Reglugerðarbreyting auðveldar atvinnurekendum að ráða til sín starfsfólk
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur undirritað breytingar á reglugerð um þátttöku atvinnuleitenda sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins í vinnumarkaðsaðgerðum og um greiðslu styrkja úr Atvinnuleysistryggingasjóði. Er um að ræða aðgerð sem er hluti af aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna Covid-19, sem er ætlað að veita mótvægi vegna þeirra áhrifa sem faraldurinn hefur á atvinnumöguleika fólks.
Samkvæmt reglugerðinni verður heimilt að ráða atvinnuleitendur með styrk frá Vinnumálastofnun sem nemur 100% grunnatvinnuleysisbótum þegar atvinnuleitandi hefur verið á atvinnuleysisskrá í að minnsta kosti sex mánuði. Áður var það tímabil 12 mánuðir. Vinnuveitandi greiðir síðan mismun á launum og atvinnuleysisbótum úr eigin vasa. Önnur breyting snýr að því að heimilt verður að ráða atvinnuleitendur sem hafa verið skemur en 6 mánuði á atvinnuleysisskrá og Vinnumálastofnun greiðir þá 50% af grunnatvinnuleysisbótum til vinnuveitenda, sem aftur greiðir mismun á launum og atvinnuleysisbótum úr eigin vasa. Áfram er skilyrði um þriggja mánaða skráningu án atvinnu hjá Vinnumálastofnun og er stofnuninni heimilt að greiða styrk með hverjum einstakling í sex mánuði.
Þá eru ákvæði í reglugerðinni um sérstök átaksverkefni sem eiga við þegar atvinnuleysi á landsvísu eða á einstaka svæðum er hærra en 6%. Þegar slíkar aðstæður eru uppi er heimilt að ráða atvinnuleitendur sem hafa verið skráðir án atvinnu í einn mánuð hjá Vinnumálastofnun og greiðir stofnunin þá fullar grunnatvinnuleysisbætur til vinnuveitenda, sem aftur greiðir mismun á launum og atvinnuleysisbótum úr eigin vasa.
Fyrirtæki eða stofnanir sem nýta sér styrki frá Vinnumálastofnun skulu einnig tilnefna sérstakan tengilið samkvæmt reglugerðinni sem skal vera leiðbeinandi viðkomandi atvinnuleitanda á vinnustaðnum auk þess sem tengiliðurinn skal vera í samskiptum við ráðgjafa Vinnumálastofnunar, sem verður heimilt að greiða hlutaðeigandi fyrirtæki eða stofnun allt að 15.000 kr. á viku til að umbuna viðkomandi tengilið fyrir störf sín.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra: „Frá upphafi Covid-19 faraldursins hef ég sem vinnumálaráðherra lagt höfuðáherslu á að bregðast hratt við þeirri stöðu sem upp hefur komið á vinnumarkaði og að þær aðgerðir sem við ráðumst í verji störf og framfærslu fólks. Með þessari reglugerðarbreytingu erum við að fjölga tækifærum á vinnumarkaði fyrir atvinnuleitendur og auðvelda atvinnurekendum að ráða til sín starfsfólk, og um leið undirbúa kröftuga viðspyrnu þegar faraldrinum lýkur.“