Hoppa yfir valmynd
29. apríl 2022 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 1/2022

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:

 1. Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 42.400
2. Gisting í einn sólarhring kr. 28.800
3. Fæði hvern heilan dg, minnst 10 tíma ferðalag kr. 13.600
4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 6.800

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. maí 2022. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 2/2021 dags. 28. september 2021.

Nefndin fer þess á leit við ráðuneyti og stofnanir að viðmiðunarfjárhæðir um greiðslur dagpeninga um gistingu og veitingar verði kynntar starfsfólki til að útlagður kostnaður sé sem næst viðmiðunarfjárhæðum.

Athygli er vakin á að meginreglan er að greiða skal kostnað vegna ferðalaga innanlands, s.s. fargjöld, fæði og gistingu, eftir reikningi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta