Auglýsing um aukaúthlutun tollkvóta vegna innflutnings á pottablómum
Útboð tollkvóta á blómum fyrir fyrri hluta ársins 2023 var auglýst 24. október 2022.
Ekkert tilboð barst um tollkvóta pottablóma. Með vísan til 65. gr. búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum og til reglugerðar um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum, trjám o.fl. nr. 1151/2022, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutningsmagn blóma sem sótt skal um í stykkjatölu fyrir tímabilið 1. janúar - 30. júní 2023.
Vara |
Tímabil |
Vörumagn |
Verðtollur |
Magntollur |
|
Tollskrárnr.: |
stk. |
% |
kr./stk. |
||
Blómstrandi plöntur með knúppum eða blómum, þó ekki kaktusar: |
|||||
0602.9081-.9083 og 0602.9088 |
Blómstrandi plöntur með knúppum eða blómum, þó ekki kaktusar |
01.01.-30.06.23 |
2.200 |
30 |
0 |
Aðrar: |
|||||
0602.9093 |
Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð, þó ekki kaktusar og þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna |
01.01.-30.06.23 |
3.000 |
30 |
0 |
Berist umsóknir um meira magn en auglýstum tollkvóta nemur skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Úthlutun er ekki framseljanleg.
Umsóknar- og tilboðsferli vegna úthlutunar tollkvótans fer fram með rafrænum hætti á vefkerfinu tollkvoti.is. Nýskráning notenda í vefkerfið fer fram hjá matvælaráðuneytinu. Ef óskað er eftir nýskráningu notenda skal hafa samband við ráðuneytið í síma 545-9700 eða á [email protected]. Sjá eftirfarandi ítarefni vegna úthlutunar tollkvóta:
Vefkerfi fyrir tollkvóti.is Leiðbeiningar tollkvóti.is
Opnað verður fyrir umsóknir á tollkvoti.is mánudaginn 13. febrúar 2023 og skulu umsóknir berast fyrir kl. 23.59, mánudaginn 20. febrúar 2023.