Áhrif kreppunnar á börn og ungmenni
Lions bíður upp á opna ráðstefnu um áhrif kreppunnar á börn og ungmenni í Norræna húsinu, fimmtudag 10. febrúar, kl. 16:30-18:30.
Fjallað verður um áhrif kreppunnar á börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra. Um velferð barna og ungmenna, hvort við höfum eitthvað af Finnum, vangaveltur um viðbrögð og aðgerðir stjórnvalda.
Það þarf heilt þorp! Frá vanda til lausnar: Börn, unglingar og geðheilsa
Þetta er frábær fræðsla fyrir alla, jafnt foreldra, fagfólk og alla sem láta sig varða velferð
barna og ungmenna. Aukin þekking og umræða getur stuðlað að betra lífi barna og ungmenna!
Fyrirlesarar eru viðurkenndir sérfræðingar hver á sínu sviði, sem fjalla um vandann
og hvernig við leitum lausna. Dagskrá fylgir hér að neðan.
Allir velkomnir – Aðgangur ókeypis. Fjölmennið og bjóðið með ykkur gestum!