Mál nr. 17/2016 Úrskurður 4. mars 2016
Mál nr. 17/2016 Eiginnafn: Ísbjört
Hinn 4. mars 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 17/2016:
Mannanafnanefnd hefur borist ábending um að eiginnafnið Ísbjört (kvk.) sé ekki á mannanafnaskrá.
Eiginnafnið Ísbjört tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Ísbjartar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Eiginnafnið Ísbjört (kvk.) skal fært á mannanafnaskrá.