ennfremur að stöðva ofbeldi gegn konum.

Jafningjarýnin er á dagskrá Mannréttindaráðsins þrisvar sinnum á ári og um fjórtán ríki eru tekin fyrir hverju sinni..

Ísland undirgekkst síðast jafningjarýni Mannréttindaráðsins árið 2016 og verður næst tekið fyrir árið 2021.

  • Mannréttindaráðið: Ísland gerir kröfu til Sádí-Arabíu að stöðva stríðið í Jemen - mynd úr myndasafni númer 1

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti
5. Jafnrétti kynjanna

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta