Hoppa yfir valmynd
24. maí 2024 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 564/2024 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 24. maí 2024 kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 564/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU23110039

 

Kæra […] og barns hennar á ákvörðunum Útlendingastofnunar

 

Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 6. nóvember 2023 kærði […], fd. […], ríkisborgari Venesúela, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 26. október 2023, um að synja henni og barni hennar, […], fd. […] (hér eftir A), ríkisborgara Venesúela, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi og barn hennar eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Venesúela og lagði fram umsóknir um alþjóðlega vernd fyrir sig og barn sitt 28. janúar 2023. Kvaðst kærandi vera að sækja um alþjóðlega vernd sökum efnahags og pólitísks ástands í heimaríki sínu. Hún kvaðst hafa farið frá Venesúela ásamt syni sínum í nóvember 2021 og farið til Sýrlands. Þaðan hafi þau farið 26. janúar 2023. Eiginmaður kæranda væri í Katar og væri væntanlegur til landsins en einnig ætti kærandi barn úr fyrra sambandi sem væri hjá föður sínum í Sýrlandi.

Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 12. og 21. júlí 2023 og greindi frá ástæðum flótta síns. Þar greindi kærandi frá því að hafa flutt ásamt fjölskyldu sinni til Sýrlands þegar hún hafi verið 14 ára gömul. Þegar kærandi hafi verið 17 ára gömul hafi fjölskylda hennar ákveðið að hún yrði að giftast tilteknum manni sem hún hafi síðan gert. Hann hafi viljað flytja til Venesúela svo kærandi hafi flutt með honum þangað og búið þar í sex ár. Kærandi hafi eignast barn með honum árið 2005. Eiginmaður kæranda hafi komið illa fram við hana og beitt hana andlegu og líkamlegu ofbeldi. Hún hafi ákveðið að skilja við hann árið 2010 en þá hafi þau verið flutt aftur til Sýrlands, og hafi hann fengið fulla forsjá yfir fimm ára barni þeirra. Kærandi hafi fengið að sjá barn sitt einu sinni til tvisvar í mánuði. Árið 2015 hafi kærandi kynnst öðrum manni og kvænst honum í Sýrlandi en þau hafi síðan flutt til Katar. Árið 2016 hafi þau eignast barn og hafi kærandi þá verið búsett í Sýrlandi þar sem hún hafi ekki fengið dvalarleyfi í Katar. Árið 2019 hafi hryðjuverk verið framið í almenningsgarði í Sýrlandi þegar kærandi og barn hennar hafi verið þar stödd og hafi hún í kjölfarið ákveðið að fara til Venesúela. Eiginmaður kæranda hafi ennþá verið búsettur í Katar árið 2019 og hafi kærandi viljað flytja þangað en eiginmaður hennar ekki verið áhugasamur um það. Í september eða október 2022 hafi kærandi farið til Katar og fengið útgefið dvalarleyfi vegna atvinnu. Eiginmaður kæranda hafi komið illa fram við kæranda og m.a. kúgað hana með því að hóta því að taka barn þeirra frá henni. Kærandi hafi loks þurft að fara aftur til Sýrlands þar sem barnið hafi ekki fengið útgefið dvalarleyfi í Katar. Kærandi hafi ekki viljað fara aftur til eiginmanns síns í Katar og því ákveðið að fara með barn sitt til Íslands og kvaðst vera í skilnaðarferli við eiginmann sinn. Kærandi óttist að hann komi til Íslands og taki barn þeirra frá henni enda hafi hann hótað því.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli barns kæranda kom fram að ekki væri tilefni til að taka viðtal við það með vísan til ungs aldurs þess og framburðar móður þess.

Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kæranda og barni hennar synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var brottvísað frá landinu og henni ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfi kærandi landið sjálfviljug innan frests sem henni hefði verið veittur yrði endurkomubann hennar fellt niður. Barni kæranda var brottvísað frá landinu. Kærandi kærði ákvarðanirnar til kærunefndar 6. nóvember 2023 og kærunefnd barst greinargerð kæranda ásamt fylgiskjölum 20. nóvember 2023. Viðbótargögn bárust 28. nóvember 2023, 21. febrúar 2024 og 12. mars 2024.

Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Í ljósi niðurstöðu nefndarinnar verður greinargerð kæranda ekki reifuð hér.

Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Lög um útlendinga og reglur stjórnsýsluréttar

Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 skal stjórnvald sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því og afla í því skyni nauðsynlegra gagna og upplýsinga. Þá mælir 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga fyrir um að Útlendingastofnun skuli afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga við meðferð mála. Mál telst nægilega rannsakað þegar þeirra upplýsinga hefur verið aflað sem nauðsynlegar eru til þess að hægt sé að taka efnislega rétta ákvörðun í því. Kröfur til rannsóknar í hverju máli ráðast af lagagrundvelli málsins og einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda, þ.m.t. þeim málsástæðum sem hann ber fyrir sig.

Í viðtali greindi kærandi frá því að eiginmaður hennar og faðir barns þeirra, B, hafi beitt hana líkamlegu og andlegu ofbeldi. Fyrrverandi eiginmaður hennar og faðir A hafi einnig beitt hana ofbeldi. Kærandi kvað eiginmann sinn hafa kúgað sig og hótað því að taka A af henni. Hafi hann m.a. hótað því í kjölfar þess að kærandi hafi farið fram á skilnað við hann.

Af lestri ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda verður ekki ráðið að meginmálsástæða kæranda, að hún eigi á hættu bæði líkamlegt og andlegt ofbeldi af hálfu barnsföður síns, hafi fengið fullnægjandi skoðun. Er í ákvörðuninni ítrekað vísað til trúverðugleikamats og komist að þeirri niðurstöðu að kærandi eigi ekki á hættu ofsóknir, ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða hafi ríka þörf fyrir vernd á grundvelli mannúðarsjónarmiða án þess að að trúverðugleiki hennar hafi verið dreginn í efa. Þá tók stofnunin ekki afstöðu til þess hvernig aðstæður kæranda horfðu við hugsanlegum rétti hennar til dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða þrátt fyrir að ákvæðið geri ráð fyrir því að konur sem sætt hafa ofbeldi eða greint frá erfiðri félagslegri stöðu, líkt og kærandi hefur gert, geti átt rétt til slíks dvalarleyfis. Í greinargerð kæranda til kærunefndar, dags. 19. nóvember 2023, kemur fram að 28. október 2023 hafi kærandi borist skilaboð frá eiginmanni sínum með hótunum. Þá hafi hann einnig sent henni myndir af áritun sinni til Venesúela og kvaðst dvelja þar til þess að ná syni þeirra frá henni.

Þá er óumdeilt að börn geti átt sjálfstæðan rétt til alþjóðlegrar verndar. Þegar um er að ræða börn í fylgd með foreldri hefur Útlendingastofnun afgreitt mál hvers einstaklings í sérstakri ákvörðun en í rökstuðningi í málum barna er um ákveðin atriði vísað til rökstuðnings með ákvörðun foreldris. Þegar þessi leið er farin verða ákvarðanir fjölskyldunnar í heild sinni þó ávallt að uppfylla reglur stjórnsýslulaga um rökstuðning og vera að öðru leyti settar fram á þann hátt að af lestri þeirra megi ráða að í reynd hafi farið fram skyldubundið mat á hagsmunum barnanna á viðhlítandi grundvelli.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar er einungis almenn umfjöllun um stöðu barna í Venesúela. Kærandi var ekki spurð sérstaklega út í aðstæður barns síns sem er statt hér á landi með henni með tilliti til frásagnar hennar. Ljóst er að fullt tilefni var í ljósi frásagnar hennar og ungs aldurs barnsins að spyrja kæranda í viðtali nánar út í aðstæður barnsins, t.d. hvort því stafaði ógn af föður sínum, hvort hann hafi beitt það ofbeldi eða hvort barnið hafi orðið vitni að ofbeldi föður síns gegn móður. Þá verður hvorki af lestri ákvörðunar kæranda né barns hennar ráðið að fram hafi farið einstaklingsbundið mat á aðstæðum barnsins með hliðsjón af þeirri málsástæðu að faðir þess hafi beitt kæranda ofbeldi.

Meginmarkmið stjórnsýslukæru er að tryggja réttaröryggi borgara með því að gera þeim kleift að fá umfjöllun um mál sín á tveimur stjórnsýslustigum. Framangreindar ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kæranda og barns hennar bera með sér að ekki hafi farið fram viðhlítandi mat á aðstæðum þeirra. Annmarkar voru á rannsókn stofnunarinnar þar sem aðstæður kæranda og barns hennar voru ekki skoðaðar með einstaklingsbundnum hætti með hliðsjón af aðstæðum í Venesúela. Ekki var tekin afstaða til þess hvort barn kæranda ætti á hættu ofbeldi við komu til Venesúela og var málsmeðferð Útlendingastofnunar og rökstuðningur ákvarðana í málum kæranda og barns hennar ennfremur ekki í samræmi við reglur stjórnsýsluréttar, m.a. 10. og 22. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Framangreindir annmarkar á málsmeðferð Útlendingastofnunar eru verulegir og er ekki unnt að bæta úr þeim á kærustigi og því rétt að mál kæranda og barns hennar hljóti nýja meðferð hjá Útlendingastofnun.

Með vísan til framangreinds eru hinar kærðu ákvarðanir felldar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsóknir kæranda og barns hennar um alþjóðlega vernd til nýrrar meðferðar. Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er ekki tilefni til umfjöllunar um aðrar málsástæður kæranda.

 

Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kæranda og barns hennar eru felldar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda og barns hennar til meðferðar á ný.

The decisions of the Directorate of Immigration in the cases of the appellant and her child are vacated. The Directorate is instructed to re-examine the cases.

F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga,

 

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum