Ráðherra heimsækir Seyðisfjörð: Stórtjón vegna aurflóða
„Það er áfall að sjá eyðilegginguna á Seyðisfirði. Þau merku hús sem unnið hefur verið að því að endurgera og viðhalda, af mikilli ástríðu og þolinmæði, eru sum horfin og önnur stórskemmd og ljóst að hér hefur orðið ómetanlegt tjón fyrir minjasögu okkar. En það er hugur í Seyðfirðingum – bjartsýni og þrautseigja sem eftir er tekið, og við munum vinna að því sameiningu að byggja upp samfélagið að nýju,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.
Meðal húsa á skriðusvæðinu voru fjórar byggingar sem hýsa Tækniminjasafn Austurlands sem er byggðasafn Seyðfirðinga, Gamla ríkið, Turninn – elsti söluturn landsins byggður í óvenjulegum víkingarómantískum drekastíl og húsið Angró sem var síldarsöltunarhús, íbúðar- og sjómannahús byggt af Ottó Wathne. Elstu húsin sem skemmdust voru byggð um árið 1880.