Hoppa yfir valmynd
15. júlí 2021 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 313/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 15. júlí 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 313/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21050004

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 4. maí 2021 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Íraks (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 19. apríl 2021, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar hér á landi aðallega á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Verði ekki fallist á það er þess krafist til vara á grundvelli 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.         Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi hinn 6. ágúst 2020. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, hinn 14. ágúst 2020, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi. Hinn 1. september 2020 var upplýsingabeiðni beint til yfirvalda í Grikklandi, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá grískum yfirvöldum, dags. 18. febrúar 2021, kom fram að honum hefði verið veitt réttarstaða flóttamanns hinn 11. janúar 2019 og að hann væri með gilt dvalarleyfi þar í landi til 13. janúar 2022. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. hinn 17. nóvember 2020, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað hinn 18. janúar 2021 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Hinn 18. mars 2021 var ákvörðun Útlendingastofnunar felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál kæranda til meðferðar á ný. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun hinn 8. apríl 2021. Með ákvörðun, dags. 19. apríl 2021, synjaði Útlendingastofnun öðru sinni að taka mál kæranda til efnismeðferðar. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda hinn 20. apríl 2021 og kærði kærandi ákvörðunina hinn 4. maí 2021 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd hinn 17. maí 2021.

Kærandi óskaði eftir því í greinargerð að fá að koma fyrir nefndina og tjá sig um efni málsins. Taldi kærunefnd ekki ástæðu til að gefa kæranda kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga. Að mati nefndarinnar, í ljósi gagna málsins, eru málsatvik með þeim hætti að viðtal við kæranda hefði ekki verið til þess fallið að varpa frekara ljósi á málið. Kærandi nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns og hefur fengið að koma sjónarmiðum sínum á framfæri í gegnum hann, m.a. í greinargerð og með framlagningu gagna.

III.          Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kæranda hafi verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Grikklands.

IV.          Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda er vísað til niðurstöðu fyrri úrskurðar kærunefndar í máli kæranda þar sem það hafi verið mat kærunefndar að fyrir ákvarðanatöku í máli kæranda hafi þurft að liggja fyrir upplýsingar um hvort að kærandi hefði kennitölu og skattnúmer í Grikklandi. Í kjölfar niðurstöðu kærunefndar hafi kærandi verið boðaður aftur í viðtal hjá Útlendingastofnun þar sem hann hafi verið spurður nánar um aðstæður sínar í Grikklandi. Þar hafi kærandi m.a. greint frá því að hann hafi sótt um skattnúmer en ekki náð að klára að fylla út umsóknina þar sem hann hafi ekki haft skráð lögheimili. Kærandi hafi verið óviss hvort hann hafi fengið útgefna kennitölu í Grikklandi. Kærandi hafi lýst því að honum hafi verið vísað frá þegar hann hafi leitað sér heilbrigðisþjónustu.

Kærandi vísar til greinargerðar sinnar til kærunefndar, dags. 30. nóvember 2020, hvað varðar málsástæður og athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar. Í greinargerð til Útlendingastofnunar gerir kærandi ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar og telur m.a. að stofnunin hafi ekki kynnt sér eða byggt á nýlegum og áreiðanlegum heimildum líkt og vísað hafi verið til í greinargerð kæranda til Útlendingastofnunar. Kærandi gerir einnig athugasemd við mat stofnunarinnar á aðgengi kæranda að heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu og húsnæði í Grikklandi. Kærandi vísar til þess að sjúklingar með langvinna sjúkdóma á borð við sykursýki eða nýrnavandamál hafi mætt erfiðleikum að viðhalda samfelldri meðferð við veikindum sínum þar sem lyf og útbúnaður séu oft ekki fáanleg.

Þá gerir kærandi athugasemd við mat Útlendingastofnunar á sérstökum ástæðum í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og vísar til þess að viðmið sem komi fram í reglugerð nr. 276/2018 séu nefnd í dæmaskyni og ekki sé um tæmandi talningu að ræða. Rauði krossinn hafi um margra ára skeið gert athugasemdir við mat Útlendingastofnunar á einstaklingsbundnum aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd. Þegar umsækjendur greini frá því að þeir séu þolendur pyndinga beri Útlendingastofnun að virkja ákveðna verkferla, sbr. t.d. úrskurður kærunefndar útlendingamála nr. KNU17090035 frá 5. desember 2017. Kæranda sé ekki kunnugt um að sérstakir verkferlar hafi verið virkjaðir í kjölfar frásagnar hans í málinu. Kærandi áréttar í þessu sambandi skyldu stjórnvalda að leggja ítarlegt mat á einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og vísar til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Kærandi sé með lífshættulegan sjúkdóm og þarfnist lyfjagjafar og eftirlits lækna. Í hinni kærðu ákvörðun sé hvergi að finna umfjöllun um það hvernig tryggt sé að kærandi fái þau lyf og þá heilbrigðisþjónustu sem hann þurfi á að halda í Grikklandi nema með almennum tilvísunum til heimilda sem stangist þó á við frásögn kæranda af aðstæðum þar í landi. Kærandi hafi greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann hafi reynt að sækja sér heilbrigðisþjónustu og verða sér úti um lyf, auk þess sem kærandi hafi greint frá áhyggjum af því að hafa ekki haft stjórn á sjúkdómi sínum og að hann hafi verið án insúlíns í fleiri mánuði í Grikklandi eftir að hann hafi hlotið vernd þar. Kærandi áréttar þá að hann sé án aðgengis að húsnæði í Grikklandi og eigi því ekki möguleika á öruggri geymslu á insúlíni sem geyma þurfi í kæli. Meðhöndlun lífshættulegs sjúkdóms hans sé því ótrygg þar í landi. Draga megi því þá ályktun að meðferð sem hann þurfi á að halda sé honum aðgengilegt hér á landi en standi honum ekki raunverulega til boða í viðtökuríki.

Kærandi mótmælir afstöðu Útlendingastofnunar hvað varðar mat á áhrifum Covid-19 faraldursins á aðstæður í Grikklandi og vísar til þess að niðurstaða í úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. KNU19110026 frá 20. maí 2020 hafi m.a. byggt á samverkandi áhrifum á stöðu kæranda í Grikklandi, áhrifa Covid-19 faraldursins á innviði Grikklands og þeirrar óvissu sem af faraldrinum leiði að öðru leyti. Ljóst sé að aðstæður í Grikklandi hafi ekki breyst til batnaðar frá því að fyrrnefndur úrskurður féll, hvorki varðandi stöðu flóttafólks í Grikklandi né hvað varðar áhrif Covid-19 faraldursins. Þá fjallar kærandi um úrskurði kærunefndar í málum nr. KNU20110009 og KNU20110005 frá 10. desember 2020 en kærandi sé ósammála niðurstöðu í fyrrgreindum úrskurðum.

Í greinargerð kæranda eru þá gerðar viðbótarathugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar. Kærandi gerir m.a. athugasemd við að fram komi í hinni kærðu ákvörðun að heimildir bendi ekki til þess að flóttamönnum sé gert að mæta með túlk með sér svo þeir eigi möguleika á að fá þjónustu. Kærandi vísar til tiltekinnar skýrslu sem renni stoðum undir fullyrðingu hans. Þá gerir kærandi athugasemd við mat Útlendingastofnunar á möguleikum hans að afla sér kennitölu og skattnúmers í Grikklandi. Kærandi telur að ekki hafi farið fram heildarmat á samverkandi áhrifum heimilisleysis kæranda í Grikklandi, þörf hans á sérhæfðri meðferð og lyfjagjöf, raunverulegu aðgengi hans að lífsnauðsynlegum lyfjum og heilbrigðisþjónustu í Grikklandi og stöðu hans sem einstaklings í sérstökum áhættuhópi vegna Covid-19.

Kærandi krefst þess að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar hér á landi með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 42. gr. sömu laga. Kærandi telur að aðstæður flóttafólks í Grikklandi séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu nr. 62/1994 auk samsvarandi ákvæða íslenskra laga. Endursending kæranda til Grikklands teljist vera brot á 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga og grundvallarreglu þjóðarréttar um bann við endursendingu (non-refoulement).

V.           Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi þann 11. janúar 2019 og hefur hann gilt dvalarleyfi þar í landi til 13. janúar 2022. Að mati kærunefndar telst sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi virk alþjóðleg vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2020 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 30. mars 2021);
  • Amnesty International Report 2020/21 – Greece (Amnesty International, 7. apríl 2021);

  • Annual report 2019 – Executive Summary (The Greek Ombudsman Independent Authority, 31. desember 2019);
  •  

  • Asylum Information Database, Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, 10. júní 2021);
  • Beneficiaries of international protection in Greece – Access to documents and socio-economic rights (Refugee Support Aegean, 22. mars 2021);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);

  • Freedom in the World 2020 – Greece (Freedom House, 5. júní 2020);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Report on the Living Conditions of Beneficiaries of International Protection in Greece (Passerell, nóvember 2020);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);

  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the world (https://mdmgreece.gr/);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;
  • Upplýsingasíða Refugee Info Greece (http://refugee.info/greece/, sótt 1. júlí 2021);
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 1. júlí 2021);
  • Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 1. júlí 2021) og
  • World Report 2021 – European Union (Human Rights Watch, 13. janúar 2021).

Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagsástand í Grikklandi hafi haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafi vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifi oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Samkvæmt skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá því í júní 2021 eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu með sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt fyrrnefndri skýrslu hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta eigi jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafi rétt til dvalar í ríkinu. Auk þess hafi útgáfa almannatrygginganúmera (AMKA) (áður nefnt kennitölur) falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt upplýsingasíðu Refugee Info Greece fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og handhafa verndar í Grikklandi og sem veitir upplýsingar á grísku, arabísku, farsi, urdu, frönsku, lingala/bantu, norður-kúrdísku og ensku hafi allir umsækjendur um alþjóðlega vernd fengið svokallað AMKA eða almannatrygginganúmer sem veitti þeim m.a. aðgang að heilbrigðiskerfinu. Í janúar 2020 hafi skilyrði fyrir útgáfu almannatrygginganúmera (AMKA) breyst og fái umsækjendur um alþjóðlega vernd nú útgefin tímabundin almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmer (PAAYPA), meðan þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd fái útgefið varanlegt almannatrygginganúmer (AMKA). Þegar umsækjanda sé veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi verði almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmerið óvirkt mánuði eftir að viðkomandi hljóti dvalarleyfi. Einstaklingar geti þá í kjölfarið sótt um varanlegt almannatrygginganúmer í næstu þjónustumiðstöð. Til að sækja um slíkt númer þurfi einstaklingar að framvísa dvalarleyfi eða ferðaskilríkjum og staðfestingu á heimilisfangi. Til að fá varanlegt almannatrygginganúmer gefið út sé nægilegt að sýna fram á heimilisfang í búðum eða í gistiskýli. Þá segir á upplýsingasíðunni að samkvæmt gildandi löggjöf séu allir aðilar í hinum opinbera heilbrigðisgeira skyldugir til að veita öllum fyrstu hjálp þegar nauðsyn beri til. Eigi allir rétt á að leita til sjúkrahúsa og fá ókeypis læknisþjónustu og lyf sem þeir þarfnist þrátt fyrir að viðkomandi hafi hvorki PAAYPA eða AMKA númer. Á upplýsingasíðunni er unnt að eiga í samskiptum við þjónustufulltrúa  á netspjalli í gegnum Facebook á áðurgreindum tungumálum. Á upplýsingasíðunni er einnig hægt að nálgast skjal á grísku sem  hlaða má niður þar sem þessi réttur til þjónustu fyrir alla er útskýrður.

