Mál nr. 468/2016
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 468/2016
Fimmtudaginn 9. febrúar 2017
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Agnar Bragi Bragason lögfræðingur.
Með tölvupósti 2. desember 2016 kærir A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. október 2016.
I. Málsatvik og niðurstaða
Kærandi lagði inn kæru, sem rituð var á ensku, hjá úrskurðarnefnd velferðarmála með tölvupósti 2. desember 2016. Með tölvupósti starfsmanns úrskurðarnefndarinnar 8. desember 2016, sem ritaður var á íslensku og ensku, var kæranda tilkynnt að eingöngu væri tekið við kærum á íslensku. Óskað var eftir að kærandi legði inn kæru sína á íslensku og tekið fram að nefndin myndi að því loknu taka mál hans til meðferðar. Með tölvupósti starfsmanns úrskurðarnefndarinnar 10. janúar 2017 var beiðni nefndarinnar ítrekuð og kæranda jafnframt bent á að hann gæti fengið aðstoð hjá Mannréttindaskrifstofu Íslands.
Samkvæmt 8. gr. laga nr. 61/2011 um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls er íslenska mál Alþingis, dómstóla, stjórnvalda, jafnt ríkis sem sveitarfélaga, skóla á öllum skólastigum og annarra stofnanna sem hafa með höndum framkvæmdir og veita almannaþjónustu. Með vísan til þess ber úrskurðarnefnd velferðarmála einungis að taka til meðferðar kærur sem uppfylla þetta skilyrði.
Kærandi hefur ekki orðið við beiðni úrskurðarnefndarinnar um að leggja inn kæru á íslensku. Að því virtu er það niðurstaða nefndarinnar að kæran sé ekki tæk til meðferðar. Kæru er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Kári Gunndórsson