Þrjú íslensk gallerí meðal þátttakenda á Chart Art Fair 2018
Þrjú íslensk gallerí taka þátt í listamessunni Chart Art Fair 2018 sem að fram fer í Charlottenborg í næstu viku, BERG Contemporary, Gallery i8 og Hverfisgallerí, en á listamessuna er einungis boðið framúrskarandi norrænum galleríum.
Vegleg dagskrá er í boði, með viðburðum og fyrirlestrum. Við viljum vekja sérstaklega athygli á samnorræna verkefninu Now Nordic - Design Talk og sýningunni Now Nordic þar sem að Ísland hefur verðuga fulltrúa.