Föstudagspósturinn 14. apríl 2023
Heil og sæl!
Upplýsingadeildin heilsar ykkur endurnærð eftir páskafrí og flytur ykkur fréttir af því helsta sem átt hefur sér stað í utanríkisþjónustunni á undanförnum vikum.
Atlantshafsbandalagið varð 74 ára þann 4. apríl sl. og daginn eftir fór fram sögulegur fundur í Brussel þar sem Finnland fékk formlega inngöngu í bandalagið. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ráðherra sótti fundinn þar sem hún undirstrikaði mikilvægi þess að Svíþjóð tæki þátt í leiðtogafundinum í Vilníus sem fullgilt bandalagsríki. Þá ítrekaði hún að þvert á það sem Rússlandsforseti ætlaði sér með stríðsrekstrinum hefði bandalagið aldrei verið öflugra og bandalagsríkin væru tvíefld í stuðningi sínum við Úkraínu. Sagt var frá fundinum á vef Stjórnarráðsins.
Þar var janframt greint frá jákvæðri niðurstöðu á jafningjarýni Þróunarsamvinnunefndar OECD (DAC) á alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands sem tekin var fyrir á fundi nefndarinnar í París rétt fyrir páska. Í niðurstöðunum kemur meðal annars fram að með skýrri og einbeittri nálgun á tiltekin málefnasvið, stofnanir og samstarfslönd, hafi Ísland nýtt styrkleika sína í þróunarsamvinnu og hámarkað framlag sitt til málaflokksins þrátt fyrir smæð.
Sendiráðið í París tók af þessu tilefni á móti Martin Eyjólfssyni ráðuneytisstjóra
Iceland punches above its weight with its focused approach to development cooperation as recognized in Iceland´s DAC Peer Review discussed today in Paris. pic.twitter.com/u2yrIwdJQa
— MFA Iceland Development 🇮🇸 (@IcelandDevCoop) April 3, 2023
sem hitti í leiðinni Caroline Ferrari staðgengil ráðuneytisstjóra í franska utanríkisráðuneytinu. Á fundinum ræddu þau formennsku Íslands í Evrópuráðinu, leiðtogafundinn sem fer fram í Reykjavík í maí, stríðið í Úkraínu, málefni norðurslóða og jafnréttismál.
Bonnes échanges entre le Secrétaire d'Etat 🇮🇸 @martineyjolfs et la Secrétaire générale adjointe 🇫🇷 @FerrariCarolin4 à Paris aujourd’hui. Focus sur notre présidence du @coe et le sommet de Reykjavík, la guerre en Ukraine, l’Arctique, l'égalité et la diplomatie en général. pic.twitter.com/1lGPRX9HcO
— L’Islande à Paris 🇮🇸 (@IcelandinParis) April 3, 2023
Ráðherra greindi jafnframt frá því að íslensk stjórnvöld hefðu heitið 500.000 bandaríkjadölum til uppbyggingar sjálfbærra og umhverfisvænna orkuinnviða í Úkraínu.
Iceland has pledged 500,000 USD to support the rebuilding of Ukraine's energy infrastructure in both environmentally sustainable and resilient ways. Proud to join @UNDP's #FundingWindows for this important project and always willing to find new ways to #StandWithUkraine 🇮🇸🇺🇦 https://t.co/8PUhseiVbR
— Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir🇮🇸 (@thordiskolbrun) April 13, 2023
Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti árlega ályktun um ástand mannréttinda í Íran sem ríkjahópur undir forystu Íslands lagði fram þann 4. apríl sl. Ályktunin tryggir áframhaldandi umboð sérstaks skýrslugjafa til að fylgjast með og gefa mannréttindaráðinu reglubundna skýrslu um ástand mannréttindamála í Íran.
Þá áttu yfirmenn herafla þátttökuríkja í sameiginlegu viðbragðssveitinni (JEF) fund þar sem þeir ræddu þróun öryggismála og samstarf um viðbúnað og viðbragð á Norður-Atlantshafi, norðurslóðum og Eystrasalti í Helsinki í vikunni. Jónas Gunnar Allansson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu sótti fundinn fyrir Íslands hönd.
Og þá að sendiskrifstofunum. Í Vínarborg skrifuðu 45 ríki Efnahags- og framfarastofnunarinnar, Ísland þar á meðal, undir svokallað Moscow Mechanism Invocation sem miðar að rannsókn á brottnámi barna af hendi rússneskra yfirvalda í stríðinu við Úkraínu.
45 @OSCE states, including #Iceland 🇮🇸 have launched the #MoscowMechanism to investigate the forcible transfer and deportation of Ukrainian children by 🇷🇺.
— Iceland in Vienna 🇮🇸 (@IcelandVienna) March 31, 2023
We are alarmed by these #HumanRights violations and will continue to #StandWithUkraine 🇺🇦 pic.twitter.com/GVjyB4ovC9
Sendiráðið í París greindi frá útgáfu bókar Fríðu Ísberg "Merking" sem kom út á frönsku á dögunum.
Listviðburðir hafa heldur betur sett svip sinn á lífið í sendiráðinu í Berlín undanfarið. Benedikt Krisjánsson flutti Jóhannesarpassíu Bachs við góðar undirtektir í sölum Berlínarfílharmóníunnar á föstudeginum langa.
Myndlistarsýningin "I will keep close to you" með verkum eftir Önnu Jónu Friðbjörnsdóttur var opnuð á skírdegi í Künstlerhaus Bethanien.
og Sigurður Sævarsson tók þátt í tónlistarviðburði sem haldinn var í kirkjunni við Hohenzollernplatz á laugardegi fyrir páska.
Sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn, Helga Hauksdóttir, opnaði formlega sýningu Errós "The Power of Images"
Í Helsinki var að sjálfsögðu mikið umleikis vegna inngöngu Finnlands í NATO þann 4. apríl sl. og óskaði sendiráðið Finnum til hamingju.
Sendiráð okkar í Lilongwe, Malawi, deildi fréttum af því hvernig Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna notaði dróna til að dreifa mat og hjálpargögnum vegna hamfaranna sem urðu í kjölfar fellibylsins Freddy á dögunum. Þakkar stofnunin sendiráðinu sérstaklega fyrir þeirra framlag til að þessi hjálp mætti verða að veruleika.
Þá greindi sendiráðið frá áformum um byggingu miðstöðvar fyrir fæðingar- og nýburahjálp sem unnið verður að ásamt héraðsstjórn í Mangochi héraði
og deildi þeim gleðifréttum að 20.000 manns njóti nú grundvallar heilbrigðisþjónustu á svæðinu sem fjármögnuð er af íslenskum stjórnvöldum en fólk þurfti áður að ferðast yfir 20 km til að verða sér úti um samskonar þjónustu.
Sendiráðið í London deildi tveimur blaðagreinum úr dagblaðinu The Guardian. Annarri um það hvernig litla Ísland gat orðið svo framarlega á heimsvísu í klassískri tónlist og hinni um 5 stjörnu dóm kvikmyndarinnar Volaða land eftir Hlyn Pálmason sem farið hefur sigurför um heiminn að undanförnu.
Þá fengu sendiráðið ásamt Sturlu Sigurjónssyni sendiherra sérstakar þakkir fyrir að deila mynd af Churchill frá heimsókn hans til Alþingis sumarið 1941 með safni sem heldur utan um arfleifð hans.
Huge thanks to @SturlaSigurjons and Embassy of Iceland for presenting photo of Churchill at the Althingi in Aug 41 to @ChuArchives pic.twitter.com/mvYKcRvP0H
— Allen Packwood (@AllenPackwood) April 13, 2023
Í Nýju-Delí lagði Guðni Bragason sendiherra Íslands áherslu á samvinnu um sjálfbæra þróun, ferðamennsku, nýsköpun og kynjajafnrétti í ávarpi sínu á alþjóðlegri ráðstefnu um tækifæri í viðskiptum og ferðamennsku í einu af systurfylkjunum sjö; Nagaland.
Sendiráð Íslands í Kanada stóð að vel heppnaðri málstofu 12. apríl undir yfirskriftinni Geothermal Utilization and Value Chains in Iceland í samstarfi við Green by Iceland og Orkuklasann. Málstofan fjallaði um þróun jarðvarmanotkunar á Íslandi og hvernig þessi reynsla gæti verið yfirfæranleg á Kanada. Upptökuna má nálgast hér. Sama dag flutti Hlynur Guðjónsson sendiherra lokaorð á vefskeiði ICAN (Icelandic Arctic Cooperation Network) og WiRE (Women in Renewable Energy) um orkuskipti á Norðurslóðum.
Í Osló tók Þorvaldur Hrafn sendiráðunautur þátt í hádegisverðarfundi Norðurlanda og Eystrasaltsríkja.
Sænska sendiráðið óskaði rithöfundinum Sjón til hamingju með að hafa unnið bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs.
Sendiráð Íslands í Póllandi sagði lesendum sínum á Facebook skemmtilega frá íslenskum hefðum tengdum páskunum.
og greindi jafnframt frá því að Hannes Heimisson sendiherra hefði fengið kynningu á varðveislu á listaverkum í listaháskóla Varsjár en deild innan skólans um varðveislu listmuna hefur sýnt á því áhuga að kortleggja þörfina á varðveislu íslenskra listaverka, einkum á pappír.
Þann 1. apríl fagnaði aðalræðisskrifstofa okkar í Færeyjum því að 16 ár væru liðin frá opnun hennar. Sérstaklega var tekið fram að ekki væri um aprílgabb að ræða.
Alþjóðaheilbrigðisdeginum var fagnað 7. apríl síðastliðinn og af því tilefni var sagt frá verkefni í Sierra Leone sem íslensk stjórnvöld standa að ásamt Mannfjöldasjóði Sameinuðu þjóðanna (UNFPA). Verkefnið miðar að því að útrýma svokölluðum fæðingarfistli, vanda sem er nánast óþekktur í samfélögum á Vesturlöndum en útbreiddur í fátækari ríkjum eins og Síerra Leóne þar sem heilbrigðisþjónustu hefur verið ábótavant.
Sierra Leone has one of the highest lifetime risks of pregnancy-related mortality and morbidity, including obstetric fistula.@IcelandDevCoop, @UNFPA & 🇸🇱 are working together to eradicate fistula by 2030💪
— OECD Development Co-operation (@OECDdev) April 7, 2023
Learn how for #WorldHealthDay: https://t.co/uZEsZqiDp2 #HealthForAll pic.twitter.com/9oVR82tVgS
Þórdís Sigurðardóttir sendiherra í Úganda átti fund með fulltrúa Mannfjöldastofnunar Sameinuðu þjóðanna í Úganda, Mary Otieno. Þær ræddu meðal annars tækifæri til að standa enn betur að mæðravernd á svæðinu.
@UNFPAUganda Representative @otienoma has paid a courtesy call on H. E Þórdís Sigurðardóttir, Head of Mission, Embassy of Iceland in Uganda where they discussed opportunities for strengthening maternal health, specifically fistula prevention, treatment & response.@IcelandDevCoop pic.twitter.com/cqYkxYiDOP
— UNFPA Uganda (@UNFPAUganda) April 14, 2023
Þórir Ibsen, sendiherra Íslands í Kína hélt opnunarávarp á einni stærstu stoðtækjakaupstefnu þar í landi.
Honoured to give an opening address at the 41st China International Assistive Product Expo (CIAPE) in the city of Zhumadian in Henan, where the Cina 🇨🇳 operations of the #Icelandic 🇮🇸 @OssurCorp was one of the major exhibitor @MFAIceland pic.twitter.com/6pYdwZgURc
— Thorir Ibsen (@ThorirIbsen) April 3, 2023
Hann heimsótti jafnframt bás Össurar á sýningunni.
Allways a privilege and pleasure to visit the pavilion of the #Icelandic 🇮🇸 @OssurCorp This time at the 41st China International Assistive Product Expo (CIAPE) in the city of Zhumadian in Henan 🇨🇳 pic.twitter.com/P8p0AANXMB
— Thorir Ibsen (@ThorirIbsen) April 3, 2023
Þá átti hann fund með vara-borgarstjórum Zhumadian í Henan og ræddi viðskiptatækifæri einkum á sviði heilsufarstengdrar þjónustu og ferðaþjónustu.
Was well received by public officials of the city of Zhumadian and Henan Province. Discussed business relations between Iceland 🇮🇸 and China 🇨🇳 @MFAIceland pic.twitter.com/EysuN3FZWe
— Thorir Ibsen (@ThorirIbsen) April 3, 2023
Í Genf lýstu norrænu og baltnesku löndin yfir áhyggjum af ástandi mannréttinda í Mali.
#HRC52 🇮🇸 on behalf of 🇩🇰🇪🇪🇫🇮🇱🇻🇱🇹🇳🇴🇸🇪🇮🇸
— Iceland in Geneva 🇮🇸 (@IcelandinGeneva) March 31, 2023
The deteriorating human rights situation in 🇲🇱coupled with Mali’s worsening security situation is alarming.
Strengthening access to justice, fighting impunity & increasing accountability is vital.
👉https://t.co/PA6Sueh6TL pic.twitter.com/kLa7Um4LOx
og Finnland flutti ræðu fyrir hönd sama hóps um ástand mannréttinda í Libýu.
The Nordic-Baltic countries 🇫🇮🇩🇰🇳🇴🇱🇻🇪🇪🇮🇸🇱🇹🇸🇪 raised their concern about the human rights situation in #Libya and encouraged the country to implement the recommendations of the FFM. #HRC52 #HumanRights https://t.co/YzoLXh5iAm pic.twitter.com/iuID5TdqgH
— FinlandGeneva 🇫🇮 🇺🇳 #FIinHRC (@FinlandGeneva) April 3, 2023
Fastanefnd Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum í New York tók á móti utanríkismálanefnd Alþingis.
So pleased to welcome @Althingi Foreign Affairs Committee to 🗽. Busy day ahead @UN 🇺🇳 pic.twitter.com/uD355ZO18G
— Jorundur Valtysson 🇮🇸 (@jvaltysson) March 31, 2023
Glæpir gegn mannkyni voru til umræðu í 6. nefnd allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í sérstakri umræðu sem fastanefndin stýrði ásamt Gvatemala og Malasíu.
Crimes against humanity discussed during special session of the Sixth (legal) Committee of #UNGA77 this week. Iceland🇮🇸 honoured to cofacilitate, with Guatemala🇬🇹 and Malaysia🇲🇾. Two days in, highly active engagement and constructive discussion. #NeverAgain #CrimesAgainstHumanity pic.twitter.com/6Yxl7Mrf2A
— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) April 11, 2023
Sendiráð Íslands í Washington deildi innslagi úr fréttaskýringaþættinum 60 Minutes þar sem fréttamaðurinn góðkunni Bill Whitaker ræddi við Kristínu Jónsdóttur jarðskjálftafræðing um eldgosið í Geldingardölum.
Land of fire and ice indeed! A fascinating look at the recent volcanic eruptions in #Iceland, starring amongst others my very own cousin, scientist @krjonsdottir https://t.co/TF6mPssiWp
— Davíð Logi Sigurðsson (@DavidLogi) April 4, 2023
Fleira var það ekki í bili. Við minnum á fréttaveitu okkar um þróunar- og mannúðarmál, Heimsljós og óskum ykkur góðrar helgar!
Upplýsingadeild.