 

Í skýrslu ECRE kemur fram að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði sé háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með heimild til dvalar í Grikklandi. Fá gistiskýli séu í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði sé til staðar sem einungis sé ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt geti reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin sé mikil og dæmi séu um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum og yfirfullum íbúðum við mjög bágar aðstæður. Eigi þetta einnig við um einstaklinga sem hafi verið sendir aftur til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Þá hafi í mars 2020 verið gerðar breytingar á útlendingalöggjöfinni í Grikklandi sem kveði á um að þegar ákvörðun um að veita alþjóðlega vernd liggi fyrir skuli draga úr fjár- og húsnæðisstuðningi. Handhöfum alþjóðlegrar verndar sem dvelji í úrræðum innan hins svokallaða ESTIA kerfi eða öðrum úrræðum, þar með talið hótelum og íbúðum, sé skylt að yfirgefa þau innan 30 daga eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd. Þó séu undantekningar frá þessari reglu, sérstaklega þegar um sé að ræða fólk sem glími við alvarlegan heilsubrest. Í skýrslu Passerell frá því í nóvember 2020 kemur fram að félagasamtök bjóði upp á gistiúrræði fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi en langur biðlisti sé eftir plássi þar og barnafjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu gangi fyrir.

Þá kemur fram í skýrslu ECRE að einstaklingar með alþjóðlega vernd eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Þær félagslegu bætur sem í boði séu í Grikklandi séu t.d. bætur fyrir fjölskyldur, en skilyrði fyrir slíkum bótum sé að sýnt sé fram á fimm ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi. Þá veiti grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar, sem búi undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk. Einstaklingar sem hyggist nýta sér úrræðið þurfi að uppfylla ýmis skilyrði; þeir þurfi m.a. að hafa kennitölu, skattnúmer (AFM), gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfi þeir að leggja fram ýmis gögn, m.a. framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búi í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfi þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búi. Samkvæmt framangreindri skýrslu er erfitt að uppfylla skilyrðin. Þá séu í reynd engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði. Jafnframt séu engin sérúrræði til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Samkvæmt skýrslu ECRE hafa einstaklingar með alþjóðlega vernd aðgang að atvinnumarkaðnum með sömu skilyrðum og ríkisborgarar Grikklands. Ekki sé þörf á sérstöku atvinnuleyfi. Atvinnuleysi sé hins vegar mikið í landinu og samkeppni við grískumælandi einstaklinga og erfiðleikar við að fá skattnúmer (AFM) útgefið dragi úr atvinnumöguleikum handhafa alþjóðlegrar verndar. Þessir erfiðleikar við að sækja sér atvinnu hafi leitt til þess að einstaklingar reyni að afla sér tekna með óformlegum og jafnvel ólöglegum leiðum sem hindri þar með aðlögun þeirra að samfélaginu. Samkvæmt rannsókn frá árinu 2018 hafi meirihluti þeirra flóttamanna sem þá hafi verið starfandi verið í óskráðu starfi. Þeir einstaklingar sem ekki starfi innan hins hefðbundna atvinnumarkaðar hafi ekki aðgang að almannatryggingakerfinu og vinni sér ekki inn atvinnutengd réttindi, s.s. atvinnuleysisbætur. Mikill meirihluti einstaklinga með alþjóðlega vernd og umsækjendur um vernd reiði sig því á fjárhagsaðstoð og dreifingu matvæla og muna af hálfu stjórnvalda og mannúðarsamtaka til þess að uppfylla grunnþarfir sínar. Í skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafi mætt erfiðleikum við að fá útgefið skattnúmer hjá grískum stjórnvöldum. Útgáfa skattnúmers sé grundvöllur þess að geta lifað og starfað löglega í Grikklandi og þess að einstaklingar geti sótt aðstoð og réttindi hjá grískum stjórnvöldum. Skattnúmerið sé forsenda þess að geta sótt um félagslega aðstoð, til að vinna hvort sem er sem starfsmaður hjá öðrum eða að hefja eigin rekstur, og til þess að gera samninga um leigu á húsnæði. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd þurfi einstaklingar sem hyggist sækja um skattnúmer að framvísa ferðaskilríki eða dvalarleyfi og staðfestingu á heimilisfangi eða heimilisleysi. Umsóknarferlið fari einungis fram á grísku en umsækjendur geti leitað eftir aðstoð hjá endurskoðendum eða frjálsum félagasamtökum.

