Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingiskosninga 2024
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingiskosninga hefst fimmtudaginn 7. nóvember. Í Bandaríkjunum verður hægt að kjósa í sendiráðinu í Washington, hjá fastanefndinni í New York, hjá fulltrúa sendiráðsins í Norfolk og eftir þörfum hjá kjörræðismönnum.
Washington, DC
Tekið verður á móti kjósendum í sendiráði Íslands eftir samkomulagi frá og með 7. nóvember. Vegna öryggisgæslu í húsinu er mikilvægt að bóka tíma með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected].
New York
Boðið verður upp á utankjörfundaratkvæðagreiðslu í fastanefnd Íslands í New York, dagana 21. og 22. nóvember frá kl 10:00 – 16:00.
Norfolk
Hægt verður að kjósa samkvæmt samkomulagi hjá fulltrúa á vegum sendiráðs í Norfolk, Virgina.
Þau sem hyggjast nýta sér þessa kosti eru beðin um að bóka tíma með því að senda tölvupóst á: [email protected]
Kjörræðismenn
Einnig er hægt að kjósa hjá kjörræðismönnum Íslands samkvæmt samkomulagi og eru kjósendur beðnir um að hafa samband áður en þeir koma til að kjósa. Sjá lista yfir ræðismenn í Bandaríkjunum.
Upplýsingar til kjósenda
Kjósendur skulu framvísa persónuskilríkjum með mynd.
Kjósandi ber ábyrgð á að koma atkvæði sínu á réttan stað. Hægt er að setja bréfið í póst, eða afhenda það einhverjum sem kjósandi felur að koma því til skila. Fram að kjördegi er kjörstjóra skylt, ef kjósandi óskar þess, að koma bréfinu í póst.
Póstsendingar á milli landanna eru nokkuð hægari en áður var og því er mælt með því að kosið sé í tíma til þess að atkvæði berist til Íslands í tæka tíð.
Ef kjósendur eru efins um hvort þeir séu á kjörskrá geta þeir flett kennitölu sinni upp í kjörskrá á heimasíðu Þjóðskrár frá og með 31. október í síðasta lagi (https://www.skra.is/folk/kjorskra-og-kosningar/kjorskra/). Athugið að ef ekki var sótt um að komast aftur á kjörskrá fyrir 1. desember 2023 geta þeir sem hafa haft lögheimili erlendis, lengur en 16 ár, ekki kosið í alþingiskosningunum.
Nánari upplýsingar má finna í fréttatilkynningu utanríkisráðuneytisins á vef Stjórnarráðsins.