Hoppa yfir valmynd
20. apríl 2018 Forsætisráðuneytið

Ríkisstjórnin veitir Norræna húsinu 10 milljóna króna styrk í endurbætur

Norræna húsið - myndJohannes Jansson/norden.org
Ríkisstjórnin mun leggja til 10 milljónir króna vegna endurbóta á Norræna húsinu í tilefni af 50 ára afmæli hússins. Þetta var ákveðið á ríkisstjórnarfundi í morgun.

Fjárframlagið verður nýtt til að byggja lágreistan hvítan múrvegg sem snúa mundi að Sæmundargötu. Áætlað er að veggurinn verði tilbúinn fyrir afmælisdag hússins sem er 24. ágúst n.k.

Norræna húsið var opnað 1968 og hefur verið lifandi miðstöð norrænnar samvinnu og menningar á Íslandi allar götu síðan. Í tilefni afmælisins hefur verið ráðist í margvíslegar endurbætur á húsinu og umhverfi þess og hefur Norræna ráðherranefndin, Norræna húsið sjálft og Reykjavíkurborg staðið straum af kostnaði vegna þess. Þess má geta að Ísland tekur við formennsku í Norrænu ráðherranefndinni um næstu áramót og gegnir henni árið 2019.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta