Mál nr. 129/2021 Úrskurður 12. október 2021
Mál nr. 129/2021 Eiginnafn: Arne (kk.)
Hinn 12. október 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 129/2021, en erindið barst nefndinni 14. september.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Arne (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Arnes, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Arne (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.