Nr. 374/2022 Úrskurður
KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA
Hinn 22. september 2022 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 374/2022
í stjórnsýslumáli nr. KNU22080023
Beiðni um endurupptöku í máli [...]
-
Málsatvik
Hinn 9. desember 2021 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 13. október 2021, um að taka umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Suður-Súdan (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og vísa honum frá landinu. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda 13. desember 2021. Hinn 20. desember 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar og synjaði kærunefnd beiðni kæranda 19. janúar 2022, með úrskurði kærunefndar nr. 17/2022. Hinn 22. ágúst 2022 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku málsins ásamt greinargerð. Upplýsingar um málsmeðferð í máli kæranda bárust kærunefnd frá Útlendingastofnun 7. september 2022 og stoðdeild ríkislögreglustjóra 31. ágúst 2022.
Af greinargerð kæranda má ætla að beiðni hans byggi á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
-
Málsástæður og rök kæranda
Beiðni kæranda um endurupptöku málsins byggir á því að meira en 12 mánuðir séu nú liðnir frá því að hann lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi, en tafir á afgreiðslu málsins séu ekki á hans ábyrgð. Með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 skuli umsókn kæranda því tekin til efnismeðferðar hér á landi. Kærandi vísar til þess að samkvæmt stjórnsýsluframkvæmd hafi afgreiðsla umsóknar í skilningi framangreinds ákvæðis miðast við umsóknardag annars vegar og hins vegar þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda sé framkvæmd með flutningi til viðtökuríkis. Þar sem 12 mánuðir séu nú liðnir og kærandi enn á landinu telur hann að stjórnvöldum sé skylt að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi til efnismeðferðar.
-
Niðurstaða kærunefndar útlendingamála um endurupptöku stjórnsýslumáls
Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.
Í 1. mgr. 40. gr. laga um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hefur samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum er þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar eru í umræddum stafliðum.
Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.
Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.
Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þó að 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði fyrst og fremst raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber sjálfur ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.
Kærandi sótti um alþjóðlega vernd á Íslandi 17. ágúst 2021 og rann því umræddur 12 mánaða frestur út á miðnætti 17. ágúst 2022. Kemur því til skoðunar hvort tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda séu á ábyrgð hans sjálfs, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Hinn 30. ágúst 2022 óskaði kærunefnd útlendingamála eftir upplýsingum frá stoðdeild ríkislögreglustjóra og Útlendingastofnun um hvort tafir hefðu orðið á meðferð umsóknar kæranda og ef svo væri, hvort þær væru á ábyrgð kæranda, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í svari Útlendingastofnunar, dags. 7. september 2022, kemur fram að ekkert í gögnum Útlendingastofnunar gefi til kynna að umsækjandi hafi tafið mál sitt að einhverju leyti. Í svari stoðdeildar, dags. 31. ágúst 2022, kemur fram að farið hafi verið að dvalarstað kæranda 9. febrúar 2022 og lesið upp fyrir hann skjal um afstöðu/samvinnu hans um frávísun til Grikklands. Kærandi hafi neitað að skrifa undir eða merkja í viðeigandi reiti á skjalinu og greint frá því að hann vilji ekki fara frá landinu. Aðspurður hafi hann greint frá því að hann skyldi það sem lesið var upp fyrir hann. Hinn 12. maí 2022 hafi starfsmaður stoðdeildar farið að dvalarstað kæranda og tilkynnt honum að unnið væri að því að finna fyrir hann ferðadag til viðtökuríkis. Kærandi hafi greint frá því að hann ætli ekki frá Íslandi og vildi fá að ræða við lögmann sinn. Lögmaður kæranda hafi ekki svarað í síma. Þá kemur fram að ákveðinn hafi verið ferðadagur 7. júní 2022 en hann sleginn af vegna umræðna á Alþingi um brottvísanir til viðtökuríkis. Hinn 22. ágúst 2022 hafi verið farið að dvalarstað kæranda þar sem ferðadagur væri ákveðinn 23. ágúst 2022. Kærandi hafi verið færður á lögreglustöðina í Keflavík og þaðan haft samband við lögmann hans. Í samtali við lögmann kæranda hafi komið fram að frestur til þess að flytja kæranda væri liðinn og hann ætti rétt á efnismeðferð. Kæranda hafi því verið sleppt og hætt við fyrirhugaða ferð.
Eins og að framan greinir sótti kærandi um alþjóðlega vernd hér á landi 17. ágúst 2021. Þegar stoðdeild ríkislögreglustjóra reyndi að framkvæma flutning á kæranda til viðtökuríkis 23. ágúst 2022, var 12 mánaða frestur sem áskilinn er í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga liðinn. Með hliðsjón af framangreindu er því ekki grundvöllur fyrir kærunefnd til að ákvarða að tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda hafi verið á hans ábyrgð, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Af framangreindu leiðir að skilyrði 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er uppfyllt og ber að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.
Í ljósi framangreinds er því fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hann eigi rétt á endurupptöku á máli sínu, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Það er jafnframt niðurstaða kærunefndar að fella ákvörðun Útlendingastofnunar í máli hans úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Úrskurðarorð:
Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans.
Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.
The appellant‘s request for re-examination of his case is granted.
The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the applicant‘s application for international protection in Iceland.
Tómas Hrafn Sveinsson
Bjarnveig Eiríksdóttir Sandra Hlíf Ocares