Starf Rauða krossins kynnt fyrir öllum landsfélögum heims
Í vikunni kynnti Rauði krossinn á Íslandi vinnu sína í þágu verndar, jafnréttis og þátttöku án aðgreiningar á stórum netfundi sem Alþjóðasamband Rauða krossins og Rauða hálfmánans hélt fyrir landsfélög Rauða krossins um allan heim. Fundurinn var haldinn til að kynna nýja matsaðferð til að meta getu, samsetningu og skuldbindingu Rauða kross stofnana, félaga og deilda til að takast á við hvers kyns ofbeldi, mismunun og útilokun. Í frétt Rauða krossins segir að þessi vegferð Rauða krossins á Íslandi hafi aðeins verið möguleg með dyggum og öflugum stuðningi frá utanríkisráðuneytinu, bæði hvað varðar úttektina á starfinu hér heima og stuðninginn við alþjóðlega samstarfsaðila.
„Með því að fylgja niðurstöðum úttekta eftir verður hægt að tryggja að Rauða kross hreyfingin sé örugg hreyfing og opin öllum, þar sem reisn, aðgengi, þátttaka og öryggi er þungamiðja í allri starfsemi,“ segir í frétt Rauða krossins af fundinum.
Þar segir enn fremur að Rauði krossinn á Íslandi hafi öðlast dýrmæta reynslu og náð góðum árangri í þessari vinnu og því hafi félaginu verið boðið að deila reynslu sinni með alþjóðasambandinu öllu.
„Félagið hefur á undanförnum mánuðum nýtt matsaðferð alþjóðasambandsins til að framkvæma mat á því hvernig vernd, jafnrétti og þátttöku án aðgreiningar er sinnt í starfi félagsins, bæði gagnvart starfsfólki og skjólstæðingum, en matið tekur einnig á vörnum félagsins gegn kynferðislegri misneytingu, misnotkun og áreitni. Samhliða matinu fer einnig fram fræðsla fyrir starfsfólk og sjálfboðaliða. Á sama tíma hefur félagið stutt helstu alþjóðlegu samstarfsaðila okkar; félög Rauða krossins í Malaví, Sierra Leóne og Sómalíu, við að framkvæma sams konar mat á eigin starfi.“
Á fundinum var einnig fjallað um mikilvægi þess að framkvæma mat á þessum þáttum, sem og mikilvægi þess að nýta reynslu annarra landsfélaga sem eru á sömu vegferð.
„Það er mjög mikilvægt að tileinka sér fjölbreytileika og inngildingu sem gildi til að bæði stýra og bæta starf okkar,” segir Natalia Herrera Eslava, verkefnastjóri á alþjóðasviði Rauða krossins, sem sá um kynninguna. „Að skilja hvar við stöndum og hvert við viljum stefna sem félag til að tryggja að við séum örugg og að öll geti tekið jafnan þátt er grundvöllur að því að sýna að við skiptum máli og höfum áhrif, ásamt því að heiðra þá arfleið sem Rauði krossinn á Íslandi hefur byggt upp í áratugi, um leið og við lítum til framtíðar.”