Hoppa yfir valmynd
14. janúar 2019 Utanríkisráðuneytið

Níu umsóknir bárust um styrki úr Samstarfssjóði við atvinnulífið

Níu umsóknir bárust um styrki úr Samstarfssjóði við atvinnulíf um Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna vegna samstarfsverkefna í þróunarríkjum. Í samræmi við reglur sjóðsins tekur nú þriggja manna matshópur umsóknirnar til skoðunar en hópurinn er skipaður tveimur óháðum sérfræðingum á sviði þróunarsamvinnu og fulltrúa ráðuneytisins. Stefnt er að því að utanríkisráðherra úthluti fyrstu styrkjum úr sjóðnum í næsta mánuði.

Hlutverk Samstarfssjóðsins er að hvetja til þátttöku og framlags atvinnulífs til þróunarsamvinnu með það að markmiði að stuðla að atvinnusköpun og sjálfbærum hagvexti í fátækum þróunarríkjum. Sjóðurinn hefur yfir að ráða allt að 100 milljónum króna en áskilið er að styrkt verkefni skuli vera til hagsbóta í viðkomandi landi og stuðla að atvinnusköpun og sjálfbærum vexti í fátækum ríkjum heims.

Samkvæmt reglum sjóðsins getur hámarksfjárhæð til einstakra verkefna numið allt að 200 þúsund evrum, yfir þriggja ára tímabil. Heimilt er að veita styrk til sama verkefnis til allt að þriggja ára, með fyrirvara um fjárheimildir fjárlaga hvers árs. Styrkfjárhæð getur numið allt að 50% af heildarkostnaði verkefnis. 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

8. Góð atvinna og hagvöxtur
9. Nýsköpun og uppbygging

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta