Hoppa yfir valmynd
10. maí 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 100/2024-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 100/2024

Föstudaginn 10. maí 2024

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 27. febrúar 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 29. janúar 2024, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 16. nóvember 2021 og var umsóknin samþykkt 5. janúar 2022. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 29. janúar 2024, var kæranda tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar hefðu verið stöðvaðar á grundvelli 4. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sökum þess að hún hefði ekki tilkynnt stofnuninni um veikindi.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 27. febrúar 2024. Með bréfi, dags. 28. febrúar 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 9. apríl 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 11. apríl 2024. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru greinir kærandi frá því að hún sé ekki sammála ákvörðun Vinnumálastofnunar. Kærandi hafi því miður verið veik með Covid-19 þann 15. janúar 2024 þegar hún hafi átt að vera á lögboðnum fundi hjá Vinnumálastofnun. Læknar hafi heimsótt kæranda nokkrum sinnum á meðan á veikindum hafi staðið, henni hafi liðið mjög illa og ekki getað farið fram úr rúminu. Kærandi hafi verið of veik til að skoða síma sinn og svara tölvupóstum. Hún hafi haldið að hún væri að deyja. Kærandi hafi ekki vitað af fundinum en strax þegar henni hafi liðið betur hafi hún skoðað tölvupóst sinn og sent læknisvottorð til að staðfesta veikindin. Vinnumálastofnun hafi sagt kæranda að hún hefði átt að láta vita fyrir fram, áður en hún hafi veikst, að hún væri að verða veik. Sú nálgun stofnunarinnar sé órökrétt. Alvarleg tilfelli af Covid-19 megi líkja við bílslys en ekki sé hægt að búast við því að slasaður einstaklingur tilkynni slys eða veikindi fyrir fram. Kærandi glími enn við afleiðingar veikindanna, hún sé með nýrnavandamál.

Að mati kæranda sé ákvörðun Vinnumálastofnunar mjög ósanngjörn og vægðarlaus. Hún óski því eftir endurskoðun ákvörðunar. Vinnumálastofnun hafi tjáð kæranda að reglum hafi verið breytt, nú þurfi að tilkynna með fyrirvara. Kærandi hafi þó ekki verið upplýst um breyttar reglur, hvorki með tölvupósti né í síma. Kærandi óski eftir skilningi á hennar aðstæðum og að bótaréttur verði endurheimtur. Læknir kæranda geti gefið út frekari gögn ef þörf sé á því.   

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga þann 16. nóvember 2021. Umsókn kæranda hafi verið samþykkt 5. janúar 2022 með útreiknaðan bótarétt upp á 87%. Kærandi hafi nýtt bótarétt sinn í 25,64 mánuði af þeim 30 mánuðum sem réttur hennar nái til. 

Með erindi, dags. 12. janúar 2024, hafi kærandi verið boðuð í viðtal á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 15. janúar 2024 kl. 10:00. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að um skyldmætingu væri að ræða og að ótilkynnt forföll og forföll án gildra ástæðna gætu valdið stöðvun greiðslna atvinnuleysisbóta. Boðun hafi verið send á skráð netfang kæranda, B og í farsímanúmerið X, kl. 12:50 þann 12. janúar 2024.

Með erindi, dags. 17. janúar 2024, hafi verið óskað eftir skýringum á fjarveru kæranda á boðaðan kynningarfund. Kæranda hafi verið veittur sjö daga frestur til að koma að skýringum sínum í málinu. Þann 24. janúar 2024 hafi kærandi haft samband símleiðis og fengið leiðbeiningar um skil á læknisvottorði og skýringarbréfi á „Mínum síðum“ stofnunarinnar. Þann 25. janúar 2024 hafi stofnuninni borist læknisvottorð frá kæranda, útgefið sama dag. Í vottorðinu hafi verið greint frá því að kærandi hefði verið óvinnufær með öllu á tímabilinu 10.  til 23. janúar 2024 vegna sjúkdóms, án nánari tilgreiningar á eðli sjúkdóms. Ekki komi fram hvort að skoðun læknis hafi farið fram en útgáfa vottorðsins hafi átt sér stað í gegnum vefinn www.heilsuvera.is. Þann 26. janúar 2024 hafi stofnuninni borist skriflegar skýringar frá kæranda. Kærandi hafi sagst hafa verið rúmföst vegna veikinda frá 10. janúar og að prófun hafi sýnt að hún hefði verið með Covid.

Með erindi, dags. 29. janúar 2024, hafi kæranda verið tilkynnt ákvörðun stofnunarinnar um að stöðva greiðslur atvinnuleysistrygginga á grundvelli 4. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysitryggingar. Þegar atvik hafi átt sér stað hafi kærandi verið búin að nýta bótarétt sinn í 24,98 mánuði en hafi átt eftir að fá greitt fyrir tímabilið í janúar fram að ákvörðun, utan þeirra daga sem hún hafi verið veik samkvæmt læknisvottorðum.

Kærandi hafi sent inn beiðni um endurskoðun á máli hennar með tölvupósti þann 29. janúar 2024 og þann 5. febrúar 2024 hafi stofnuninni borist annar tölvupóstur frá kæranda með frekari skýringum, auk læknisvottorðs, útgefnu 1. febrúar 2024, af sama lækni í gegnum vef Heilsuveru. Einu viðbæturnar við hið fyrra vottorð hafi verið eftirfarandi í athugasemdum: „Aðrar upplýsingar: Fékk Covid-19 og var mjög veik, gat ekki heldur unnið að heiman.“ Með tilliti til nýrra upplýsinga hafi mál kæranda verið tekið fyrir að nýju. Þann 7. febrúar 2024 hafi kærandi verið upplýst um ákvörðun stofnunarinnar að staðfesta bæri fyrri ákvörðun frá 29. janúar 2024 þar sem sú ákvörðun hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu, þrátt fyrir að ný gögn í málinu hefðu borist.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Á meðal skilyrða fyrir greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsúrræði komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Á grundvelli 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Í tilfelli kæranda hafi hann verið boðaður til viðtals hjá stofnuninni en samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laganna sé Vinnumálastofnun heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar með sannanlegum hætti, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum þeirra sem kunni að hafa áhrif á rétt þeirra til greiðslu atvinnuleysisbóta. Atvinnuleitendur skuli þá vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara. Ákvæði 3. mgr. 13. gr. hafi komið inn í lög um atvinnuleysitryggingar með 4. gr. laga nr. 134/2009 en í athugasemdum með 4. gr. segi að gert sé ráð fyrir að stofnunin geti boðað atvinnuleitanda með allt að sólarhringsfyrirvara á þá skrifstofu sína sem næst sé lögheimili viðkomandi.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt til viðtals á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 15. janúar 2024. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, farsíma og á ,,Mínum síðum“ um boðun í umrætt viðtal. Kærandi hafi hvorki boðað  forföll í viðtalið né tilkynnt um veikindi sín án ástæðulausrar tafar. Í skýringum kæranda með kæru til nefndarinnar segi að hún hafi ekki athugað tölvupóst eða síma fyrr en 23. janúar 2024 þegar dregið hafi úr veikindum hennar. Þá taki hún fram í skýringum sínum að í tvígang hafi læknar heilsugæslunnar litið á hana á meðan á veikindum hafi staðið.      

Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysistryggingar skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að ef einstaklingur hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð er hafi fylgt frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það er fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysistryggingar samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysisbóta komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.

Skýringar kæranda á ástæðum þess að hún hafi ekki mætt til boðaðs [viðtals] hafi ekki borist fyrr en allnokkru eftir að boðað viðtal hafi átt sér stað. Kærandi hafi lagt fram tvö læknisvottorð sem staðfesti óvinnufærni með öllu vegna sjúkdóms, nánar tiltekið Covid-19, frá 10. til 23. janúar 2024.

Að mati Vinnumálastofnunar sé ljóst að kærandi hafi hvorki látið vita af veikindum sínum né boðað forföll án ástæðulausrar tafar líkt og krafist sé í 2. mgr. 14. gr. laganna. Stofnuninni hafi því borið að ákvarða um stöðvun greiðslna atvinnuleysistrygginga á grundvelli 59. gr. en þar segi í 1. mgr. ákvæðisins:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Þá hljóði 4. mgr. 59. gr. svo:

„Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. mgr. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Í ljósi alls þess sem hér hafi verið rakið, og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Með því að hafa ekki mætt í boðað viðtal hafi kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði og þar sem tilkynning um veikindi hafi ekki borist án ástæðulausra tafa beri henni því að sæta viðurlögum á grundvelli 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að stöðva beri greiðslur atvinnuleysistrygginga til kæranda á grundvelli 4. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og hún skuli ekki eiga rétt á greiðslum fyrr en hún uppfylli skilyrði 31. gr.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnun um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á grundvelli 4. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Þá segir í 4. mgr. 59. gr. laganna að hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili samkvæmt 29. gr. þegar atvik sem lýst sé í 1. mgr. eigi sér stað skuli hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfylli skilyrði 31. gr.

Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., þar á meðal um tilfallandi veikindi, án ástæðulausrar tafar. Þá segir meðal annars í 5. mgr. 14. gr. laganna að hinn tryggði skuli tilkynna um upphaf og lok veikinda til Vinnumálastofnunar án ástæðulausrar tafar. Jafnframt skuli hann skila inn læknisvottorði innan viku frá lokum veikindanna óski Vinnumálastofnun eftir því.

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi mætti ekki í boðað viðtal hjá Vinnumálastofnun þann 15. janúar 2024 vegna veikinda. Þá liggur fyrir að kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun ekki um veikindin fyrr en eftir að þau voru yfirstaðin og ekki fyrr en stofnunin hafði leitað eftir skýringum á því hvers vegna hún hefði ekki mætt í viðtalið.

Í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr., 2. og 5. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hún tilkynnti stofnuninni ekki strax um veikindi sín. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.

Þegar kærandi var beitt viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laganna hafði hún þegið atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun í 24,98 mánuði. Því voru atvinnuleysisbætur til hennar stöðvaðar á grundvelli 4. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 og á kærandi því ekki rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hún uppfyllir skilyrði 31. gr. laganna, þ.e. eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hún fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 29. janúar 2024, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til A, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta