Rúmlega 50 milljónir til mannúðarverkefna Rauða krossins vegna Sýrlands
Utanríkisráðuneytið hefur úthlutað 55,5 milljónum króna til þriggja verkefna Rauða krossins á Íslandi vegna átakanna í Sýrlandi. Um er að ræða verkefni í þágu sýrlenskra flóttamanna í Líbanon og Tyrklandi en einnig fá bágstaddir heimamenn stuðning í tveimur verkefnanna.
Eitt verkefnanna snýr að því að veita einstæðum mæðrum og fjölskyldum þeirra í Líbanon fjárstuðning í því skyni að bæta lífskjör þeirra. Markhópurinn telur 150 fjölskyldur, um 750 einstaklingar, 120 fjölskyldur sýrlenskra flóttamanna og 30 líbanskar fjölskyldur sem búa við örbirgð.
Verkefni um vernd flóttafólks frá Sýrlandi í Tyrklandi er víðtækt og nær til mannúðaraðstoðar í víðtækustu merkingu. Verkefnið lýtur einkum að vernd einstaklinga og hópa flóttamanna frá Sýrlandi í viðkvæmri stöðu en skráðir flóttamenn í Tyrklandi eru 3,4 milljónir. Verkefnið er hluti af stærra verkefni Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og samningi hennar við tyrknesk stjórnvöld um ferðir flóttafólks frá Sýrlandi til Evrópu.
Þriðja verkefnið lýtur að öruggri blóðgjöf, bæði fyrir sýrlenskt flóttafólki í Líbanon og heimamenn sem búa við kröpp kjör. Blóðgjöf er hvergi í boði nema hjá Rauða krossinum og hluti flóttafólks þarf á blóðgjöf að halda. Rauði krossinn telur mikilvægt að veita bágstöddu heimafólki sambærilega aðstoð til að draga úr spennu milli flóttamanna og heimafólks.
Verkefnin er unnin í samstarfi við landsfélög Rauða krossins, Rauða hálfmánann og Alþjóðasamband Rauða krossins og Rauða hálfmánans (IFRC).