Vegna heimilda um þessa erfiðleika varðandi útgáfu skattnúmera sendi kærunefnd útlendingamála árið 2020 fyrirspurn til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og óskaði eftir upplýsingum um hvort stofnuninni væri kunnugt um hindranir sem einstaklingar með alþjóðlega vernd í Grikklandi kunni að mæta við að verða sér úti um slíkt skattnúmer. Í svari Flóttamannastofnunnar, dags. 10. mars 2020, kemur m.a. fram að almennt þurfi að sækja um skattnúmerið í eigin persónu hjá viðeigandi stjórnvaldi, umsóknina þurfi að fylla út á grísku og sýna þurfi skilríki s.s. dvalarskírteini. Þá sé engin túlkaþjónusta í boði en öll málsmeðferðin, bæði skriflega umsóknin og samskipti við stjórnvöld, þurfi að fara fram á grísku. Starfsmenn grískra yfirvalda séu ekki skyldugir samkvæmt lögum til þess að tala ensku í störfum sínum eða vinna með gögn sem ekki séu skrifuð eða þýdd yfir á grísku. Niðurstaða umsóknar um skattnúmer sé því undir því komin að starfsmaðurinn sé viljugur til samvinnu og að umsækjandi um skattnúmer hafi grunn í ensku eða grísku. Þá kom fram í svari Flóttamannastofnunar að það væri mismunandi og oft misvísandi framkvæmd milli þeirra stjórnvalda sem sjái um útgáfu númeranna. Framkvæmdin færi í raun eftir því hversu vant starfsfólkið væri að þjónusta þennan hóp. Þá geti viðmót og vilji starfsmanna stjórnvaldsins haft áhrif á niðurstöðu varðandi útgáfu skattnúmers og þeir umsækjendur sem njóti aðstoðar frjálsra félagasamtaka eða lögmanna í umsóknarferlinu séu líklegri til þess að fá jákvætt svar við umsókn sinni. Þá hafi komið upp vandamál hjá þessum hópi varðandi það að tengja skattnúmer hjóna saman. Grísk skattayfirvöld hafi árið 2018, gefið út fyrirmæli um ítarlegri skoðun á skilríkjum erlendra umsækjenda um skattnúmer, sem hafi í kjölfarið leitt til þess að biðtími eftir niðurstöðu hafi lengst töluvert hjá þeim hópi. Flóttamannastofnun, gríski umboðsmaðurinn og frjáls félagasamtök hafi í kjölfarið ítrekað lýst yfir áhyggjum vegna þessa og því hafi grísk stjórnvöld brugðist við með breytingu á framkvæmd, en þó sé þörf á frekari aðgerðum til að bæta þetta ferli. Þá sé óvíst hver staðan sé varðandi þann málafjölda sem enn bíði afgreiðslu af þessum sökum.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2020 kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verði ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og kærandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst kærandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að kærandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og kærandi, verði fyrir slíkri meðferð. 

