Námskeið um félagsþjónustu sveitarfélaga haldin um allt land
Tvö námskeið um félagsþjónustu sveitarfélaga
Haldin seinni hluta vetrar 2004
Fyrri daginn verða helstu viðfangsefni námskeiðsins, félagsleg ráðgjöf, málsmeðferð við framkvæmd félagsþjónustunnar, kynning á nýjum leiðbeiningum um reglur um fjárhagsaðstoð sveitarfélaga og störf úrskurðarnefndar félagsþjónustu. (tenging í námskeiðslýsingu) Ráðuneytið hefur nú þegar sent sveitarstjórnum hinar nýju leiðbeiningar ásamt greinargerð og ennfremur hefur félagsmálanefndum verið sent bréf um félagslega ráðgjöf.
Seinni daginn verður sérstaklega fjallað um starfsemi dagmæðra með félagsmálastjórum, félagsmálanefndum og daggæslufulltrúum þar sem starfsfólki heilsugæslustöðva, einkum við mæðraskoðun og ungbarnaeftirlit, verður boðin þátttaka. (tenging í námsskeiðslýsingu)
Tveir starfsmenn ráðuneytisins munu sjá um fræðsluna: Ingibjörg Broddadóttir deildarstjóri, sem hefur haft umsjón með framkvæmd félagsþjónustu sveitarfélaga um árabil og Björg Kjartansdóttir deildarsérfræðingur, höfundur skýrslu um starfsemi dagmæðra og fyrrum starfsmaður úrskurðarnefndar félagsþjónustu.
Námskeiðin og námsskeiðsgögn eru þátttakendum að kostnaðarlausu.
Dagskrá:
Námskeið um daggæslu barna í heimahúsum
Námskeið um félagsþjónustu sveitarfélaga