Hoppa yfir valmynd
17. ágúst 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 296/2023-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 296/2023

Fimmtudaginn 17. ágúst 2023

A

gegn

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun

Ú R S K U R Ð U R 

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 12. júní 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 7. júní 2023, um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi þáði húsnæðisbætur á árinu 2022. Með bréfi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 7. júní 2023, var kæranda birt lokauppgjör vegna ársins 2022 þar sem fram kom að hann hefði fengið ofgreiddar húsnæðisbætur, að fjárhæð 115.630 kr.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 12. júní 2023. Með bréfi, dags. 13. júní 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð barst 22. júní 2023 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 23. júní 2023. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að tilkynning Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um ofgreiddar húsnæðisbætur fyrir árið hafi komið honum gífurlega að óvörum, sértaklega eftir að hafa farið yfir launaseðla frá umræddu tímabili sem hann eigi að hafa fengið ofgreitt. Kærandi hafi talið að um mistök væri að ræða hvað varði fjölda mánaða sem hann ætti að endurgreiða og hafi því haft samband við stofnunina. Kærandi hafi boðist til þess að endurgreiða einn til tvo mánuði þar sem hann hafi fengið töluvert hærri laun í nýrri vinnu með mikilli yfirvinnu. Þeirri tillögu hafi verið hafnað með þeim rökum að þessir einn til tveir mánuðir hefðu einfaldlega hækkað meðallaun í öllum hinum mánuðunum og þar af leiðandi þyrfti kærandi að endurgreiða samtals fimm mánuði. Kæranda þyki erfitt að skilja þá ákvörðun þar sem honum hafi hvorki verið bent á þetta, né komi það skýrt fram þegar sótt sé um húsnæðisbætur. Einnig þyki kæranda erfitt að sjá rök í því að þurfa að endurgreiða bætur fyrir mánuð sem hann hafi fengið rúmar 200.000 kr. útborgað út af útborguðum launum hálfu ári seinna upp á rúmar 550.000 kr.

Kærandi vilji því kæra þessa ákvörðun til úrskurðarnefndar velferðarmála með þá von að hægt verði að komast að sanngjarnri niðurstöðu sem geri honum kleift að endurgreiða einn til tvo mánuði af ofgreiddum húsnæðisbótum en að fallið verði frá hinum þremur til fjórum mánuðum sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun krefjist endurgreiðslu á. Einnig vonist kærandi til þess að málið hjálpi öðru fólki í framtíðinni ef úrskurður falli honum í hag og að það hvetji Húsnæðis- og mannvirkjastofnun til þess að endurskoða reglugerðir eða hvetji stofnunina til að hafa þessi skilyrði skýrari þegar sóst sé eftir húsnæðisbótum.

III.  Sjónarmið Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar

Í greinargerð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar kemur fram að kærandi hafi skilað inn umsókn um húsnæðisbætur þann 19. apríl 2022 vegna leigu á húsnæðinu B. Umsókn kæranda hafi verið samþykkt þann 27. apríl 2022.

Bréf vegna endurreiknings húsnæðisbóta hafi verið sent kæranda þann 27. júní 2022. Endurreikningsbréf geymi uppfærða tekju- og eignaáætlun sem sé byggð á nýjustu fyrirliggjandi upplýsingum frá Skattinum og taki mið af heildartekjum, þar með talið fjármagnstekjum, heildareignum, ásamt orlofs- og desemberuppbótum. Kæranda hafi verið veitt færi á því í framangreindu bréfi að koma að athugasemdum ef hann teldi þær upplýsingar sem notaðar væru við útreikning húsnæðisbóta ekki endurspegla væntanlegar tekjur og eignir ársins 2022. Engar athugasemdir hafi borist stofnuninni frá kæranda í kjölfar áætlunar.

Þann 19. september 2022 hafi kæranda verið sent bréf þar sem fram komi að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefði fjallað um rétt hans til húsnæðisbóta og frestað afgreiðslu umsóknar þar sem tekjur og/eða eignir væru farnar að skerða húsnæðisbætur að fullu. Engar athugasemdir, upplýsingar eða gögn hafi borist í kjölfarið og því hafi umsókn um húsnæðisbætur verið hafnað á þeirri forsendu að tekjur kæranda væru farnar að skerða bætur að fullu. Engar athugasemdir hafi borist í kjölfar synjunar.

