Nr. 436/2024 Úrskurður
KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA
Hinn 29. apríl 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 436/2024
í stjórnsýslumáli nr. KNU24040031
Beiðni um frestun réttaráhrifa í máli […] og barna hennar
I. Málsatvik
Hinn 27. mars 2024 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 12. október 2023, um að synja […], fd. […] og börnum hennar, […], fd. […] og […], fd. […], ríkisborgurum Venesúela, um alþjóðlega vernd hér á landi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Úrskurður kærunefndar var birtur fyrir aðilum 27. mars 2024 og 9. apríl 2024 barst kærunefnd beiðni aðila um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar.
Aðili krefst þess að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála verði frestað á meðan hún fer með mál sitt fyrir dómstóla, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
II. Málsástæður aðila
Í greinargerð aðila kemur fram að hún muni þingfesta mál á hendur íslenska ríkinu á næstu dögum og krefjast m.a. ógildingar á úrskurði kærunefndar útlendingamála. Aðili byggir fyrst og fremst beiðni sína um frestun réttaráhrifa á því að framkvæmd úrskurðar kærunefndar útlendingamála í máli hennar og barna hennar muni valda þeim óafturkræfum skaða. Í því samhengi vísar aðili til 70. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, og 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Aðili byggir á því að verði henni og börnum hennar brottvísað áður en meðferð dómstóla á máli þeirra ljúki muni þau ekki eiga raunhæft úrræði til þess að bera ákvörðun stjórnvalda undir dómstóla. Þá myndi það reynast aðila erfitt að vera í sambandi við lögmann sinn hér á landi þar sem alls óvíst sé hvort hún muni eiga kost á því að vera í netsambandi, en það sé eina raunhæfa leiðin fyrir hana til að eiga í samskiptum við lögmann sinn.
III. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Í íslenskum rétti gildir sú meginregla að málskot til dómstóla frestar ekki réttaráhrifum endanlegra ákvarðana stjórnvalda, sjá til hliðsjónar 2. málsl. 60. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Reglan er áréttuð í 1. málsl. 6. mgr. 104. laga um útlendinga nr. 80/2016 en þar segir að málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun á stjórnsýslustigi um að útlendingur skuli yfirgefa landið fresti ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess, sbr. 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestun á réttaráhrifum skal bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að málið hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Niðurstaða um hvort ástæða sé til að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar ræðst af heildstæðu mati á hagsmunum aðila af því að réttaráhrifum úrskurðarins verði frestað og sjónarmiðum sem mæla gegn slíkri frestun. Meðal þeirra sjónarmiða sem líta ber til við þetta mat er hvort framkvæmd úrskurðarins valdi aðila óafturkræfum skaða, hvort framkvæmdin feli í sér verulegar hindranir á aðgengi aðila að dómstólum, hvort aðstæður sem þýðingu geta haft fyrir málið hafi breyst verulega eða hvort þörf sé á sérstakri varúð, m.a. með tilliti til hagsmuna barna. Þá lítur kærunefnd til þess hlutverks stjórnvalda að tryggja skilvirka framkvæmd laga um útlendinga. Kærunefnd hefur jafnframt litið til þess að heimild til frestunar réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar er undantekning frá meginreglu sem aðeins sé ætlað að ná til tilvika þar sem ástæða er til þess að fresta framkvæmd. Réttaráhrifum úrskurðar verði því ekki frestað af þeirri ástæðu einni að úrskurðurinn verði borinn undir dómstóla heldur þurfi að liggja fyrir tilteknar ástæður í fyrirliggjandi máli svo kærunefnd fallist á slíka beiðni.
Af beiðni aðila um frestun réttaráhrifa má ráða þá afstöðu hennar að framkvæmd úrskurðar kærunefndar útlendingamála um að hún og börn hennar skuli yfirgefa landið takmarki möguleika hennar til að fá endurskoðun úrskurðarins hjá dómstólum og njóta þar réttlátrar málsmeðferðar, sbr. 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar. Ljóst er að vera aðila á landinu er ekki forsenda fyrir því að mál sem hún höfðar til ógildingar á úrskurði kærunefndar sé tækt til meðferðar hjá dómstólum. Þá hefur aðili möguleika á að gefa skýrslu fyrir dómi þótt hún sé ekki hér á landi, sbr. 2. mgr. 49. gr. og 3. og 4. mgr. 51. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Í því ljósi og með vísan til aðstæðna aðila og barna hennar að öðru leyti er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé ástæða til að fresta réttaráhrifum úrskurðar í máli þeirra á þeim grundvelli að framkvæmd úrskurðarins valdi tjóni á málatilbúnaði þeirra fyrir dómstólum eða skerði réttindi sem þeim eru tryggð samkvæmt 70. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. einnig dóma Héraðsdóms Reykjavíkur í málum nr. E-2434/2017, frá 23. maí 2018, og E-6830/2020, frá 15. desember 2020.
Með úrskurði kærunefndar útlendingamála hefur verið tekin afstaða til málsástæðna aðila varðandi umsóknir hennar og barna hennar um alþjóðlega vernd hér á landi og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða og komist að niðurstöðu um að synja umsóknum þeirra. Kærunefnd ítrekar það sem kemur fram í úrskurði í máli aðila og barna hennar að athugun nefndarinnar hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að ætla að aðstæður í heimaríki séu þess eðlis að endursending þeirra þangað sé í andstöðu við 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Í samræmi við framangreint er það jafnframt niðurstaða kærunefndar að aðili og börn hennar eigi ekki á hættu að verða fyrir óafturkræfum skaða snúi þau aftur til heimaríkis.
Tiltölulega skammur tími er liðinn síðan nefndin úrskurðaði í máli aðila og barna hennar. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að aðstæður þeirra eða aðstæður í ríkinu, sem vísa á þeim til, hafi breyst verulega síðan nefndin úrskurðaði í málinu á þann hátt að nefndin telji að það gæti haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Eftir skoðun á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa telur kærunefnd að athugasemdir sem þar koma fram séu ekki þess eðlis að ástæða sé til að ætla að niðurstaða kærunefndar í málinu sé haldin annmarka sem leitt gæti til ógildingar úrskurðarins.
Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að ekki sé ástæða til að fallast á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa úrskurðar kærunefndar í máli hennar og barna hennar.
Úrskurðarorð:
Kröfu aðila er hafnað.
The appellant’s request is denied.
Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,
Þorsteinn Gunnarsson, formaður