Hoppa yfir valmynd
23. febrúar 2017 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 7/2017 Úrskurður 9. febrúar 2017

Mál nr. 7/2017                       Aðlögun kenninafns: Patricksdóttir

                                            


Hinn 9. febrúar 2017 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 7/2017.

Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 17. janúar 2017, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni xxx og yyy um að dóttir þeirra skuli vera kennd til föður síns, Patryks. Óska þau að eiginnafn föðurins verði ritað, Patricksdóttir.

Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.

 

Úrskurðarorð:

Fallist er á föðurkenninguna Patricksdóttir.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta