Úrskurður nr. 482/2017
KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA
Þann 29. ágúst 2017 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 482/2017
í stjórnsýslumáli nr. KNU17070042
Kæra [...]
á ákvörðun
Útlendingastofnunar
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Þann 18. júlí 2017 kærði [...], fd[...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 27. júní 2017, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda hann til Þýskalands.
Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar með vísan til 3. mgr. 36. gr., sbr. 2. mgr. 42. gr. og 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka mál kæranda til meðferðar að nýju með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
II. Málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 21. mars 2017 ásamt eiginkonu og barni. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Þýskalandi. Þann 27. mars 2017 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Þýskalandi, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Ekki barst svar frá þýskum yfirvöldum innan tilskilinna tímamarka. Taldist beiðnin því hafa verið samþykkt og Þýskaland bera ábyrgð á umsókn kæranda um alþjóðlega vernd, sbr. 2. mgr. 25. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, og var bréf þess efnis sent til þýskra stjórnvalda þann 8. maí 2017. Þann 12. maí 2017 barst á hinn bóginn svar frá þýskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli 2. mgr. 25. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 27. júní 2017 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Þýskalands. Kærandi kærði ákvörðunina þann 18. júlí 2017 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda, ásamt fylgigögnum, barst kærunefnd 11. ágúst 2017. Frekari gögn bárust kærunefnd þann 14. ágúst 2017. Þann 18. ágúst 2017 var talsmanni kæranda sendur tölvupóstur þar sem kæranda var boðið að leggja fram frekari gögn í málinu og var veittur frestur til 23. ágúst sl. Kærunefnd barst afrit af tölvupósti talsmanns kæranda til göngudeildar sóttvarna, dags. 21. ágúst 2017, þar sem óskað var eftir komunótum frá deildinni, en engin frekari gögn bárust kærunefnd frá kæranda.
III. Ákvörðun Útlendingastofnunar
Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Þýskalands. Lagt var til grundvallar að Þýskaland virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement). Því fæli flutningur kæranda til Þýskalands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi var ekki talinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál hans. Aðstæður kæranda féllu ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu. Kærandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Þýskalands, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Þá var það mat Útlendingastofnunar að í Þýskalandi væru engin viðvarandi mannréttindabrot og að íbúar landsins gætu fengið vernd gegn ofbeldisbrotum og glæpum með aðstoð lögreglu eða annarra yfirvalda. Ekkert benti til annars en að kærandi gæti leitað til lögreglu eða annarra yfirvalda teldi hann sig eða fjölskyldu sína vera í hættu.
IV. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð, sem skilað var fyrir hönd allrar fjölskyldunnar, kemur fram að kærandi hafi í viðtali hjá Útlendingastofnun greint frá því að hann vilji ekki fara aftur til Þýskalands en þar hafi umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað. Þeirra bíði ekkert annað en áframsending til heimalands. Í Þýskalandi hafi fjölskyldan dvalið í eitt ár og fjóra mánuði og þar hafi þeim fæðst sonur. Þá hafi kærandi ekki fengið endurgjaldslausa lögfræðiaðstoð í Þýskalandi. Kærandi hefur lagt fram myndir af áverkum sem hann kveður að séu eftir ofsóknir [...] í heimaríki hans.
Kærandi byggir á því í greinargerð sinni að hann njóti verndar 1. mgr. 42. gr. laganna sem mæli fyrir um grundvallarregluna um non-refoulement. Þá kveði c-liður 1. mgr. 36. gr. laganna einungis á um heimild til handa stjórnvöldum til að synja kæranda um efnismeðferð umsóknar sinnar en ekki skyldu. Verði ekki fallist á að endursending kæranda til Þýskalands brjóti gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, auk annarra sambærilegra ákvæða alþjóðasamninga og íslenskra laga um bann við ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð, byggir kærandi á því að taka skuli mál hans til efnislegrar meðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi m.a. til lögskýringargagna við ákvæðið.
Þá er í greinargerð fjallað um hagsmuni barns kæranda. Íslenskum stjórnvöldum sé skylt að hafa ávallt það sem barni sé fyrir bestu í forgangi þegar teknar séu ákvarðanir um málefni þess. Vísar kærandi í því sambandi til 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003, barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og tilskipunar Evrópusambandsins nr. 2004/83/EB frá 29. apríl 2004. Það sé barni kæranda fyrir bestu að íslensk stjórnvöld taki mál fjölskyldunnar til efnismeðferðar hér á landi og veiti þeim alþjóðlega vernd.
Jafnframt er í greinargerð kæranda fjallað um aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd og málsmeðferð í Þýskalandi og í því sambandi vísað til ýmissa alþjóðlegra skýrslna, m.a. ákalls Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá mars 2015. Meðal annars kemur fram að álag á hæliskerfi Þýskalands sé mikið og vegna mikils fjölda einstaklinga sem sæki þar um vernd séu margar móttökumiðstöðvar afar fjölmennar og jafnvel yfirfullar auk þess sem iðulega sé aðbúnaður ekki fullnægjandi, t.d. varðandi hreinlæti. Umsækjendur njóti takmarkaðrar lögfræðiaðstoðar við meðferð máls þeirra í Þýskalandi og gjafsókn sé ekki tryggð vilji umsækjendur fara með mál sitt fyrir dómstóla. Þá hafi að undanförnu borist fréttir af auknum fordómum og andúð í garð flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd þar í landi. Árásir á heimili umsækjenda hafi stóraukist og hægri öfgahópar fengið byr undir báða vængi.
Kærandi gerir jafnframt athugasemdir við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun. Rannsókn málsins hafi ekki verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga og einstaklingsbundin greining skv. 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga hafi ekki farið fram í máli hans.
V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda.
Fyrir liggur í máli þessu að þýsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli 2. mgr. 25. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Þýskalands er byggt á því að ekki barst svar frá þýskum stjórnvöldum innan tilskilinna tímamarka og taldist beiðnin því hafa verið samþykkt. Eru skilyrði c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.
Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.
Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem kveður á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. sáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar og í einhverjum tilvikum kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda í viðtökuríki taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli.
Kærandi er ungur karlmaður sem kom til landsins með eiginkonu sinni og barni. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun hefur kærandi greint frá því að hann sé við góða líkamlega og andlega heilsu. Þó hafi það mikil áhrif á hann andlega að hann og fjölskylda hans hafi fengið synjun á umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd í Þýskalandi. Við meðferð málsins hjá kærunefnd hefur kærandi jafnframt greint frá því að hann hafi verið ofsóttur í heimaríki sínu. Framvísaði kærandi við meðferð málsins hjá kærunefnd ljósmyndum af áverkum sem hann kveðst hafa hlotið við þær ofsóknir. Þrátt fyrir lýsingar kæranda af framangreindum atburðum í heimaríki og þeim áverkum sem hann hlaut þar er það mat nefndarinnar að kærandi sé ekki í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Í því sambandi er áréttað að í viðtölum kæranda hjá Útlendingastofnun, dags. 23. mars 2017 og 16. maí s.á., kvaðst kærandi vera við góða líkamlega og andlega heilsu. Engin frekari gögn bárust. Í ljósi þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að þeir áverkar sem myndir bera með sér að kærandi hafi séu ekki slíkir að líta verði svo á að hann hafi sérþarfir sem taka þurfi tillit til við meðferð málsins eða að hann geti ekki að fullu eða með engu móti nýtt sér rétt eða uppfyllt skyldur sem kveðið er á um í lögunum án aðstoðar eða sérstaks tillits. Kærandi kom hingað til lands með eiginkonu sinni og barni og verður tekið tillit til þess við meðferð málsins.
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Þýskalandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:
· Asylum Information Database, Country Report: Germany (European Council on Refugees and Exiles, mars 2017),
· Report by Nils Muižnieks Commissioner for Human Rights of the Council Of Europe Following his Visit to Germany on 24th April and from 4 to 8 May 2015 (Council of Europe: Commissioner for Human Rights, 1. október 2015),
· Germany 2016 Human Rights Report (United States Department of State, 3. mars 2017),
· Amnesty International Report 2016/17 - Germany (Amnesty International, 22. febrúar 2017),
· Freedom in the world 2016 – Germany (Freedom House, 11. mars 2016) og
· Upplýsingar af heimasíðu þýsku útlendingastofnunarinnar (www.bamf.de).
Kærandi hefur greint frá því að umsókn hans um alþjóðlega vernd í Þýskalandi hafi verið synjað. Í ofangreindum gögnum kemur fram að umsækjendur sem fengið hafa synjun á umsókn sinni hjá þýsku útlendingastofnuninni (þ. Bundesamt für Migration und Flüchtlinge) geta kært niðurstöðuna til sérstaks stjórnsýsludómstóls. Fái umsækjendur synjun á umsókn sinni hjá útlendingastofnun eða stjórnsýsludómstól eiga þeir möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd hjá útlendingastofnun. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggja fyrir í máli umsækjanda, aðstæður hafa breyst í máli hans eða verulegir annmarkar voru á fyrri málsmeðferð, geta skilyrði viðbótarumsóknar verið uppfyllt. Umsækjendur geta borið mál sitt undir þýska dómstóla sé viðbótarumsókn þeirra synjað. Jafnframt eiga umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á alþjóðlegri vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brýtur í bága við ákvæði mannréttindasáttmálans.
Kærunefnd telur ljóst af þeim gögnum sem nefndin hefur kynnt sér að þýsk stjórnvöld uppfylli skyldur sínar varðandi lögfræðiaðstoð við umsækjendur um alþjóðlega vernd skv. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar. Þá benda gögnin til þess að úr málum umsækjenda um alþjóðlega vernd sé leyst á einstaklingsgrundvelli.
Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi hafi fengið áverka vegna ofsókna sem hann hafi orðið fyrir í heimaríki. Þá hafi hann áhyggjur af því að hafa fengið synjun í Þýskalandi á umsókn sinni um alþjóðlega vernd. Þýskaland er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Af framangreindum gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi má ráða að umsækjendur eiga rétt á húsnæði og mataraðstoð. Þá hafi flestar móttökumiðstöðvar þá stefnu að aðgreina einstæðar konur og fjölskyldur frá öðrum umsækjendum um alþjóðlega vernd. Að sama skapi er umsækjendum um alþjóðlega vernd tryggður aðgangur að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu í þýskum lögum en í viðtali kæranda hjá Útlendingastofnun kemur fram að kærandi hafi haft aðgang að heilbrigðisþjónustu í Þýskalandi. Í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í Þýskalandi telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi og fjölskylda hans geti leitað sér viðhlítandi heilbrigðisþjónustu þar í landi. Þá kemur fram í gögnum um aðstæður í Þýskalandi að öll börn sem hafa búsetu í Þýskalandi eiga rétt á og ber skylda til að ganga í skóla óháð stöðu þeirra. Frjáls félagasamtök stóðu fyrir herferð árið 2016 til að vekja athygli á að börn í móttökumiðstöðvum fengju aðeins grundvallarmenntun en hefðu ekki aðgang að hefðbundna skólakerfinu á meðan þau dveldu í miðstöðvunum. Þrátt fyrir að aðgengi að hefðbundnu skólakerfi sé takmarkað telur kærunefnd ljóst af gögnum að börn umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi hafi aðgang að menntun.
Kærandi kveðst m.a. óttast að þýsk yfirvöld endursendi hann til heimaríkis hans þar sem líf hans og fjölskyldu hans sé í hættu. Að mati kærunefndar bera gögn málsins það með sér að í Þýskalandi sé almennt veitt fullnægjandi vernd gegn brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd til landa þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi sé ógnað. Er þá sérstaklega litið til þess að þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda eindregið til þess að málsmeðferð þýskra yfirvalda sé fullnægjandi og veiti umsækjendum um alþjóðlega vernd viðunandi úrræði til að tryggja að réttur sé ekki á þeim brotinn og að einstaklingsbundið mat verði lagt á aðstæður þeirra. Að mati kærunefndar bendir ekkert til þess að [...] umsækjendum sé synjað sjálfkrafa um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eða þeir endursendir til heimaríkis án þess að leyst sé úr málum þeirra á einstaklingsgrundvelli. Þá er Þýskaland bundið að þjóðarétti til að fylgja reglunni um að mönnum skuli ekki vísað brott þangað sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu (non-refoulement). Telji kærandi framangreind réttindi sín vera brotin getur hann leitað réttar síns fyrir þýskum dómstólum og Mannréttindadómstól Evrópu. Þá getur kærandi leitað aðstoðar yfirvalda og lögreglu óttist hann að á honum verði brotið.
Athugun kærunefndar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda þangað brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kæranda séu tryggð úrræði til að leita réttar síns í Þýskalandi bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Enn fremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Þýskalands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.
Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, þ.á m. líkamlegra áverka hans, er það jafnframt mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga gerir ráð fyrir því að afstaða sé tekin til þessa atriðis en þar kemur m.a. fram að taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er ekki tekin afstaða til þess með beinum hætti hvort uppi séu sérstakar ástæður í máli kæranda í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þannig að taka bæri málið til efnismeðferðar hér á landi. Þó er tekin afstaða til þess hvort kærandi teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, en það er einn þeirra þátta sem horft er til við matið á því hvort um sérstakar ástæður í skilningi ákvæðisins sé að ræða. Fjallað er um efni rökstuðnings í 22. gr. stjórnsýslulaga en það leiðir jafnframt af óskráðri meginreglu stjórnsýsluréttar sem nefnd hefur verið skýrleikareglan að niðurstöður stjórnvalda skulu vera ákveðnar og skýrar. Kærunefnd gerir athugasemd við að ekki komi fram með skýrum hætti niðurstaða stofnunarinnar um hvort sérstakar ástæður eigi við í máli kæranda. Kærunefnd hefur nú komist að þeirri niðurstöðu, eftir mat á aðstæðum kæranda og aðstæðum í Þýskalandi, að slíkar sérstakar ástæður eigi ekki við í máli hans. Í ljósi þeirrar niðurstöðu telur kærunefnd að framangreindur ágalli á ákvörðun Útlendingastofnunar hafi ekki haft áhrif á niðurstöðu stofnunarinnar í máli kæranda. Ágallinn sé því ekki slíkur að fella beri ákvörðunina úr gildi.
Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 16. maí 2017 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 21. mars 2017.
Vegna athugasemdar kæranda um að niðurstöður Útlendingastofnunar hafi ekki verið studdar nægum gögnum tekur kærunefnd fram að rannsóknarreglan í 10. gr. stjórnsýslulaga mælir fyrir um að stjórnvald afli þeirra gagna sem eru nauðsynleg svo mál sé nægjanlega upplýst. Reglan gerir kröfu um rannsókn sem er fullnægjandi grundvöllur ákvörðunar stjórnvalds en gerir hvorki kröfu um að aflað sé allra upplýsinga sem varpað gætu ljósi á málið né að stjórnvald afli ófáanlegra gagna. Þá segir í 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga að við meðferð umsókna um alþjóðlega vernd skuli stjórnvöld afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga. Samkvæmt framansögðu er gerð krafa um rannsókn stjórnvalda sem er fullnægjandi grundvöllur ákvörðunar stjórnvalds. Kærunefnd útlendingamála hefur skoðað gögn varðandi aðstæður í Þýskalandi og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun varðandi aðbúnað og málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd þar í landi. Er það afstaða kærunefndar að ekkert bendi til þess að slíkur ágalli hafi verið á rannsókn Útlendingastofnunar að þessu leyti þannig að fella beri ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi.
Þá gerir kærandi athugasemd í greinargerð til kærunefndar að Útlendingastofnun hafi ekki sinnt skyldum sínum skv. 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga og 10. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi lagði fram ljósmyndir við meðferð málsins hjá kærunefnd af áverkum sem hann kveðst hafa hlotið vegna ofsókna í heimaríki sínu. Af gögnum málsins telur kærunefnd ljóst að þær upplýsingar hafi ekki legið fyrir við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun, dagana 23. mars og 16. maí 2017, greindi kærandi frá því að hann og barn hans væru við góða líkamlega og andlega heilsu. Synjun þýskra yfirvalda á umsókn hans og fjölskyldu hans um alþjóðlega vernd hafi þó áhrif á hann andlega og að sama skapi hafi kærandi og fjölskylda hans fengið stöðugar hótanir í heimaríki þeirra. Það er mat kærunefndar að þær upplýsingar um hagi kæranda sem lágu fyrir í máli kæranda þegar ákvörðun var tekin hjá Útlendingastofnun hafi ekki gefið tilefni til að bregðast sérstaklega við eða kallað á frekari rannsókn á heilsufari kæranda, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga og eftir atvikum 7. gr. sömu laga. Meðal annars er litið til þess að kærandi var í tveimur viðtölum spurður út í heilsufar sitt, en hann var jafnframt spurður að því hvort einhverjir atburðir hafi haft áhrif á hann og um ástæður flótta frá heimaríki, og þannig gefinn kostur á að greina frá framangreindu. Þá naut kærandi jafnframt aðstoðar löglærðs talsmanns við meðferð málsins og var gefinn kostur á því að leggja fram greinargerð en gerði það ekki, sbr. tölvupóst talsmanns kæranda til Útlendingastofnunar, dags. 14. júní 2017. Það er því mat kærunefndar að gögn sem lágu fyrir við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun hafi ekki verið þess eðlis að stofnuninni hafi borið að leiðbeina kæranda sérstaklega um að leggja fram frekari gögn eða grípa til annarra aðgerða varðandi rannsókn málsins. Telur kærunefnd því ekki tilefni til að gera athugasemd við rannsókn eða rökstuðning Útlendingastofnunar í málinu að þessu leyti. Varakröfu kæranda um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju er því hafnað.
Í máli þessu hafa þýsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Þýskalands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.
Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Anna Tryggvadóttir
Erna Kristín Blöndal Þorbjörg Inga Jónsdóttir