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Af 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar má jafnframt ráða að heilsufar umsækjanda hafi takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...] karlmaður. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi m.a. frá því að hann hafi orðið fyrir pyndingum í heimaríki og að hann telji að hann hafi fengið sykursýki í kjölfarið. Í málinu liggja fyrir ýmis gögn um heilsufar kæranda, m.a. frá Göngudeild sóttvarna, bráðamóttöku Landspítala og heilsugæslu Keflavíkur og Efstaleiti. Í gögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 9. september 2020, kemur fram að kærandi hafi verið með útbrot og kláða um allan líkama í tvo mánuði og að kærandi hafi greint frá því að hann væri greindur með sykursýki. Í gögnum frá heilsugæslu Keflavíkur, dags. 1. september 2020, kemur fram að kærandi hafi leitað á heilsugæslu vegna kláða á líkama og að hann hafi fengið ávísað lyfjum vegna hans. Í gögnum frá heilsugæslu Keflavíkur, dags. 14. september 2020, kemur fram að kærandi hafi komið með sjúkrabíl á heilsugæslu vegna meðvitundarleysis en hann hafi þá nýlega verið byrjaður að nota insúlín. Kærandi hafi fengið lyf og komið til meðvitundar. Hann hafi kvartað vegna höfuðverkjar hægra megin í höfði sem hafi horfið eftir að hann hafi fengið glúkósa. Þá kemur fram að kærandi hafi útskrifast við góða líðan. Samkvæmt gögnum frá Göngudeild húðlækninga, dags. 13. nóvember 2020, hafi kærandi komið samkvæmt tilvísun í skoðun vegna útbrota á húð og hafi þau verið meðhöndluð sem sýkt exem og hafi kærandi fengið ávísað lyfjum. Fram kemur í gögnum frá Göngudeild húðlækninga, dags. 24. nóvember 2020, að kærandi hafi mætt í endurkomu og hafi hann verið mun betri af kláða og útbrotum. Kærandi hafi fengið ráðleggingar um áframhaldandi meðferð og ávísað frekari lyfjum. Í gögnum frá Göngudeild húð- og kynsjúkdóma, dags. 20. janúar 2021, kemur fram að kærandi fengi enn kláðaköst um allan líkama sem kæmu og færu. Var staðfest að um kláðamaur væri að ræða og fékk kærandi leiðbeiningar vegna hans og ávísað kremi. Í gögnum frá heilsugæslunni Efstaleiti, dags. 29. janúar 2021, kemur fram að útbrot væru enn til staðar og að kærandi væri með mikinn kláða og óþægindi og að hann hafi fengið lyfseðil fyrir kremi.

Samkvæmt gögnum frá bráðamóttöku Landspítala, dags. 16., 17. og 18. nóvember 2020, leitaði kærandi á bráðadeild vegna þess að blóðsykur hans hafi mælst hár við heimamælingu og hafi kærandi greint frá því að hann hefði áhyggjur af því að lyfin væru ekki að virka á hann. Kærandi hafi fengið lyf og eftir dvöl á bráðamóttöku hafi blóðsykur hans lækkað. Þá hafi kærandi fengið ráðleggingar og hafi m.a. verið ráðlagt að leita til síns læknis til að endurmeta sykursýkismeðferð. Í gögnum frá heilsugæslunni Efstaleiti, dags. 20. nóvember 2020, kemur fram að kærandi hafi komið á heilsugæslu vegna sykursýkinnar og hafi hann fengið ráðleggingar vegna hennar og blóðsykur hjá honum mældur. Samkvæmt samskiptaseðli heilsugæslunnar Efstaleiti, dags. 15. desember 2020, hafi kærandi lýst blóði í hægðum og hægðatregðueinkennum. Kærandi hafi fengið ávísað lyfjum og beiðni í ristilspeglun. Samkvæmt samskiptaseðli innkirtla- og efnaskiptalækninga, dags. 1. og 14. desember 2020, hitti kærandi sérfræðing vegna lélegrar blóðsykursstjórnunar og fékk hann ýmsar ráðleggingar og kennslu t.a.m. um lyfjanotkun og matarræði. Samkvæmt gögnum frá bráðamóttöku Landspítala, dags. 15. febrúar 2021, var kærandi færður á bráðamóttöku vegna blóðsykursfalls. Fram kemur að kærandi hafi misst meðvitund og að hann hafi rekið höfuð sitt í við fall og fengið verk í kjölfarið. Kærandi hafi farið í blóðrannsókn og fengið lyf.

Af gögnum málsins má ráða að kærandi hefur notið þjónustu sálfræðings hér á landi. Samkvæmt tölvupóstum og gögnum frá umræddum sálfræðingi, hitti kærandi sálfræðing vegna tilfinningavanda dagana 8., 10., og 15. febrúar 2021. Í nótum frá sálfræðingnum kemur fram að kærandi hafi greint frá aðstæðum sínum í heimaríki og að hann vakni kvíðinn og hræddur á nóttunni. Hann óttist að fara út og vera á meðal fólks vegna Covid-19 faraldursins þar sem hann sé með sykursýki. Kærandi hafi þá fengið ráðleggingar vegna vanlíðanar. Fram kemur að kærandi mæti viðmiðum um áfallastreituröskun og að mikilvægt sé að hann fái meðferð við þeim vanda.

Einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst, og m.a. sú aðstoð rakin sem hann hefur fengið hér á landi. Kærandi hefur m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli hans vegna samverkandi áhrifa heimilisleysis kæranda í Grikklandi, þörf hans fyrir sérhæfða meðferð og lyfjagjöf, takmörkuðu aðgengi hans að lífsnauðsynlegum lyfjum og heilbrigðisþjónustu í Grikklandi og stöðu hans sem einstaklings í sérstökum áhættuhópi vegna Covid-19.

Aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi hafa þegar verið raktar. Eins og komið hefur fram hafa einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd að mestu sambærileg réttindi að lögum og grískir ríkisborgarar, m.a. hvað varðar grunnheilbrigðisþjónustu, félagslega aðstoð og rétt til að stunda atvinnu. Aftur á móti, líkt og að framan greinir og fram kom m.a. í úrskurðum kærunefndar frá 25. mars 2020 í málum nr. KNU19090042 og KNU20020034, KNU19110022 og KNU19110023 og KNU19110050 og KNU19110051, virðast vera ýmsar hindranir á möguleikum flóttamanna til þess að sækja réttindi sín, t. a. m. við að fá útgefið skattnúmer í Grikklandi, en númerið er, líkt og áður hefur komið fram, nauðsynlegt til þess að starfa löglega í landinu, sækja um félagslegar bætur og gera leigusamning um húsnæði. Það er því grunnforsenda þess að geta framfleytt sér löglega í Grikklandi. Þá hafi gögn bent til þess að útgáfa kennitalna (AMKA) til flóttamanna hafi falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu í landinu. Það er þó almennt mat kærunefndar, m.a. með vísan til gagna sem kærunefnd aflaði sérstaklega frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, að þrátt fyrir að einstaklingar með alþjóðlega vernd geti mætt ýmsum hindrunum við umsókn og útgáfu skattnúmers þá bendi gögn og skýrslur um Grikkland ekki til þess að það sé þeim ómögulegt. Þá hefur kærunefnd talið það sama eiga við um útgáfu kennitalna til flóttamanna. Í fyrrgreindum málum var það þó m.a. mat nefndarinnar að í ljósi aðgangshindrana að grunnþjónustu og lagalegum réttindum í Grikklandi, og þeirrar stöðu sem uppi var á þeim tíma vegna átaka við landamærin og fordæmalausrar stöðu vegna Covid-19 faraldursins, að ástæða hafi verið til að ætla að foreldrar með börn á framfæri sínu væru í verri aðstöðu en áður til að sækja sér réttindi sín, framfleyta fjölskyldu sinni og verða sér úti um húsnæði, og þar með tryggja grunnþarfir barnanna.

Í fyrri úrskurði kærunefndar nr. KNU21020005 frá 18. mars 2021 í máli kæranda var það mat kærunefndar að í ljósi þess að heilsufar kæranda væri þess eðlis að hann hefði þörf fyrir eftirfylgni og lyfjagjöf vegna sjúkdóms síns og þess að hann virtist vera í áhættuhópi á að veikjast alvarlega af völdum Covid-19 vegna veikinda sinna og vegna þeirra aðgangshindrana sem geti verið til staðar að heilbrigðisþjónustu í Grikklandi hafi verið sérstakt tilefni til að afla upplýsinga um hvort kærandi hefði kennitölu og skattnúmer í Grikklandi. Var það mat kærunefndar að nægilega skýrar upplýsingar um fyrrgreint hafi þurft að liggja fyrir áður en ákvörðun yrði tekin í máli kæranda og taldi kærunefnd rannsókn Útlendingastofnunar áfátt að því leyti. Var lagt fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til meðferðar á ný. Í framhaldsviðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 18. febrúar 2021, kvaðst kærandi ekki vera kunnugt um hvort hann hefði kennitölu í Grikklandi. Þá greindi kærandi frá því að hann hafi reynt að sækja um skattnúmer en ekki klárað umsóknina þar sem hann hafi ekki haft lögheimili. Verður framburður kæranda lagður til grundvallar í málinu hvað þetta varðar.

