Mál nr. 87/2014 úrskurður 5. desember 2014
Mál nr. 87/2014 Eiginnafn: Bláklukka
Hinn 5. desember 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 87/2014 en erindið barst nefndinni 20. nóvember:
Eiginnafnið Bláklukka (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Bláklukku, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Bláklukka (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.