Almenn framlög vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2015
Innanríkisráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 30. janúar síðastliðnum um endurskoðaða áætlun um úthlutun almennra framlaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2015. Gert er ráð fyrir að ráðstöfunarfé til greiðslu framlaganna verði 10.700 m.kr. en endanleg framlög ársins 2014 námu rúmum 10.180 m.kr. Hækkun áætlaðra framlaga á árinu 2015 nemur því 5,1%.
Helstu breytingar frá fyrstu áætlun framlaganna í október síðastliðnum er að endurskoðuð áætlun byggist á grunni endanlegra framlaga ársins 2014 en þar er tekið tillit til eftirfarandi þátta:
1. Framkvæmd á endurmati á þeim einstaklingum sem metnir voru SIS með mati á árinu 2010 og 2011.
2. Niðurstöðu á framkvæmd á SIS mati þeirra einstaklinga sem komnir eru inn í þjónustu í málaflokknum og eru með viðbótarkostnað sem samsvarar einingarkostnaði 4. flokks SIS mats.
Á meðfylgjandi yfirliti má sjá áætlaða útgjaldaþörf þjónustusvæða, áætlaðar útsvarstekjur vegna 0,25% hlutdeildar þjónustusvæða í útsvarsstofni vegna þjónustu við fatlað fólk en mismunur áætlaðrar útgjaldaþarfar og áætlaðra útsvarstekna eru áætluð framlög ársins.
Jafnframt fer fram leiðrétting á framlögum ársins 2013 á grundvelli endanlegs álagningarstofns útsvars árið 2013 og kemur leiðréttingin til viðbótar áætluðum almennum framlögum ársins 2015.
Framlögin koma til greiðslu mánaðarlega og taka mið af innkomnum tekjum sjóðsins af 0,99% hlutdeild hans í staðgreiðsluskilum viðkomandi mánaðar.