Þann 7. júní 2023 hafi kæranda verið birt lokauppgjör húsnæðisbóta vegna ársins 2022. Í bréfinu komi fram að eftir endurreikning húsnæðisbóta hafi komið í ljós að kærandi hefði á tímabilinu fengið ofgreiddar húsnæðisbætur sem næmu 115.630 kr. Kærandi hafi í kjölfarið haft samband við stofnunina með tölvupósti þar sem hann hafi haldið að misskilningur hefði átt sér stað við útreikning lokauppgjörs. Kæranda hafi verið svarað með tölvupósti þar sem honum hafi verið leiðbeint um að ekki væri hægt að taka út þann mánuð/mánuði sem hann hafi verið tekjuhár þar sem útreikningur færi eftir meðaltekjum á tímabili. Í kjölfarið hafi komið annar tölvupóstur frá kæranda þar sem hann hafi lýst því að hafa enga áætlun haft um að þiggja húsnæðisbætur fyrir þá mánuði sem hann hafi verið með hærri tekjur.

Í máli þessu sé deilt um lokauppgjör húsnæðisbóta vegna ársins 2022. Samkvæmt niðurstöðu lokauppgjörs hafi kærandi fengið ofgreiddar húsnæðisbætur árið 2022 vegna tekna. Af kærunni megi ráða að kærandi haldi því fram að lokauppgjör húsnæðisbóta sé ekki rétt miðað við fyrirliggjandi upplýsingar um tekjur kæranda. Samkvæmt 1. mgr. 25. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur megi endurskoða rétt til húsnæðisbóta hvenær sem er og endurreikna fjárhæð þeirra þannig að húsnæðisbætur verði í samræmi við þær breytingar sem hafi orðið á aðstæðum umsækjanda eða annarra heimilismanna.

Í 2. mgr. 25. gr. laga um húsnæðisbætur komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur og eignir næstliðins almanaksárs samkvæmt 17. og 18. gr. laga um húsnæðisbætur liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum skuli framkvæmdaraðili endurreikna fjárhæðir húsnæðisbóta vegna þess almanaksárs á grundvelli þeirra upplýsinga.

Í athugasemdum við 25. gr. frumvarpsins segi einnig að gert sé ráð fyrir að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun jafni áætluðum heildargreiðslum ársins á alla mánuði almanaksársins, eða eftir atvikum þá mánuði sem veiti rétt til húsnæðisbóta. Leiði endurreikningur samkvæmt 1. og 2. mgr. til breytinga á fjárhæð húsnæðisbóta skuli leiðrétta húsnæðisbætur samkvæmt 26. gr. en þar komi fram að hafi umsækjandi fengið hærri húsnæðisbætur en honum hafi borið á umræddu tímabili beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem hafi verið ofgreidd.

Í 17. gr. laga um húsnæðisbætur sé fjallað um áhrif tekna á grunnfjárhæðir húsnæðisbóta og frítekjumörk bóta miðað við árstekjur. Frítekjumörk miðað við einn heimilismann hafi verið 4.752.707 kr. fyrir árið 2022, sbr. 14. gr. reglugerðar nr. 1200/2016 um húsnæðisbætur, með síðari breytingum. Í máli þessu liggi fyrir miðað við upplýsingar frá Skattinum að heildartekjur kæranda hafi verið samtals 7.671.109 kr. fyrir árið 2022.