Í hinni kærðu ákvörðun fjallaði Útlendingastofnun um aðgengi flóttafólks að heilbrigðisþjónustu í Grikklandi. Er þar m.a. rakið að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi eigi rétt á heilbrigðisþjónustu til jafns við gríska ríkisborgara. Þá rakti Útlendingastofnun þau heilsufarsgögn sem lágu fyrir í málinu en þar er m.a. vikið að því að kærandi sé greindur með sykursýki. Þá kemur fram í ákvörðun Útlendingastofnunar að samkvæmt uppflettingu í lyfjabók Lyfju séu þau lyf sem kærandi noti með geymslutíma frá 4-6 vikum við stofuhita svo sérstakrar kælingar sé ekki þörf.

Í því máli sem hér er til meðferðar er kærandi einstæður karlmaður sem, samkvæmt framlögðum heilsufarsgögnum, hefur verið greindur með insúlínháða sykursýki og hefur margsinnis þurft að leita sér heilbrigðisþjónustu hér á landi vegna hennar. Af gögnum málsins má ráða að heilsufar kæranda sé þess eðlis að hann hafi þörf fyrir eftirfylgni og lyf vegna sjúkdóms síns og þar með greiðan aðgang að heilbrigðisþjónustu. Eins og rakið hefur verið var máli kæranda vísað til Útlendingastofnunar til frekari rannsóknar því nefndin taldi, í ljósi heilsufars kæranda, að sérstakt tilefni hefði verið til að afla upplýsinga um það hvort kærandi hefði kennitölu og skattnúmer í Grikklandi. Frekari rannsókn af hálfu Útlendingastofnunar, sem fólst í viðtali við kæranda, hafi þá leitt í ljós að honum væri ekki kunnugt um hvort hann hefði kennitölu í Grikklandi og að hann hann hafi reynt að sækja um skattnúmer en ekki klárað umsóknina þar sem hann hafi ekki haft lögheimili. Kærunefnd telur með vísan til þeirra aðgangshindrana sem geti verið til staðar að heilbrigðisþjónustu í Grikklandi og fjallað hefur verið um og þess álags sem Covid-19 faraldurinn hefur haft á heilbrigðiskerfið í Grikklandi, og í ljósi þess að upplýsingar um skattnúmer og kennitölu kæranda lágu ekki fyrir að fara hefði átt fram frekari rannsókn á heilsufari kæranda, t.a.m. hefði verið tilefni til að afla skýrari upplýsinga frá sérfróðum aðila um þau lyf sem kærandi þurfi á að halda og geymsluþol þeirra. Kærunefnd telur sig ekki vera í aðstöðu til að draga nægilega skýrar ályktanir af þeim læknisfræðilegu gögnum sem liggja fyrir í málinu um alvarleika veikinda kæranda og hvaða afleiðingar það hafi verði töf á því að hann fái viðeigandi þjónustu. Kærunefnd telur þá að Útlendingastofnun beri að meta sérstaklega hvort að rof á meðferð eða þjónustu sem kærandi þurfi á að halda kunni að hafa þær afleiðingar að það myndi teljast sérstakar ástæður til að taka málið til efnismeðferðar.

Meginmarkmið stjórnsýslukæru er að tryggja réttaröryggi borgara með því að gera þeim kleift að fá umfjöllun um mál sín á tveimur stjórnsýslustigum. Eins og að framan greinir telur kærunefnd að annmarkar hafi verið á rannsókn Útlendingastofnunar í máli kæranda. Kærunefnd telur jafnframt í ljósi aðstæðna að ekki sé unnt að bæta úr þeim annmörkum á kærustigi og því rétt að mál kæranda hljóti nýja meðferð hjá Útlendingastofnun.

Með vísan til þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar að fella beri ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.

Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er, að mati kærunefndar, ekki tilefni til umfjöllunar um aðrar málsástæður kæranda.

 


Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til meðferðar á ný.

 

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate is instructed to re-examine the case.

 

 

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

Þorbjörg I. Jónsdóttir                                                                                    Bjarnveig Eiríksdóttir

                                                                                             

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta