Mál nr. 16/2016 Úrskurður 4. mars 2016
Mál nr. 16/2016 Millinafn: Blom
Hinn 4. mars 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 16/2016 en erindið barst nefndinni 3. mars:
Samkvæmt 2. mgr. 6. gr. laga um mannanöfn skal millinafn dregið af íslenskum orðstofnum en má þó ekki hafa nefnifallsendingu. Millinafnið Blom telst ekki dregið af íslenskum orðstofnum og fullnægir því ekki skilyrðum laga um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um millinafnið Blom er hafnað.