Hoppa yfir valmynd
26. október 2007 Heilbrigðisráðuneytið

Nýjar nefndir um stefnumótun, eftirlit og aðstöðu heilbrigðisstofnana

Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, hefur skipað fjórar nýjar nefndir sem falið hefur verið að sinna stefnumótun og eftirliti með heilbrigðisstofnunum og veita ráðherra ráðgjöf um málefni þeirra, auk þess sem ein nefndin mun fjalla um nýbyggingar og aðstöðu heilbrigðisstofnana.                                                                                       

Ráðgjafanefnd um Landspítala

Samkvæmt nýjum lögum um heilbrigðisþjónustu hefur ráðherra skipað níu manna ráðgjafanefnd Landspítala. Í nefndinni situr fólk frá mörgum sviðum samfélagsins, sem endurspeglar meðal annars sjónarmið neytenda, atvinnulífs og háskólasamfélags. Tilgangurinn er að efla tengsl Landspítala við þjóðfélagið og möguleika notenda þjónustunnar til að hafa áhrif á starfsemi og þjónustu spítalans.

Nefndinni er samkvæmt lögunum ætlað að vera forstjóra spítalans og framkvæmdastjórn hans til ráðgjafar og álits um þjónustu, starfsemi og rekstur spítalans.
Ráðgjafarhlutverk nefndarinnar snýr fyrst og fremst að stjórnendum Landspítala og er verksvið hennar afmarkað í samræmi við það.  

Nefndina skipa:

Ingibjörg Pálmadóttir, formaður, fyrrverandi heilbrigðisráðherra
Anna Þrúður Þorkelsdóttir, fyrrverandi forstöðumaður
Friðrik Pálsson, framkvæmdastjóri
Guðjón Sigurðsson, formaður MND félagsins
Óskar Örn Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Félags krabbameinssjúkra barna
Valgerður Gunnarsdóttir, forstöðumaður heilbrigðisupplýsinga, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. 
Vigfús Bjarni Albertsson, sjúkrahúsprestur Landspítala
Þórólfur Þórlindsson, forstjóri Lýðheilsustöðvar
Sigurrós Kristinsdóttir, 1. varaformaður Eflingar

 

Nefnd um málefni Landspítala

Heilbrigðisráðherra hefur skipað sjö manna nefnd sem mun vera ráðherra til ráðgjafar um framtíðarstefnumótun spítalans auk þess að efla og styrkja eftirlit ráðherra með rekstri og þjónustu spítalans.

Meðal þess sem nefndinni er ætlað er að skilgreina hlutverk Landspítala og gera tillögur um hvernig greina megi að kjarnastarfsemi hans og önnur verkefni, framkvæma athugun á stjórnskipulagi Landspítala og gera úttekt á rekstri hans.

Nefndina skipa:

Vilhjálmur Egilsson, formaður, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins,
Guðjón Magnússon, framkvæmdastjóri hjá WHO,
Hanna Katrín Friðriksson, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra
Inga Dóra Sigfúsdóttir, deildarforseti kennslufræði og lýðheilsudeildar HR
Linda Bentsdóttir,  lögfræðingur
Margrét S. Björnsdóttir, forstöðumaður stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála hjá HÍ

 

Nefnd um málefni Sjúkrahússins á Akureyri

Heilbrigðisráðherra hefur skipað fimm manna nefnd er mun sinna sambærilegu hlutverki um stefnumótun, eftirlit og ráðgjöf til ráðherra, fyrir Sjúkrahúsið á Akureyri. Formaður þeirrar nefndar er Andri Teitsson, verkfræðingur.

 

Nefnd um fasteignir, nýbyggingar og aðstöðu heilbrigðisstofnana.

Heilbrigðisráðherra hefur skipað sjö manna nefnd sem mun sinna því hlutverki að efla og styrkja eftirlit með uppbyggingu fasteigna heilbrigðisstofnana og aðstöðu þeirra og rekstri fasteigna Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri. 

Nefndin skal vinna tillögur að framtíðarskipulagi fasteigna og annarrar aðstöðu innan heilbrigðiskerfisins í kjölfar þarfagreiningar og leggja fyrir ráðherra eins fljótt og unnt er.

Nefndin mun hafa yfirumsjón með undirbúningi, hönnun og byggingu nýrrar sjúkrahúsbyggingar fyrir Landspítala og skal í því sambandi leitast við að tryggja góða samvinnu m.a. við samtök sjúklinga og aðstandenda og Háskóla Íslands. Nefndin skal þegar í stað gera úttekt á núverandi stöðu verkefnisins og vinna áætlun um áfangaskiptingu og fjármögnun framkvæmda.

Nefndina skipa:

Inga Jóna Þórðardóttir, formaður
Árni Þór Sigurðsson, alþingismaður,
Bolli Héðinsson, hagfræðingur
Bolli Kristinsson, fjárfestir
Hanna Katrín Friðriksson, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra
Margrét Sanders, framkvæmdastjóri Deloitte á Íslandi
Þórir Kjartansson, framkvæmdastjóri



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta