Hoppa yfir valmynd
14. mars 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 586/2023-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 586/2023

Fimmtudaginn 14. mars 2024

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 1. desember 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. október 2023, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 15. ágúst 2023 og var umsóknin samþykkt 30. ágúst 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. október 2023, var kæranda tilkynnt að réttur hennar til atvinnuleysisbóta væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar vegna höfnunar á starfi.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 1. desember 2023. Með bréfi, dags. 13. desember 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 3. janúar 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 9. janúar 2024. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að Vinnumálastofnun taki enn og aftur ákvörðun um að greiða henni ekki bætur þar sem stofnunin taki skýringar hennar ekki gildar. Það sé ekki rétt að hún hafi neitað starfi. Í atvinnuviðtali hafi verið rætt hvenær það myndi henta henni að hefja störf og samþykkt hafi verið að hún myndi hefja störf strax eftir helgina. Það hafi verið mánaðamót, hún hafi verið tekjulaus og hafi átt erfitt með ýmislegt, eins og að mæta til vinnu og eiga fyrir mat. Kærandi vilji ítreka að ástæða þeirrar stöðu hafi verið vegna þess að hún hafi ekki fengið neina greiðslu frá Vinnumálastofnun þann mánuðinn vegna ósanngjarnrar ákvörðunar stofnunarinnar. Hún hafi verið of fljót að ákveða hvenær hún gæti hafið störf og hafi sent atvinnurekandanum skilaboð til að breyta upphafsdagsetningunni. Atvinnurekandinn hafi ekki svarað og hafi augljóslega ekki viljað ræða það. Kærandi hafi hlakkað til starfsins og hafi virkilega verið að vonast eftir skilningi vegna breytinga á upphafsdagsetningu. Hún hafi samt ætlað að reyna að mæta ef atvinnurekandi myndi ekki samþykkja breytinguna. Hann hafi engu svarað og því hafi það verið hans ákvörðun að vilja ekki ráða hana til starfa.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 15. júní 2022. Með erindi, dags. 16. júní 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 82%. Kærandi hafi verið afskráð þann 1. júlí 2023.

Kærandi hafi sótt aftur um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 15. ágúst 2023. Með erindi, dags. 30. ágúst 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 91%.

Í september 2023 hafi fyrirtækið B (C) skráð auglýsingu á vefsíðu Vinnumálastofnunar. Fyrirtækið hafi verið að leita að starfsmanni í afgreiðslu í verslun, almennri aðstoð, þrifum og frágangi. Einnig við móttöku vara, tiltekt og innpökkun pantana, skipulagningu lagers og verslunar. Tilgreint hafi verið í auglýsingu að kunnátta í pólsku væri kostur þar sem stór hópur viðskiptavina fyrirtækisins væri af pólskum uppruna. Vinnutími hafi verið frá klukkan 11:00 til 18:00 virka daga og frá klukkan 11:00 til 16:00 um helgar. Ferilskrá kæranda hafi í kjölfarið verið send til atvinnurekanda, enda hafi kærandi merkt „Deildarstjóri í verslun“ sem óskastarf á umsókn sinni um atvinnuleysisbætur. Kærandi hefði samkvæmt ferilskrá víðtæka reynslu af störfum í verslun.

Þann 15. september 2023 hafi Vinnumálastofnun borist þær upplýsingar frá atvinnurekanda að kærandi hefði ekki svarað boði í atvinnuviðtal. Þann 21. september 2023 hafi borist önnur tilkynning frá atvinnurekanda þar sem fyrri tilkynning, dags. 15. september 2023, hafi verið dregin til baka þar sem kærandi hefði að endingu mætt í boðað atvinnuviðtal og verið ráðin í starf. Kærandi hafi samkvæmt atvinnurekanda átt að hefja störf þann 25. september 2023. Í kjölfarið hafi ráðningarstyrkur vegna ráðningar kæranda verið samþykktur af Vinnumálastofnun. Ráðningarstyrkur hafi miðast við að kærandi myndi hefja störf þann 25. september 2023. Þann 26. september 2023 hafi Vinnumálastofnun borist tilkynning frá atvinnurekanda þar sem fram hafi komið að kærandi hefði sent skilaboð þess efnis að hún gæti ekki mætt til vinnu þann 25. september 2023. Kærandi hefði gefið þær skýringar að hún væri upptekin í verkefni út september 2023 og gæti því ekki hafið störf fyrr en í byrjun október 2023. Atvinnurekandi hafi upplýst Vinnumálastofnun um að hún væri eðli málsins samkvæmt hætt við að ráða kæranda í vinnu. Vinnumálastofnun hafi fengið afrit af umræddum SMS skilaboðum sem kærandi hafi sent atvinnurekanda sem megi sjá í samskiptasögu kæranda.

Með erindi, dags. 11. október 2023, hafi verið óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna höfnunar á atvinnuviðtali hjá atvinnurekanda. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að höfnun á atvinnutilboði eða atvinnuviðtali, án gildra ástæðna, gæti leitt til biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga.

Þann 11. október 2023 hafi Vinnumálastofnun borist skýringar kæranda. Kærandi hafi sagst ekki hafa hafnað umræddu atvinnutilboði heldur hafi hún samþykkt atvinnutilboð en ekki fengið svör frá atvinnurekanda vegna fyrirspurnar hennar um fyrsta vinnudaginn. Kærandi hafi því talið að atvinnurekandi hefði ekki viljað ráða sig í vinnu.

Með erindi, dags. 23. október 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysistrygginga til hennar væru felldar niður í þrjá mánuði. Ákvörðunin hafi verið tekin á grundvelli 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 1. desember 2023. Rökstuðningur kæranda í kæru sé efnislega samhljóða þeim skýringum sem hún hafi þegar veitt Vinnumálastofnun.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð meðan þeir leiti nýs starfs. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Gert sé ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Eitt af almennum skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem sé á Íslandi án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit.

Í 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög vegna höfnunar á starfi eða atvinnuviðtali. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Í athugasemdum með 57. gr. í frumvarpi því er hafi orðið að lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé áréttað að það að hafna því að fara í atvinnuviðtal eða sinna ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar hafi sömu áhrif og sú ákvörðun að taka ekki starfi sem bjóðist. Ástæðan sé einkum sú að atvinnuviðtal sé venjulega meginforsenda þess að hinum tryggða verði boðið starf og þyki mega leggja þá ákvörðun að jöfnu við það að hafna starfi.

Fyrir liggi að kærandi hafi mætt í atvinnuviðtal og samþykkt að ráða sig í vinnu hjá atvinnurekanda en hafi svo aldrei mætt í vinnu. Ágreiningur snúi að því hvort hegðun kæranda í aðdraganda ráðningar megi jafna við höfnun á atvinnutilboði og þá einnig hvort skýringar kæranda séu gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Samkvæmt 4. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar skuli Vinnumálastofnun meta við ákvörðun um viðurlög samkvæmt 1. mgr. 57. gr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna atvinnuviðtali hafi verið réttlætanleg, en í 4. mgr. segi orðrétt:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Vinnumálastofnun sé gert að meta skýringar atvinnuleitanda vegna höfnunar á atvinnutilboði með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til að vera reiðubúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Gert sé ráð fyrir því að Vinnumálastofnun sé heimilt að líta til aldurs hins tryggða, félagslegra aðstæðna tengdum skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima við ákvörðun um hvort hinn tryggði skuli sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 57. gr. laganna. Enn fremur sé Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar í boði sé starf fjarri heimili hans sem geri kröfur um að hlutaðeigandi flytji búferlum.

Þær skýringar sem kærandi hafi fært fram lúti að því að hún hafi aldrei hafnað atvinnutilboði. Hún hafi ekki fengið svar frá atvinnurekanda við ósk sinni um að hefja störf í byrjun október 2023 í stað upphafsdags ráðningarsambands sem hafi verið, samkvæmt fyrirliggjandi gögnum, 25. september 2023. Hún hafi óskað eftir að byrja í vinnu hjá atvinnurekanda í byrjun október 2023 en ekki 25. september 2023.

Atvinnuleitandi skuli vera reiðubúinn að taka starfi án sérstaks fyrirvara. Hegðun kæranda í aðdraganda upphafs ráðningarsambands hafi orðið til þess að kærandi hafi ekki fengið það starf sem henni hafi staðið til boða. Kærandi hafi sagst ekki vera reiðubúin til að taka starfi á umsömdum tíma og verði að telja að kærandi hafi með því hafnað atvinnu sem hún hafi haft reynslu af og getu til að sinna. Vinnumálastofnun meti skýringar kæranda á ástæðum höfnunar á atvinnutilboði ekki gildar. Kæranda beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laganna.

Þann 19. september 2023 hafi kæranda verið gert að sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda hafi nú jafnframt verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr., á sama tímabili samkvæmt 29. gr. laganna. Því komi til ítrekunaráhrifa fyrri viðurlaga og því beri kæranda að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði, sbr. 1. mgr. 61. gr. sömu laga.

Með vísan til alls framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda vegna höfnunar á atvinnutilboði geti ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar og að kærandi skuli sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 57. gr. laganna.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 57. gr., sbr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Samkvæmt gögnum málsins var kæranda þann 12. september 2023 miðlað í starf hjá versluninni C. Fyrirtækið tilkynnti Vinnumálastofnun þann 21. september 2023 að kærandi myndi hefja störf 25. september 2023. Þann 26. september 2023 tilkynnti fyrirtækið Vinnumálastofnun að kærandi hefði sent atvinnurekanda skilaboð þess efnis að hún gæti ekki hafið störf 25. september 2023 heldur viku seinna þar sem hún væri að klára verkefni. Vegna þessa hefði atvinnurekandi hætt við ráðninguna. Kærandi hefur gefið þær skýringar að hún hafi ekki hafnað starfinu. Hún hafi eingöngu óskað eftir því við atvinnurekanda að breyta upphafsdegi starfsins frá því sem áður hefði verið ákveðið. Hún hafi óskað eftir því að fá að hefja störf viku seinna en hafi ekki fengið svör frá atvinnurekanda við þeirri beiðni. Hún telji því ljóst að atvinnurekandi hafi ekki viljað ráða hana.

Úrskurðarnefndin telur að framkomin gögn bendi til þess að kærandi hafi í raun hafnað starfi hjá versluninni C. Í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit samkvæmt 14. gr. en í því felst meðal annars að hafa vilja og getu til að taka starfi án sérstaks fyrirvara, sbr. d. lið 1. mgr. ákvæðisins. Að því virtu er það mat úrskurðarnefndarinnar að þær skýringar sem kærandi hefur gefið séu ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á starfinu, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006.

Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:

„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 19. september 2023 á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. október 2023, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

 

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta