Mál nr. 5/2017 Úrskurður 30. janúar 2017
Mál nr. 5/2017 Eiginnafn: Steðji
Hinn 30. janúar 2017 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 5/2017 en erindið barst nefndinni 12. janúar.
Eiginnafnið Steðji (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Steðja og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Steðji (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.