Í endurreikningsbréfum sé athygli vakin á því að það sé á ábyrgð umsækjanda að upplýsa stofnunina um allar þær breytingar sem verði á aðstæðum viðkomandi sem kunni að hafa áhrif á rétt til húsnæðisbóta, sbr. 3. mgr. 14. gr. laga um húsnæðisbætur. Í endurreikningsbréfum sé einnig vakin athygli á því að ef í ljós komi að umsækjandi hafi fengið ofgreiddar húsnæðisbætur beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið og gera tilhögun um endurgreiðslu, sbr. 26. gr. laganna og 22. gr. reglugerðarinnar. Kærandi hafi lýst því í fyrrnefndum tölvupósti til stofnunarinnar að það hefði ekki verið áætlun hans að þiggja húsnæðisbætur fyrir þá mánuði sem hann hafi verið tekjuhærri. Þrátt fyrir það hafi kærandi hvorki upplýst stofnunina um breyttar forsendur á tekjum, né sagt umsókn sinni um húsnæðisbætur upp á því tímabili. Í ljósi þess þurfi kærandi að bera hallann af því að hafa ekki sinnt upplýsingarskyldu sinni í samræmi við fyrrnefnda 3. mgr. 14. gr. laganna.

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun krefjist þess að hin kærða ákvörðun stofnunarinnar í málinu verði staðfest.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 7. júní 2023, um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta vegna ársins 2022, að fjárhæð 115.630 kr.

Í 8. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur kemur fram að húsnæðisbætur séu mánaðarlegar greiðslur sem greiðast til umsækjanda, sbr. þó 4. mgr. 21. gr., og skuli ákvarðaðar og reiknaðar út miðað við grunnfjárhæðir sem miðast við fjölda heimilismanna, sbr. 3. tölul. 3. gr., að teknu tilliti til tekna, sbr. 17. gr., eigna, sbr. 18. gr., og greiðsluþátttöku í húsnæðiskostnaði, sbr. 19. gr. Samkvæmt 14. gr. laga nr. 75/2016 er umsækjanda skylt að veita framkvæmdaraðila allar þær upplýsingar og gögn þeim til staðfestingar sem óskað er eftir og nauðsynlegar eru til að staðreyna rétt hans til húsnæðisbóta. Enn fremur er skylt að upplýsa um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans eða heimilismanna eða öðrum þeim atriðum sem kunna að hafa áhrif á rétt viðkomandi til húsnæðisbóta samkvæmt lögunum á þeim tíma sem hann fær greiddar húsnæðisbætur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um meðal annars tekjubreytingar á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.

Í 25. gr. laganna er kveðið á um endurreikning á húsnæðisbótum. Þar segir í 1. mgr. að rétt til húsnæðisbóta megi endurskoða hvenær sem er og endurreikna fjárhæð húsnæðisbóta þannig að húsnæðisbætur verði í samræmi við þær breytingar sem orðið hafa á aðstæðum umsækjanda eða annarra heimilismanna. Í 2. mgr. kemur fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur og eignir næstliðins almanaksárs samkvæmt 17. og 18. gr. liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum skuli framkvæmdaraðili endurreikna fjárhæðir húsnæðisbóta vegna þess almanaksárs á grundvelli þeirra upplýsinga. Í 3. mgr. kemur fram að leiði endurreikningur samkvæmt 1. og 2. mgr. til breytinga á fjárhæð húsnæðisbóta skuli leiðrétta húsnæðisbæturnar samkvæmt 26. gr. laganna. Þar segir í 1. mgr. að hafi umsækjandi fengið hærri húsnæðisbætur en honum bar á umræddu tímabili beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var.

Kærandi þáði húsnæðisbætur á tímabilinu apríl til ágúst 2022. Þegar umsókn kæranda var samþykkt í apríl 2022 var gert ráð fyrir að heildartekjur hans næmu að meðaltali 268.050 kr. á mánuði. Í júní 2022 var kæranda birtur nýr útreikningur húsnæðisbóta þar sem gert var ráð fyrir að heildartekjur hans næmu að meðaltali 404.559 kr. Við lokauppgjör ársins 2022 reyndust tekjur kæranda vera hærri en framangreindar tekjuáætlanir gerðu ráð fyrir sem leiddi til ofgreiðslu að fjárhæð 115.630 kr. Kæranda ber í samræmi við ákvæði 26. gr. laga nr. 75/2016 að endurgreiða þá fjárhæð. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta til handa kæranda staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 7. júní 2023, um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta A, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta