Arnhildur Pálmadóttir hlaut viðurkenningu fyrir frumkvöðlastarf í mannvirkjagerð
Arnhildur Pálmadóttir arkitekt hefur hlotið viðurkenningu sem frumkvöðull í mannvirkjagerð. Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, færði Arnhildi viðurkenninguna á húsnæðisþingi í gær en þetta er í fyrsta sinn sem viðurkenning af þessu tagi er veitt fyrir frumkvöðlastarf í mannvirkjagerð í tengslum við húsnæðisþing.
Í mati dómnefndar segir: „Arnhildur hefur sýnt eftirtektarverðan kraft, framsækni, frumkvæði og árangur á sviði vistvænnar mannvirkjahönnunar. Arnhildur hefur slegið nýjan tón í íslenskri mannvirkjahönnun með framsækinni hringrásarhugsun og kom hún m.a. á samstarfi við fremsta hringrásarhönnuð Norðurlandanna, Lendager group. Að auki hefur hún verið óeigingjörn við að deila reynslu sinni, kynna og ræða vistvæna mannvirkjagerð í fjölmiðlum og kynningarfundum af ýmsu tagi.
Arnhildur hefur hannað hús sem hafa hátt í 50% minna kolefnisspor en aðrar sambærilegar byggingar og nýverið var tillaga hennar og Lendager að borgarþróun Veðurstofureitsins valin og er nú unnið að henni. Hverfið sem þar mun rísa er hannað með náttúrulegum, lífrænum efnum og staðbundnum úrgangsefnum sem safnað er saman á höfuðborgarsvæðinu.