Auglýsing landskjörstjórnar um mörk kjördæmanna í Reykjavík
28. september síðastliðinn ákvað landskjörstjórn mörk norður- og suðurkjördæma í Reykjavík, sbr. 1. mgr. 7. gr. laga nr. 24/2000 um kosningar til Alþingis.
Mörkin eru óbreytt frá síðustu alþingiskosningum árið 2016. Frá vestri til austurs skiptir Hringbraut, Miklabraut, Ártúnsbrekka og Vesturlandsvegur kjördæmunum þar til komið er að punkti á móts við Sóltorg í Grafarholti. Grafarholtshverfi skiptist áfram milli suður- og norðurkjördæmis um Kristnibraut og Gvendargeisla og Ingunnarskóli verður kjörstaður fyrir bæði kjördæmin í Grafarholti. Kjalarnes tilheyrir síðan Reykjavíkurkjördæmi norður.